„Bréf til þeirra sem eiga erfitt með að fyrirgefa,“ Líahóna, júlí 2025.
Ungt fullorðið fólk
Bréf til þeirra sem eiga erfitt með að fyrirgefa
Ég hef orðið fyrir særindum og hef þurfti að læra að fyrirgefa.
Kæru vinir,
Öll eigum við það sameiginlegt að upplifa særindi og að okkur sé misboðið. Fólk umhverfis okkar segir oft eða gerir eitthvað sem fær okkur til að upplifa reiði, að við séum sniðgengin, móðguð, lítilsvirt eða vanmetin.
Fyrir mörgum árum var nokkur í kirkju sem olli mér særindum. Ég fann fyrir reiði og komst í uppnámi og vildi að viðkomandi bæðist afsökunar, en það gerðist aldrei. Ég reyndi að gleyma því sem hafði gerst og hugsaði að sársaukinn og reiðin myndu hverfa.
Ég bar þó þessa reiðitilfinningu með mér í nokkur ár. Gremjan sem ég hafði í garð þessa manneskju hvarf ekki.
Dag einn ræddi ég við vin minn um þetta ástand. Þá kom þessi hugsun til mín:
Fyrirgefðu henni.
Andinn hvatti mig til að fyrirgefa þessari manneskju sem ég bar svona mikla reiði til. Ég var forviða.
Hvernig átti ég að fyrirgefa þessari manneskju? Það var ég sem hafði orðið fyrir særindum, svo ég verðskuldaði fyrirgefningarbeiðni, ekki satt?
Ég barðist við þessa hugsun í langan tíma. Ég íhugaði hins vegar fordæmi frelsara míns og kennslu hans um fyrirgefningu:
„Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður.
„En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar“ (Matteus 6:14–15)
Jafnvel á krossinum sárbað frelsarinn föður sinn um að fyrirgefa hermönnunum sem krossfestu hann (sjá Lúkas 23:34).
Ég man líka eftir boði Russells M. Nelson forseta um að „sýna auðmýktina, hugrekkið og styrkinn sem þarf, bæði til að fyrirgefa og biðjast fyrirgefningar. …
Ef fyrirgefning virðist ómöguleg að sinni, biðjið þá að kraftur fyrir friðþægingarblóð Jesú Krists hjálpi ykkur.“
Með allt þetta í huga, baðst ég oft fyrir. Ég bað til himnesks föður og sagði: „Ef það er þinn vilji að ég fyrirgefi þessari manneskju, opnaðu þá dyrnar og hjálpaðu mér að láta það gerast, því ég hef ekki styrkinn til að gera það á eigin spýtur.“
Daginn eftir í kirkju, stóð ég augliti til auglitis við manneskjuna sem hafði sært mig. Með leiðsögn andans fannst mér að ég ætti að biðja hana fyrirgefningar. Ég baðst afsökunar á því að hafa stundum ekki verið góður vinur og spurði hvort manneskjan gæti fyrirgefið mér. Hún gerði það og endurgalt með því að biðja mig fyrirgefningar á því sem hún hafði gert. Ég fyrirgaf þessari manneskju.
Ég fór frá þessum aðstæðum léttari í huga. Særindin hurfu ekki um leið, en mér leið betur. Ég var laus við sársaukann og sorgina sem höfðu plagað mig svo lengi. Ég gat haldið áfram í friði.
Stundum getur virst ómögulegt að fyrirgefa. En að halda í reiðina særir okkur aðeins enn frekar. Himneskur faðir vill ekki að við höldum áfram að þola þann sársauka, sorg og reiði sem Jesús galt svo dýru verði fyrir til að frelsa okkur frá. Hann vill að við finnum gleði af því að hann elskar okkur.
Vinir mínir, verið fús til að leggja frá ykkur þær byrðar sem þið haldið svo fast í. Fáið þær frelsaranum og opnið fyrir elsku hans í líf ykkar. Veljið ekki að viðhalda særindunum. Veljið hann í þeirra stað.
Systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, sagði: „Drottinn krefst þess að við fyrirgefum, okkur sjálfum til góðs. Hann biður okkur samt ekki að gera það án hjálpar sinnar, elsku og skilnings. Í gegnum sáttmála okkar við Drottin getum við meðtekið kraft styrkingar, leiðsagnar og þá hjálp sem við þörfnumst til að bæði fyrirgefa og vera fyrirgefið.“
Kæru vinir, þið eruð svo elskuð. Leið ykkar til fyrirgefningar verður líklega ekki lík minni. Þar sem við erum öll börn Guðs og erum svo elskuð, mun hann annast sérhvert okkar í samræmi við einstaklingsþarfir okkar. Hann mun sýna okkur leið lækningar, jafnvel þótt það taki tíma.
Ég vona að þið leitið þeirrar fyrirgefningar sem sál ykkar þráir svo innilega. Ég vona að orð mín hafi verið ykkur gagnleg, en það sem mikilvægara er, ég vona að andinn hafi vitnað fyrir ykkur um þann sannleika að frelsarinn getur fært okkur frið, líkn og fyllingu.
Kveðja,
Ykkar vinur