2025
Trú systur Muñoz
Júlí 2025


„Trú systur Muñoz,“ Líahóna, júlí 2025.

Frá Síðari daga heilögum

Trú systur Muñoz

„Kraftaverk! Kraftaverk!“ hrópaði drengurinn þegar hann hljóp niður götuna.

mynd af unglingspilti sem nálgast tvo trúboða

Myndskreyting: David Malan/Malan Creative

Árið 1967 urðum ég og öldungur William Danner tveir af fyrstu 20 trúboðunum sem þjónuðu í Kólumbíu. Okkur gekk ekki vel, þar til maður að nafni Raúl, sem naut kennslu annarra trúboða, kynnti okkur fyrir Muñoz-fjölskyldunni. Andinn var sterkur þegar við kenndum fjölskyldunni og bárum vitni um spámanninn Joseph Smith og endurreisnina.

„Ég veit að þessir ungu menn eru að segja satt,“ sagði Raúl. Þeir hafa sama prestdæmið og Jesús Kristur hafði. Þeir gætu farið upp núna og læknað blindu dóttur þína, Margarítu.“

Systir Muñoz leit á mig og spurði: „Er þetta satt?“

Ég fékk kökk í hálsinn. Vitnisburður minn hafði aldrei verið reyndur á þennan hátt áður. Ég vissi að slíkt kraftaverk myndi krefjast sterkrar trúar. Ég og félagi minn komumst síðar að því að augnsérfræðingar höfðu sagt fjölskyldunni að Margarita, sem hafði misst sjón sex mánuðum áður, er hún lenti í slysi, myndi aldrei sjá aftur.

„Þú hefur sama prestdæmi og Jesús Kristur,“ sagði systir Muñoz. „Dóttir mín er blind. Við skulum fara upp og lækna hana.“

Ég hafði aldrei orðið vitni að jafn mikilli trú. Hún var eins og eiginkona Lamonís konungs, sem sagði við Ammon: „Ég trúi … að svo verði sem þú mælir“ (Alma 19:9).

Öldungur Danner smurði Margarítu og ég innsiglaði smurninguna. Mér til undrunar voru orðin sem út úr munni mínum komu ekki mín eigin: „Þú munt læknast og fá sjón þína.“ Mér fannst ég líka þurfa að veita þeim fleiri blessanir, þar með talið að fjölskyldumeðlimir myndu hjálpa við uppbyggingu kirkjunnar í Kólumbíu. Ég velti því fyrir mér í kjölfarið hvort ég hefði gefið loforð sem yrðu ekki uppfyllt.

Daginn eftir kom sonur fjölskyldunnar hlaupandi eftir götunni til okkar og hrópaði: „Kraftaverk! Kraftaverk! Systir mín getur séð!“

Við skírðum 13 manns þá vikuna.

Bróðir og systir Muñoz urðu trúfastir meðlimir kirkjunnar. Áhrif þeirra, þar á meðal starf bróður Muñoz sem tollstjóra í Kólumbíu, stuðluðu að útbreiðslu fagnaðarerindisins þar. Ein dóttirin þjónaði í trúboði, bróðir hennar þjónaði sem biskup. Margarita hélt sjón sinni til æviloka.

Jesús Kristur hefur sagt um þá sem trúa á hann: „Í mínu nafni munu þeir ljúka upp augum hins blinda“ (Kenning og sáttmálar 84:69). Ég veit að „sá getur allt sem trúir“ á frelsarann (Markús 9:23).