2025
Postularnir þjóna í trúboði á Stóra-Bretlandi
Júlí 2025


Sögur úr ritningunum

Postularnir þjóna í trúboði á Stóra-Bretlandi

Joseph Smith sér fyrir sér postula prédika á Stóra-Bretlandi

Drottinn bauð Joseph Smith að senda nokkra postulanna í trúboð til Stóra-Bretlands. Það var erfitt fyrir postulana að yfirgefa fjölskyldur sínar, en Drottinn lofaði að blessa þau.

Kimball-fjölskyldan veik í rúmi

Heber C. Kimball og eiginkona hans Vilate áttu ung börn. Mörg þeirra voru mjög veik.

Brigham Young kveður fjölskyldu sína

Brigham Young var líka veikur og fjölskylda hans var fátæk. Mary Ann eiginkona Brighams sagði samt við hann: „Farðu og framfylgdu trúboði þínu og Drottinn mun blessa þig.“

Heber og Brigham aftast í akandi vagni

Heber og Brigham urðu frískir, en þeir voru mjög veikburða. Þá langaði til að boða fagnaðarerindið, svo þeir kvöddu fjölskyldur sínar og klifruðu aftast upp í vagn til að hefja ferð sína.

Heber og Brigham boða fólki í Stóra-Bretlandi fagnaðarerindið

Eftir langt ferðalag yfir hafið, komu Heber og Brigham til Stóra-Bretlands. Þeir kenndu mörgum fagnaðarerindið, ásamt öðrum postulum. Þúsundir manna voru skírðir í kirkju Jesú Krists. Margir þeirra sigldu yfir hafið til að sameinast hinum heilögu í Bandaríkjunum.

Fjölskyldur Hebers og Brighams taka á móti þeim við bryggjuna

Drottinn hélt loforð sitt um að annast fjölskyldur Hebers og Brighams meðan þeir þjónuðu honum sem trúboðar.

PDF-síða