2025
Einfaldar leiðir til að verða kristilegri í hirðisþjónustu okkar
Júlí 2025


„Einfaldar leiðir til að verða kristilegri í hirðisþjónustu okkar,“ Líahóna, júlí 2025.

Einfaldar leiðir til að verða kristilegri í hirðisþjónustu okkar

Allt í kringum okkur eru tækifæri til að þjóna eins og frelsarinn myndi gera.

myndskreyting af Jesú Kristi að hugga ungan mann

Myndskreyting: Jen Tolman

Hirðisþjónustan, eins og hún er af himnum send, er ekki flókin. Að bjóða fram aukna umhyggju og nærgætni, snýst um nokkrar grundvallaraðferðir, sem eru vel ígrundaðar, sem „lyfta okkar andlegu augum og lifa eftir kærleikslögmálinu, betur um allan heim.“

Okkur er ráðlagt að „[vaka] yfir fólki [okkar] og … [næra] það á öllu, sem réttlætið snertir“ (Mósía 23:18). Sumar lykilleiðir til að þjóna eru meðal annars:

  • Hafið samband við þau. Þannig opnast tækifæri til hirðisþjónustu.

  • Látið þau finna að ykkur sé annt um þau með því að kynnast þeim og þróa með ykkur samkennd.

  • Biðjist fyrir um tækifæri til að þjóna og leitið innblásturs til að þekkja þarfir þeirra.

  • Verið í reglulegum samskiptum, svo þið séuð undir það búin að þjóna.

Allt í kringum okkur eru tækifæri til að þjóna eins og frelsarinn myndi gera. Hér eru fjögur dæmi sem leggja áherslu á kristilega þjónustu.

Kynnist öðrum

Francisco Lázaro Campos de Sousa, Brasilíu

Á forsætisráðsfundi öldungasveitar fann ég löngun til að hitta meðlim sveitarinnar sem var ekki virkur, einhvern sem ég hafði ekki áður hitt. Dag einn, eftir að hafa verslað, fann ég hjá mér þörf til að fara heim til hans. Ég hikaði, en tilfinningin að hitta hann ágerðist. Ég kynnti mig og sagði ýmislegt sem kom upp í hugann. Ég sagði honum að Drottinn þarfnaðist hans og hann þarfnaðist Drottins.

Hann deildi sársauka sínum vegna einmanaleika og annarra erfiðleika. „Þú munt finna vini í sveitinni sem munu hjálpa þér og styðja,“ sagði ég við hann. Hann tók fúslega á móti boði mínu og sótti samkomur á hvíldardegi.

Ég þekkti hann ekki í fyrstu, en Drottinn gerði það og skynjaði hjarta hans. Sannfæring mín staðfestist. Þegar við þjónum börnum föður okkar og biðjumst fyrir til að þekkja þarfir þeirra, leiðir Drottinn okkur til þeirra. Við deilum þeirri gleðilegu reynslu að „[lyfta] máttvana örmum og [styrkja] veikbyggð kné“ (Kenning og sáttmálar 81:5).

Hafið samband

Ana Rodriguez Ramirez, Spáni

Dag einn í trúboði mínu fundum við félagi minn og ég þá hvatningu að heimsækja systur í deildinni. Við klipptum út pappírshjörtu og skrifuðum kærleiksrík skilaboð á þau til að minna hana á virði hennar.

Við komum heim til hennar og áttum von á að hún væri ekki heima. Þegar við vorum að festa upp pappírshjörtun, keyrði hún upp að húsinu. Ég og félagi minn reyndum að fela okkur til að þessi vinargreiði kæmi á óvart, en án árangurs. Hún sá okkur.

Systirin fór út úr bílnum með grátstokkið andlit. Hún faðmaði okkur að sér og sagði: „Þið tvær eruð englarnir mínir. Þið eruð alltaf til staðar þegar ég þarfnast ykkar mest. Þakka ykkur fyrir.“

Hún bauð okkur inn og sagði okkur frá löngum degi við að takast á við alvarlegar fjölskylduaðstæður. Við hlustuðum bara á hana. Við sögðum frá því hve mikið Guð elskaði hana og að hann væri meðvitaður um það sem hún væri að takast á við. Við lásum ritningarnar með henni og heimili hennar var fyllt heilögum anda þegar við fórum.

Lærisveinar Jesú Krists eru „[fúsir] til að … hugga þá, sem huggunar þarfnast“ (Mósía 18:9). Hann treystir okkur til að vera hluti af hans mikla verki – æðri og helgari þjónustu. Þegar við gefum okkur tíma til að kynnast fólki og hlusta á það, verðum við betur í stakk búin til að vera jarðneskir englar Guðs.

Verið fulltrúar frelsarans

Talia Rodríguez, Sviss

Bænin er óaðskiljanlegur hluti af kristilegri hirðisþjónustu. Bænin getur hafið leit okkar að því að vita hvern skal blessa. Hún getur hjálpað okkur að skilja vilja himins varðandi það hvernig blessa á. Bænin er líka lykilatriði í því að læra hvernig framfylgja á skyldu okkar.

