„Félagafundur: Skapa meðvitað hamingju í hjónabandi,“ Líahóna, júlí 2025.
Félagafundur: Skapa meðvitað hamingju í hjónabandi
Félagar, eins og trúboðar, geta hagnýtt sér félagafund til að bæta samband sitt.
Þegar ég var ungur háskólanemi í friðar- og ágreiningsfræðum, hafði ég mikinn áhuga á öllum aðferðum sem hægt væri að nota við lausn deilumála. Samtal sem ég átti við vin minn hafði umbreytandi áhrif á líf mitt og kynnti mig fyrir ferli sem ég hafði aldrei heyrt talað um áður: Félagafund.
Vinur minn sagði mér frá trúboði sínu og sagði mér að félagafundir væru reglubundnir fundir þar sem trúboðsfélagar ræða samstarf sitt og hvernig gera má betur. Vini mínum hafði fundist ferlið svo gagnlegt sem trúboði að hann einsetti sér að nota það í hjónabandi sínu einhvern daginn. Hugmyndin risti djúpt í hjarta mínu. Ég las um félagafund í Boða fagnaðarerindi mitt og talaði við aðra heimkomna trúboða um upplifun þeirra af því. Ég sá hvernig hægt væri að nota félagafund, svipað og fjölskyldufund, til að takast á við og koma í veg fyrir mörg skaðleg ágreiningsmál sem við stöndum frammi fyrir í samböndum okkar í dag.
Ég og eiginmaður minn, James, hófum að halda vikulega félagafundi áður en við giftum okkur. Ég man enn eftir fyrsta fundinum okkar. James var svo opinn, vingjarnlegur, skilningsríkur og fús til að taka mark á hugsunum mínum, að ég hafði fulla trú á getu okkar til að byggja upp hamingjuríkt hjónaband.
Við höfum nú haldið í þá venju að halda vikulega félagafundi. Þótt samband okkar sé ekki fullkomið, þá erum við bæði sammála um að þeir mörgu fundir sem við höfum haft saman hafi hjálpað okkur að finna dýpri gleði og fyllingu í hjónabandi okkar en við héldum að væri mögulegt.
Sjá hið ólíka í okkur sem tækifæri
Guð skapaði heim sem hann aðgreindi ítrekað og gerði fjölbreyttan og „sá að það var gott“ (1. Mósebók 1:10, 12, 18, 21, 25). Þessi fallega fjölbreytni er einn þáttur sem hefur áhrif og leiðir til margvíslegrar reynslu og sjónarmiða meðal barna Guðs. Þó það geti verið ógnvekjandi að átta sig á því að jafnvel skuldbundnir hjónabandsfélagar geti haft mjög mismunandi skoðanir um mikilvæg málefni, þurfum við ekki að óttast Með frelsarann sem fyrirmynd, getum við valið að nálgast þennan mismun á kærleiksríkan, skapandi og uppbyggilegan hátt sem leiðir til fullkomnari lausna og hamingjusamari sambanda.
Þegar við eigum samskipti við hvort annað á þennan æðri og helgari hátt, skiljum við að engin þörf er á þrætum eða óvirku samþykki á skoðunum hvors annars, að eindrægni jafnast ekki á við einsleitni. Með æfingu mun hið ólíka í okkur verða að tækifærum til að tengjast, fremur en að vera vegatálmar. Í stað deilna mun koma samvinna, traust og ástúð.
Félagafundur, fylltur kristilegum kærleika, getur hjálpað ykkur að breyta ágreiningi í blessun í ykkar eigin sambandi. Hér eru fjórar ábendingar sem hjálpa ykkur að byrja.
Halda ykkar eigin félagafund
1. Skuldbinda sig
Íhugið að ákveða í sameiningu að bæta samband ykkar með því að halda félagafundi reglubundið, jafnvel þó aðeins sé um að ræða prufukeyrslu í ákveðinn tíma. Ferlið mun ekki virka vel án fullrar þátttöku beggja aðila.
2. Búa til dagskrá
Samband ykkar hefur einstaka styrkleika, galla og þarfir. Með það í huga, skuluð þið bera kennsl á þau atriði sem mikilvægt er að ræða á félagafundi ykkar, svo sem nánd, uppeldisaðferðir, áætlanir eða fjármál.
