„Svar við hinni miklu spurningu: Hvað virðist ykkur um Krist?“ Líahóna, júlí 2025.
Kom, fylg mér
Svar við hinni miklu spurningu: Hvað virðist ykkur um Krist?
Hvaða máli skiptir það í næsta lífi hvernig við bregðumst við þessari spurningu?
Myndskreyting: David B. Chamberlain
Kafli 76 í Kenningu og sáttmálum sýnir kristsmiðaða sýn, þar sem öllum börnum Guðs er boðið að ígrunda hina djúpstæðu spurningu: „Hvað virðist ykkur um Krist?“ (Matteus 22:42). Öldungur Neal A. Maxwell (1926–2004), í Tólfpostulasveitinni, lagði áherslu á mikilvægi svars okkar og sagði: „Getum við svarað bæði með lífi okkar og tungu: ‚Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs‘? (Matteus 16:16.) Þangað til við getum það, mun hvað annað sem við segjum og gerum á endanum skipta litlu máli.“
Þegar Joseph Smith og Sidney Rigdon íhuguðu merkingu Jóhannesar 5:29, upplifðu þeir himneska sýn varðandi upprisu barna Guðs og dýrðarríkin sem þau hljóta, byggt á viðbrögðum þeirra við Jesú Kristi og hinu ævarandi fagnaðarerindi hans.
Hver er Jesús Kristur?
Sýnin sem lýst er í Kenningu og sáttmálum 76 leggur áherslu á mikilvægan sannleika um Jesú Krist:
-
„Drottinn er Guð og utan hans er enginn frelsari“ (vers 1).
-
Hann er „miskunnsamur og náðugur þeim, sem óttast [hann], og [hefur] unun af að heiðra þá, sem þjóna [honum] í réttlæti“ (vers 5).
-
„Hann kom í heiminn … til þess að bera syndir heimsins og helga heiminn og hreinsa hann af öllu óréttlæti — Svo að fyrir hann gætu allir þeir frelsast, sem faðirinn hafði falið honum á vald og gjört með honum“ (vers 41–42).
-
Jesús Kristur „leiddi til lykta þessa fullkomnu friðþægingu með því að úthella sínu eigin blóði“ (vers 69).
Sérstakt vitni
Joseph og Sidney bera djarflega vitni um raunveruleika og mikilvægi Jesú Krists:
„Hann lifir!
Því að við sáum hann, já, Guði til hægri handar, og við heyrðum röddina, sem bar vitni um, að hann er hinn eingetni föðurins –
Að með honum, fyrir hann, og af honum eru og voru heimarnir skapaðir, og íbúar þeirra eru getnir synir og dætur Guðs“ (vers 22–24).
Synir glötunarinnar
Jesús Kristur mun frelsa „alla nema [glötunarsynina]“ (Kenning og sáttmálar 76:44). Þeir hafa svarað spurningunni fyllilega: „Hvað virðist ykkur um Krist?“ með því að afneita heilögum anda og afneita og ögra Jesú Kristi og krafti hans eftir að hann hafði verið opinberaður þeim (sjá vers 43). Með þessu hafa þeir „krossfest hann innra með sér og smánað opinberlega“ (vers 35).
Jarðnesk dýrð
Hvernig svara þeir þessari spurningu sem eru í jarðneska ríkinu spurningunni: „Hvað virðist ykkur um Krist?“ Þeir kjósa að hafna fagnaðarerindinu og „[vitnisburðinum] um Jesú“ (Kenning og sáttmálar 76:82, 101) og þeir hafna boðorðum hans og eru „lygarar og töframenn, frillulífsmenn og hórkarlar“ (vers 103).
Engu að síður hljóta þeir upprisu og dýrðargráðu sem er „ofar öllum skilningi“ (vers 89). Þeir standast hið minnsta eitt lögmál jarðneska ríkisins (sjá Kenning og sáttmálar 88:36), sem krefst þess að allir „[beygi] kné sín og sérhver tunga [viðurkenni] hann, sem situr í hásætinu, alltaf og að eilífu“ (Kenning og sáttmálar 76:110).
