Trúarorðin mín
Gætið að þessum orðum og orðtökum í þessu tölublaði Barnavinar!
Ráðsmennska
Ráðsmennska er sú ábyrgð að annast eitthvað mikilvægt. Himneskur faðir treystir okkur fyrir ráðsmennsku yfir jörðunni. Það þýðir að hann býður okkur að annast og vernda sinn fallega heim.
Iðrun
Iðrun er leiðin til að snúa okkur til Jesú Krists þegar við tökum rangar ákvarðanir. Til að iðrast þurfum við að sjá eftir því sem við höfum gert, biðja himneskan föður um hjálp og fyrirgefningu og reyna að bæta fyrir það. Sökum friðþægingar frelsarans, getum við snúið baki við slæmum ákvörðunum og tekið góðar ákvarðanir í staðinn.
Himneska ríkið
Himneska ríkið er sá staður þar sem himneskur faðir og Jesús Kristur dvelja. Með því að velja að fylgja Jesú Kristi, getum við dag einn lifað þar með fjölskyldum okkar að eilífu.
Upprisa
Upprisa er þegar andi okkar og líkami sameinast aftur eftir að þið deyið. Þegar þið rísið upp verður líkami ykkar fullkominn og þið getið hvorki veikst né dáið. Vegna friðþægingu Jesú Krists, munu allir rísa upp.
Myndskreyting: Madison Baker