2025
Myndum við sjá barnabarn okkar aftur?
Júlí 2025


„Myndum við sjá barnabarn okkar aftur?“ Líahóna, júlí 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Myndum við sjá barnabarn okkar aftur?

Ákvörðun okkar um að þiggja boð Nelsons forseta leiddi til óvænts kraftaverks.

mynd af símaskjá með skilaboðum

Myndskreyting: David Malan/Malan Creative

Árið 1999 lést elsti sonur okkar. Hann skildi eftir sig eiginkonu og eins árs dóttur og áttum við skemmtilegt samband við þau og yndisleg, vikuleg samskipti.

Vegna hörmulegra aðstæðna, þá var þriðji afmælisdagur sonardóttur okkar síðasta skiptið sem við heyrðum frá henni. Í mörg ár báðumst við fyrir, föstuðum og vonuðum að við myndum einhvern veginn sjá hana aftur.

Á aðalráðstefnunni í október 2018 lagði Russell M. Nelson forseti fram boð með loforði: Ég „hvet ykkur til að finna leið til að eiga reglulegar heimsóknir þangað – að vera í heilögu húsi Drottins – og halda svo þá áætlun, af einurð og gleði. Ég lofa ykkur því að Drottinn mun færa ykkur þau kraftaverk sem þið þurfið á að halda, er þið færið þær fórnir að þjóna og tilbiðja í musterum hans.“

Þegar ég heyrði þessi orð, fannst mér að himneskur faðir væri að tala til mín með spámanni sínum. Ég og eiginmaður minn ákváðum því að fara í musterið á hverjum þriðjudegi og halda þá skuldbindingu „af einurð og gleði.“

Dag einn árið 2019 sendi barnabarn okkar, sem þá var 21 árs, okkur óvænt skilaboð á netinu. Samskipti hennar gengu fyrst hægt fyrir sig, en eftir því sem leið á skilaboðin hennar, tók hún að spyrja spurninga sem leiddu til dásamlegra samræðna. Hún hleypti okkur hikandi í líf sitt fyrst og síðan oftar.

Árið 2021 buðum við henni að verja þakkargjörðarhátíðinni með fjölskyldu okkar. Hún þáði boðið, og við áttum yndislegar stundir við að kynnast henni. Hún tengdist frændum sínum, frænkum auðveldlega. Hana langaði til að gera það að hefð að heimsækja á þakkargjörðarhátíðinni.

Ári síðar hafði sonur okkar samband við okkur eftir að hafa verið fjarverandi lengi. Í mars 2024, í fyrsta skipti í lífi fjölskyldu okkar, héldum við fjölskyldumót sem innihélt öll lifandi börn, maka þeirra og öll 16 barnabörnin.

Ég hef alltaf trúað því að spámaðurinn mæli fyrir munn Drottins. Ég trúi að þetta þarfa kraftaverk hafi gerst vegna opinberaðrar leiðsagnar og loforða Nelsons forseta.

Vitnisburður minn og elska til himnesks föður míns og sonar hans voru ekki og eru ekki háð þessu kraftaverki. Ég furða mig hins vegar á því hversu persónuleg elska þeirra er til mín og hve máttug loforð þeirra eru sem koma fyrir tilstuðlan spámannsins.