Yfirjarðnesk dýrð
Hvernig svara þeir spurningunni sem eru í yfirjarðneska ríkinu: „Hvað virðist ykkur um Krist?“ Þótt þeir hafi „[vitnisburð] um Jesú,“ eru þeir „ekki … hugdjarfir“ í honum; „Þess vegna hljóta þeir ekki kórónu Guðs ríkis“ (vers 79). Þeir eru blessaðir með að „meðtaka af návist sonarins, en ekki af fyllingu föðurins“ (vers 77).
Jesús Kristur og hans ævarandi fagnaðarerindi skora ekki bara á okkur að vita, heldur líka að gera og verða. Til að hljóta fyllingu föðurins og sonarins, verður maður að taka á móti helgiathöfnum musterisins og vera trúr þeim sáttmálum. Spámaðurinn Joseph Smith útskýrir: „Ef menn hljóta fyllingu prestdæmis Guðs, verða þeir að hljóta hana á sama hátt og Jesús Kristur hlaut hana, og það var með því að halda öll boðorðin og hlíta öllum helgiathöfnum húss Drottins.“ Yfirjarðneskar verur vilja ekki taka á móti fyllingu föðurins.
Himnesk dýrð
Hvernig svara þeir spurningunni sem eru í himneska ríkinu: „Hvað virðist ykkur um Krist?“ Þeir meðtaka „[vitnisburðinn] um Jesú“;.Þeir trúa „á nafn hans;“ þeir eru „skírðir í líkingu við greftrun hans, greftraðir í vatninu í hans nafni“ (vers 51). Þeir halda „boðorðin [svo þeir] gætu laugast og hreinsast af öllum syndum sínum og meðtekið hinn heilaga anda með handayfirlagningu þess, sem vígður er og innsiglaður þessu valdi“ (vers 52). Þeir „sigra fyrir trú [á Drottinn Jesú Krist] og eru innsiglaðir heilögum anda fyrirheitsins“ (vers 53). Þeir eru „fullkomnir gjörðir fyrir Jesú, meðalgöngumann hins nýja sáttmála, sem leiddi til lykta þessa fullkomnu friðþæginu með því að úthella sínu eigin blóði“ (vers 69).
Jesús Kristur skilur hlutverk sitt í hamingjuáætlun himnesks föður: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig“ (Jóhannes 14:6). Enginn tekur á móti himneskri dýrð eða fyllingu föðurins, án þess að taka á móti öllu því sem frelsarinn býður með friðþægingu sinni (sjá Kenning og sáttmálar 84:37–38): Kærleika hans, krafti, miskunn, góðvild, þjónum hans, réttvísi, boðorðum, helgiathöfnum og sáttmálum.
Russell M. Nelson forseti lagði áherslu á hlutverk kirkju Jesú Krists við að hjálpa börnum Guðs að meðtaka eilíft líf: „Hið viðvarandi ætlunarverk kirkjunnar er að hjálpa öllum meðlimum að styrkja eigin trú á Drottin Jesú Krist og friðþægingu hans, hjálpa þeim að gera og halda sáttmála við Guð og styrkja og innsigla fjölskyldur þeirra.“
Russell M. Nelson forseti hefur hvatt okkur til að gera himneska ríkið að eilífu markmiði okkar og „íhuga svo vandlega til hvaða staðar ákvarðanir [okkar] hér á jörðu munu leiða [okkur] í næsta heimi.“ Með því að svara þessu boði verðum við undir það búin að svara hinni mikilvægu spurningu: „Hvað virðist ykkur um Krist?“
Sýnin um dýrðargráðurnar fullvissar okkur ekki einungis um að sjálfræðið sé raunverulegt, heldur einnig að valkostirnir skipti sannlega máli. Það minnir okkur líka á, að vegna Jesú Krists, erum við „endurleyst frá fallinu“ og „höfum orðið frjáls að eilífu … að velja frelsi og eilíft líf fyrir atbeina hins mikla meðalgöngumanns allra manna, eða velja helsi og dauða“ (2. Nefí 2:26–27). Hvað munum við velja? Framtíð okkar í þessu lífi og okkar eilífu örlög eru jafn björt og trú okkar á Jesú Krist er.