Fallega veröldin okkar
Tekið úr „Ráðsmennska okkar á jörðu,“ aðalráðstefna, október 2022.
Ég og eiginkona mín fórum með nokkur barnabarna okkar í undursamlegan garð í Frakklandi. Við dáðumst að fallegu blómabeðunum, vatnaliljunum og tjörnunum.
Garðurinn tilheyrði manni að nafni Claude Monet. Hann var mikill listmálari. Hann vann af natni í garðinum sínum í 40 ár. Hann málaði hundruð málverka sem voru innblásin af garðinum hans.
Fegurð náttúrunnar getur hjálpað okkur að vera þakklát fyrir himneskan föður og son hans, Jesú Krist. Þeir sköpuðu þessa fallegu jörð með fjöllum, lækjum, gróðri og dýrum.
Þessi dásamlegu sköpunarverk sýna hversu heitt Guð elskar okkur. Þeim fylgja þó líka skyldur og ábyrgð. Það er kallað ráðsmennska. Við þurfum að annast það sem Guð hefur skapað fyrir okkur.
Himneskur faðir býður okkur líka að taka þátt í sköpunarverki sínu. Við getum skapað list, tónlist og annað til að uppörva og blessa aðra.
Guð lofar miklum blessunum þegar við elskum og önnumst hvert annað og jörðina. Þegar þið gerið það, munuð þið finna elsku hans sterkar í lífi ykkar.
Listaverk úr rifnum pappír
Caussé biskup kenndi að við getum líka orðið skaparar! Hér er handverk sem þið getið gert til að minna ykkur á hið fallega sköpunarverk himnesks föður.
-
Finnið mynd af einhverju í náttúrunni sem veitir ykkur innblástur.
-
Teiknið mismunandi hluta myndarinnar með því að nota blað og blýant.
-
Rífið litaðan pappír til að nota í myndina.
-
Límið lituðu pappírsstykkin innan við útlínur ykkar.
Myndskreyting: Maddie Baker