Með því að gefa þessum málefnum fastan sess í dagskrá ykkar, munið þið gefa rými fyrir hugsanir og tilfinningar sem annars gætu aðeins komið upp á yfirborðið á augnabliki gremju eða kannski alls ekki.
3. Skipuleggja ákveðinn tíma og vera tilbúin
Íhugið að taka frá ákveðinn tíma fyrir félagafund ykkar. Ákveðið hvað virkar best fyrir ykkur og einsetjið ykkur síðan að vera þar, reiðubúin að hlusta af samkennd, miðla hreinskilnislega og sýna góðvild. Þið gætuð einnig viljað skrá skriflega skýrslu um félagafund ykkar. Ábendingar okkar frá fyrri viku eru gagnlegar fyrir okkur þegar við undirbúum okkur fyrir komandi fund.
Að glósa, hjálpar ykkur líka að muna eftir – með orðum Spencer W. Kimball forseta (1895–1985) – „sigrum ykkar á mótlæti, bata eftir fall, framförum ykkar þegar allt virtist svart, [og] fögnuði ykkar þegar þið [náið árangri].“ Ég og James erum þakklát fyrir að hafa skráð þá rúmlega 800 félagafundi sem við höfum haldið í gegnum árin. Hve dásamlegt það er að líta til baka og sjá hversu langt við höfum náð!
4. Vera staðföst
Félagafundir geta verið óþægilegir eða ógnvekjandi í fyrstu, en það verður auðveldara með æfingunni. Með því að kanna stöðuna reglulega munuð þið og maki ykkar átta ykkur á litlu málunum áður en þau verða að stórum vandamálum.
Það er kaldhæðnislegt að eitt sársaukafyllsta rifrildi sem ég og James höfum nokkurn tíma átt, átti sér stað á félagafundi. Rifrildið stigmagnaðist hratt og óvænt fram yfir punkt skynsamlegra samræðna og við sátum bæði eftir sár. En þessi sársaukafullu átök sem hófust á félagafundi voru líka leyst á félagafundi. Við vissum að við myndum fá annað tækifæri í næstu viku og þar næstu.
Eftir að hafa ígrundað og jafnað okkur í viku, reyndum við aftur og að lokum leystum við skoðanamuninn. Ég fann greinilega fyrir „persónulegum friði og mikilli aukningu andlegs skriðþunga.“ sem okkur er lofað þegar við leysum úr ágreiningi að hætti frelsarans. Sérhver átök sem við leysum með hugmyndaauðgi og kærleika, munu knýja okkur áfram og bjóða upp á frekari áhrif heilags anda í samböndum okkar.
Það kunna að koma tímar þar sem ykkur líður eins og það sé enginn ágreiningur í sambandi ykkar, svo þið gætuð freistast til að sleppa félagafundinum. Ég og eiginmaður minn höfum ákveðið að gera það ekki. Á þeim stundum getur félagafundur verið hrein gleði – þegar við ræðum um það sem gengur vel, hlæjum saman, miðlum djúpum hugsunum og búum til minningar.
Loforðið
Himneskur faðir gerði sérhvert okkar einstakt og skipulagði okkur síðan í sambönd. Hann ætlast til þess að við leysum ágreining okkar, ekki með deilum (sjá 3. Nefí 11:29), heldur með hinni hreinu ást Jesú Krists, því hann veit að það mun færa okkur nær hvert öðru og nær honum (sjá Matteus 5:9; Moróní 7:48).
Russell M. Nelson forseti hefur gefið okkur eftirfarandi áskorun með loforði: „Við skulum sýna að til er friðsamleg, lofsverð leið til að leysa flókin mál og upplýsandi leið til að vinna úr ágreiningi. Þegar þið sýnið þann kærleika sem einkennir hina sönnu fylgjendur Jesú Krists, mun Drottinn efla viðleitni ykkar umfram ykkar háleitustu ímyndun.“
Við getum haldið áfram á sáttmálsveginum, fullviss um þessi orð okkar ástkæra spámanns. Við getum leyst ágreining okkar með hugmyndaauðgi og samúð, með „hjörtu [okkar] … tengd böndum einingar og elsku hver til annars“ (Mósía 18:21).