Eiginmaður minn, Mario, þjáðist af Kóvid á fyrstu dögum sjúkdómsins fyrir bólusetningar. Biskupinn bað öldung í deild okkar, Moróní, að veita honum prestdæmisblessun.

Þar sem hann vildi ekki smitast af veirunni og dreifa henni til fjölskyldu sinnar, þurfti Moróní staðfestingu himins áður en lengra væri haldið. Hann kraup í bæn með eiginkonu sinni og beið eftir friðsælli fullvissu. Þegar þau fundu frið, sagði eiginkona hans við hann: „Farðu og notaðu alvæpni þitt, Moróní.“

Þegar hann kom inn á heimili okkar, sáum við stríðsmann Drottins. Eiginmaður minn grét gleðitárum þegar hann sá bróðurinn koma í hugrekki til að veita sér þá blessun sem hann þráði. Það var ólýsanleg upplifun.

Frelsarinn kom fyrir tilstuðlan okkar ástkæra bróður Morónís, sem lagði hendur sínar á höfuð Marios og blessaði hann, líkt og Kristur hefði gert.

Hjálpa þeim að hljóta blessanir sáttmála

Geiziane Morais Freitas Duarte, Brasilíu

Ég þjónaði eitt sinn systur sem hafði hætt að mæta í kirkju. Þegar ég heimsótti hana, miðlaði ég henni hve heitt frelsarinn elskaði hana og fjölskyldu hennar. Ég bauð þeim alltaf að koma í kirkju næsta sunnudag. Þetta stóð yfir í langan tíma, en þau komu aldrei. Ég var vonsvikin. Freistingin til að gefast upp var sterk. En í hvert sinn sem ég og félagi minn heimsóttum heimili þeirra, fengum við innsýn í himnaríki. Við sáum þau alltaf fyrir okkur í musterinu, hvítklædd. Við vissum að við yrðum að halda áfram að reyna.

Eftir margar bænir og heimsóknir, rann dagurinn loks upp – fjölskyldan kom í kirkju! Þau héldu áfram að koma aftur í hverri viku. Fjölskyldan lagði á sig mikla vinnu til að styrkja trú sína og komast á sáttmálsveginn. Það varð augljóst að fagnaðarerindið hafði styrkt þau.

Ég fékk loks boð um að vera með þeim við musterisinnsiglun þeirra. Þegar ég horfði á hina helgu athöfn, komst ég ekki hjá því að fella gleðitár. Þetta var kraftaverk.

Stundum langaði mig að gefast upp. En í hvert sinn sem ég heimsótti þau, sá ég musterið. Guð sýndi mér leiftursýn af áætlun sinni fyrir þessa fjölskyldu. Hann notaði mig sem verkfæri sitt til að halda sambandi við þau. Ég er þakklát honum fyrir að hafa sýnt mér hina sönnu sýn hirðisþjónustu.

Fylgja forskrift Krists

Gleði og kraft hirðisþjónustu er að finna þegar við verðum blessun í lífi einhvers og þjónum að hætti frelsarans. Aðalforseti Líknarfélagsins, Camille N. Johnson, kenndi: „Hvenær sem þið gerið eitthvað til að líkna öðrum – stundlega eða andlega – … færið þið þeim kærleika Jesú Krists. Ég ber vitni um að er þið gerið svo munuð þið blessuð með því að finna ykkar eigin líkn í honum.“

Við verðum líkari frelsaranum í þjónustu okkar, þegar við snúum okkur til Drottins eftir hjálp í þeirri viðleitni okkar. Við fylgjum innblæstri, kynnumst þeim sem við þjónum, biðjum fyrir þeim, hjálpum þeim að gera og halda sáttmála og höldumst staðföst í viðleitni okkar.

Þjónusta frelsarans – einn af öðrum – er góð fyrirmynd fyrir okkur sjálf (sjá 3. Nefí 11:15). Eins og öldungur Juan Pablo Villar, af hinum Sjötíu, hefur kennt: „Ef við fylgjum Jesú Kristi – meistaraþjóninum – og þjónum öðrum eins og hann myndi gera, mun hann styrkja okkur og efla. Með hirðisþjónustu okkar, getum við blessað líf annarra og fundið frið og gleði fyrir okkur sjálf.“

Heimildir

  1. Jeffrey R. Holland, „Vera með þeim og styrkja þau,“ aðalráðstefna, apríl 2018.

  2. Camille N. Johnson, „As His Covenant Daughters, We Are a Conduit which Jesus Christ Provides Relief“ (heimslæg trúarsamkoma Líknarfélagsins 2024), Gospel Library.

  3. Juan Pablo Villar, „We Follow the Master Minister,“ Liahona, okt. 2024, 13.