2025
Fylgja Jesú á Taívan
Júlí 2025


Fylgja Jesú á Taívan

Kynnist Ellie

Brosandi telpa

Ellie fylgir Jesú Kristi með því að hjálpa fjölskyldu sinni að hafa viðburði á heimiliskvöldum. Hún kenndi litla bróður sínum og systur fjórða trúaratriðið í einu verkefni. Hún lærði trúaratriðið utanbókar með því að endurtaka það yfir daginn. „Þetta getur hjálpað mér að komast einu skrefi nær Kristi,“ segir Ellie.

Ellie er friðflytjandi í fjölskyldu sinni. Hún hjálpar litlu systur sinni að fara í skóna og gefa henni að borða þegar mamma hennar er upptekin. Þegar yngri systkini hennar rífast um snarl eða stól, gefur hún þeim sitt. Ellie segir: „Þegar ég fylgi Jesú, hlýnar mér um hjartarætur.“

Um Ellie

Stúlka á hjóli meðan mamma hennar og yngri systir ganga á eftir

Aldur: 7 ára

Frá: Taoyuan, Taívan

Tungumál: Taívanska, mandarín, enska

Markmið: Spila mjög vel á píanó, læra Trúaratriðin, læra badminton

Áhugamál: Spila á píanó, listir og handverk, klettaklifur, söngur

Fjölskylda: Ellie, mamma, pabbi, yngri bróðir, yngri systir

Brosandi fjölskylda

Það sem er í uppáhaldi hjá Ellie

Pabbi og dóttir horfa á skrift á krítartöflu

Ritningarsaga: Nefí þykist vera Laban til að ná í látúnstöflurnar (sjá 1. Nefí 4)

Ávextir og grænmeti: Hunangsferskjur, vínber og enoki-sveppir

Matur: Skyndinúðlur

Litur: Regnbogalitir

Barnafélagssöngur:Fjölskyldur geta átt eilífð saman“ (Barnasöngbókin, 99).

Fjölskylda horfir saman á bók
PDF-síða