2025
Ljúf og einföld orð
Júlí 2025


Þægilegur lestur

Ljúf og einföld orð

Sönn saga frá Bandaríkjunum.

Börn sitja í Barnafélaginu og hlusta á leiðtoga

Kaci brosti þegar hún fékk sér sæti í Barnafélaginu. Í dag hafði verið framsetning barna á sakramentissamkomu. Það hafði verið óttalegt að segja sinn hlut, en hún gerði það!

Systir Dench, Barnafélagsforsetinn, stóð framarlega. „Flott hjá ykkur á sakramentissamkomu í dag!“ sagði hún. „Ég veit að hvert ykkar lagði hart að sér við að læra hlutverkin ykkar.“

Tveir drengir tala saman, stúlka döpur á svip

„Fyrir utan Kaci,“ sagði einn af eldri strákunum. „Enginn gat skilið það sem hún sagði.“

Systir Dench yggldi brúnir framan í strákinn og snéri sér síðan brosandi að Kaci. „Þú stóðst þig frábærlega.“

Kaci reyndi að gráta ekki. Hún hafði gert sitt besta til að læra sitt. En stundum komu orð hennar ekki rétt út.

Grátandi stúlka í bíl með fjölskyldu sinni

Á leiðinni heim gat Kaci ekki stöðvað tárin lengur.

„Hvað er að?“ spurði mamma.

„Einn strákanna gerði grín að mér. Hann sagði að ég hefði ekki sagt minn hluta rétt.“ Hún tók að gráta enn meira.

Mamma og telpa í bíl að tala saman

„Þú stóðst þig vel. Ég og pabbi erum stolt af þér,“ sagði mamma. „Veistu hverjir aðrir eru stoltir af þér?“

Kaci hristi höfuðið.

„Himneski faðir,“ sagði mamma. „Hann veit að þú gerðir þitt besta.“

Kaci leið mun betur. Hún vildi nota orð sín til að hjálpa öðrum að vera líka hamingjusamir.

Í skólanum sagði Kaci kennaranum sínum að hún stæði sig vel í kennslunni.

Pabbi heima að gera við hillu. Kaci sagði honum að hann væri að gera gott starf við að gera húsið þeirra fallegt.

Úti voru Kaci og bróðir hennar í boltaleik saman. Kaci sagði honum að hann stæði sig vel í því að kasta.

Telpa hugsar um það hvernig hún notaði vingjarnleg orð við aðra

Að segja fólki að það væri að það stæði sig vel, lét Kaci líða vel hið innra. Þegar hún sá aðra brosa, vissi hún að einföld orð hennar gerðu gæfumun!

PDF-síða

Myndskreyting: Greg Paprocki