Vinir víða um heim
Rika R., 7 ára, Rewa-héraði, Fídjíeyjum
Brady T., 9 ára, Arisóna, Bandaríkjunum
Donghyeon K., 10 ára, Seúl, Suður-Kóreu
Becky og Leo Y., bæði 10 ára, Texas, Bandaríkjunum
Við klæddum okkur í búninga, fórum í brautryðjendaleiki, bjuggum til smjör í krukku og bjuggum til vagna úr kössum til að halda upp á brautryðjendadaginn! Við vorum þakklát fyrir áa okkar, brautryðjendurna sem fóru yfir slétturnar og voru trúfastir í fagnaðarerindi Jesú Krists.
James, Annie, Alice og Norah G., 7, 9, 3 og 5 ára, Oregon, Bandaríkjunum
Ég elska að fara í kirkju alla sunnudaga og syngja Barnafélagslög.
Tevin N., 7 ára, Harare, Simbabve
Áður en við förum að heiman í skólann, fer ég með morgunbænina. Ég þakka himneskum föður fyrir mig, móður mína og fyrir allt.
Carlota V., 8 ára, Lissabon-héraði, Portúgal
Að læra um brautryðjendurna, hvatti mig til að smíða brautryðjendavagna og handvagna.
Koy S., 8 ára, Utah, Bandaríkjunum
Mér finnst gaman að baka smákökur. Ég bæti alltaf við afar sérstöku hráefninu, sem er ást! Þegar ég gef öðrum kökurnar finn ég fyrir friði og gleði.
Missy N., 9 ára, Tennessee, Bandaríkjunum
Börn og leiðtogar Barnafélagsins í Lima-héraði, Perú, útbjuggu matarpoka og gáfu flóttabörnum.