„Miðla góðu tíðindunum,“ Barnavinur, mars 2026, 36–37.
Miðla góðu tíðindunum
Sönn saga frá Kenía.
Einn bjartan páskasunnudag vaknaði Ryan snemma og hljóp inn í eldhús. Hann fann lyktina af kókoshnetunni og kryddinu frá mahamri-réttinum sem mamma var nýbúin að búa til. Ryan tók bita af einum af hlýju, dúnkenndu þríhyrningskleinuhringjunum. „Mamma! Það eru páskar! Getum við horft á bíómyndina um Jesú í dag?“ spurði hann skælbrosandi.
Mamma horfði á hann og brosti. „Auðvitað!“
Liam, litli bróðir Ryans, hljóp út á meðan mamma og Ryan settust niður til að horfa á bíómyndina.
Þeir sáu Jesú Krist gera kraftaverk og þjóna fólki. Þegar fólkið síðan særði Jesú, fylltust augu Ryans tárum.
„Mamma, af hverju gerðu þeir Jesú þetta?“ spurði hann dapur.
„Hann valdi að þjást fyrir okkur,“ sagði mamma. „Hann elskar okkur svo mikið, Ryan. Hann dó svo við getum lifað aftur.“
Þegar kvikmyndin sýndi upprisu Jesú Krists, brosti Ryan. „Sjáðu, mamma! Hann er lifnaður aftur!“
„Það er rétt,“ sagði mamma. Hann er upp risinn! alveg eins og engillinn sagði í Biblíunni.“
Seinna fór Ryan út að leika. Hann sá Liam leika sér með prik undir mangótrénu.
„Liam! Mig langar að segja ykkur flotta sögu,“ sagði Ryan.
Liam beið á meðan Ryan settist undir mangótréð. „Er hún um bíla?“
„Nei. Enn betra!“ Sagði Ryan. „Hún er um Jesú. Hann dó, en svo lifnaði hann við.“
„Í alvöru?“ spurði Liam.
„Já! Engill sagði: Hann er ekki hér, hann er upp risinn! Það þýðir að við getum líka lifað aftur.“
„Vá!“ sagði Liam. „Jesús er vissulega sterkur.“
Ryan kinkaði kolli. Hann hugsaði til þess hve heitt Jesús elskaði hann. Það veitti honum gleði og fyllingu hjartans. Hann hafði sagt fjölskyldu sinni frá gleðitíðindunum og það gerði páskana enn sérstakari.
Myndskreyting: Margarida Esteves. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.