2025
Vaggað í svefn af Drottni
Júlí 2025


„Vaggað í svefn af Drottni,“ Líahóna, júlí 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Vaggað í svefn af Drottni

Guð hjálpaði við að róa son okkar og hugga mig þegar við þörfnuðust þess mjög mikið.

teikning af sofandi barni tengt við heilalínurit

Myndskreyting: David Malan/Malan Creative

Þegar fyrsta barnið okkar, Caden, var 10 mánaða gamalt, skildum ég og eiginmaður minn David, hann eftir í umsjá foreldra minna í fyrsta skipti. Við fórum út að borða og fórum svo í kvikmyndahús. Þegar við höfðum fengið okkur poppkorn og sest niður, hringdi mamma.

Barnið okkar andaði ekki og sjúkrabíll var á leiðinni!

Við keyrðum heim í ofboði og hlupum inn til að sjá Caden í fangi móður minnar, brosandi til sjúkraliðanna. Honum leið vel, en hann hafði fengið flogakast.

Læknar gátu ekki ákvarðað orsök flogakastsins eða tveggja síðari floga, en þeir ávísuðu lyfjum til að hjálpa. Þar sem ég var móðir í fyrsta sinn var ég niðurbrotin. Caden virtist allt í lagi, en reynslan hristi upp í trú minni. Ég varð undirlögð af streitu og áhyggjum.

Tveimur árum síðar mælti taugasérfræðingur með því að framkvæma heilarafritun (EEG) á Caden, próf sem myndi mæla heilastarfsemi hans á meðan hann væri sofandi. Ef niðurstöðurnar litu vel út gæti hann hætt að taka flogalyf.

Ég hafði áhyggjur af prófinu vegna þess að Caden hafði hætt að taka blund ári fyrr. Hvernig gætum við fengið hann til ađ sofna á annríkri læknastofu með rafskaut á höfðinu?

Kvöldið fyrir prófið veitti David Caden prestdæmisblessun. Þegar blessunin hófst, fann ég fyrir sterkri nærveru andans. Ég vissi að allt myndi ganga vel. Það var í fyrsta sinn eftir fyrsta flogakastið sem ég skynjaði frið.

Daginn eftir festu læknar rafskaut við höfuð Caden. Svo lögðum við hann á bekkinn og slökktum ljósin.

Hann var sofnaður eftir nokkrar mínútur. Þetta kann ekki að virðast kraftaverk, en hann hafði ekki fengið sér blund í rúmt ár.

Himneskur faðir hafði ekki gleymt okkur. Andi hans var þarna á skrifstofu læknisins, róaði Caden og huggaði mig. Viðhorf mitt til prófrauna og prestdæmisblessana breyttist þennan dag. Ég veit að kraftur prestdæmisins er raunverulegur.

Caden er nú ungur fullorðinn. Hann hefur ekki fengið flog síðan hann var smábarn. Hann hefur tekist á við aðrar áskoranir en sigrast á flestum þeirra. Ég veit að Drottinn heldur áfram að vaka yfir honum og draga úr ótta mínum (sjá Lúkas 8:50).