Barnavinur
Páskaleikur
Mars 2026


„Páskaleikur,“ Barnavinur, mars 2026, 16–23.

Páskaleikur

Þið getið haft þessa dagskrá með fjölskyldu ykkar og vinum til að segja páskasöguna. Þið getið jafnvel klætt ykkur eins og fólk klæddi sig í Jerúsalem á meðan frelsarinn lifði.

Þegar þið leikið dagskrána, ímyndið ykkur þá hvernig það væri, ef þið væruð þar með Jesú. Hvernig liði ykkur? Eftir dagskrána, ræðið um það sem þið lærðuð og skynjuðuð.

Þáttur 1

Pálmasunnudagur

Lærisveinarnir standa í röð og mynda stíg fyrir myndahaldarann og veifa pálmalaufum sínum.

Sögumaður: Sunnudaginn áður en Jesús Kristur dó, kom hann til Jerúsalem á ösnu. „Þegar Jesús var að koma hóf allur flokkur lærisveina hans að lofa Guð fagnandi hárri raustu fyrir öll þau kraftaverk, er þeir höfðu séð.“

Myndahaldarinn gengur eftir veginum og heldur á mynd (Jesús Kristur á asnanum). Lærisveinarnir hrópa „hósanna!“ nokkrum sinnum þegar þeir veifa pálmalaufunum.

Lærisveinn 1: „Blessaður sé konungurinn sem kemur í nafni Drottins. Friður á himni og dýrð í hæstum hæðum!”

Sögumaður: „Þegar Jesús kom inn í Jerúsalem varð öll borgin í uppnámi og menn spurðu: „Hver er hann?“”

Lærisveinn 2: „Það er spámaðurinn Jesús frá Nasaret í Galíleu“

Allir syngja þriðja versið í „Beautiful Saviour“ (Children´s Songbook, 62–63).

Þáttur 2

Síðasta kvöldmáltíðin

Sögumaður: Á fimmtudegi kom Jesús Kristur saman með lærisveinum sínum og gaf þeim sakramentið.

Myndahaldarinn heldur á mynd 2 (Jesús við síðustu kvöldmáltíðina). Lærisveinarnir sitja og horfa á myndina af Jesú.

Sögumaður: „Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það, gaf þeim og sagði: „Takið, þetta er líkami minn.““

Lotningarfullur heldur einn lærisveinanna brauðinu á lofti.

Sögumaður: „Og Jesús tók kaleik, gerði þakkir og gaf þeim og þeir drukku af honum allir. Og hann sagði við þá: „Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga.““

Lotningarfullur heldur einn lærisveinanna bikarnum á lofti.

Sögumaður: Jesús kenndi þeim líka nokkuð mikilvægt. Hann sagði „Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað. … Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“

Allir syngja „Elskið hver annan“ (Barnasöngbókin, 117).

Þáttur 3

Getsemanegarðurinn

Sögumaður: „Þá kemur Jesús með þeim í garð er heitir Getsemane og hann segir við lærisveinana: „Setjist hér meðan ég fer og biðst fyrir þarna.““

Lærisveinarnir sitja saman öðru megin á sviðinu. Myndahaldarinn stendur hinum megin á sviðinu og heldur uppi mynd 3 (Jesús biðst fyrir í garðinum).

Sögumaður: „Þá gekk Jesús lítið eitt lengra, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: „Faðir minn, ef verða má þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil heldur sem þú vilt.““

Lærisveinarnir leggjast niður og þykjast vera sofandi.

Sögumaður: Lærisveinar hans sofnuðu á meðan frelsarinn baðst fyrir. Jesús þjáðist einn í garðinum. Hann upplifði allan okkar sársauka og sorg, svo hann gæti skilið okkur og hjálpað. Hann þjáðist til að greiða gjaldið fyrir syndir okkar.

Allir syngja „Gethsemane (Hymns—For Home and Church, nr. 1009, ísl. þýðing til).

Þáttur 4

Krossinn

Sögumaður: Eftir að Jesús hafði lokið bæn sinni, tóku hermenn hann burtu og bundu hann. Þótt hann hefði ekkert gert af sér, ákváðu leiðtogarnir að taka hann af lífi.

Myndahaldarinn heldur á lofti mynd 4 (frelsarinn á krossinum). Lærisveinarnir krjúpa í kring og horfa upp á myndina.

Sögumaður: Þegar hann hékk á krossinum, sagði Jesús: „Faðir, fyrirgef þeim. Því að þeir vita ekki, hvað þeir gera.“ Jafnvel mitt í þessum mikla sársauka, var hann fullkomin fyrirmynd um elsku og fyrirgefningu.

Allir syngja „Ég græna hæð í huga lít” (Sálmar, nr. 68).

Þáttur 5

Gröfin

Sögumaður: Eftir að Jesús Kristur dó, lá líkami hans í gröf í þrjá daga. Á þriðja degi komu María Magdalena og aðrar konur til að vitja grafarinnar. „Þær sáu þá, að steininum hafði verið velt frá gröfinni, … og þegar þær stigu inn, fundu þær ekki líkama Drottins Jesú.

María og konurnar ganga daprar á sviðinu og líta í kringum sig, illa áttaðar.

Sögumaður: Tveir englar birtust og töluðu við konurnar.

Engill 1 og engill 2 stíga á sviðið við hlið Maríu.

Engill 1: „Þið skuluð eigi óttast. Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta.“

Angel 2: „Hann er ekki hér, hann er upp risinn.“

Sögumaður: „Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.“

María og konurnar hlaupa glaðar af sviðinu til að deila gleðitíðindunum með öllum.

María: Hann er upp risinn! Jesús Kristur lifir!

Myndahaldarinn heldur á lofti mynd 5 (Kristur upprisinn). Allir snúa aftur á sviðið.

Sögumaður: Frelsari okkar reis upp aftur á páskadagsmorgni. Vegna hans hefur allt breyst. Við getum átt von, frið og hamingju. Hann er með okkur í dag og ævinlega, vegna þess að hann lifir.

Allir syngja „Jesús er risinn“ (Barnavinur, apríl 2025, 18–19).

PDF-síða með myndskreytingu af börnum klæddum biblíuklæðum og haldandi á pálmalaufum

Myndskreyting: Róisín Hahessy. Málverk eftir Dan Burr Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.

  1. Lúkas 19:37

  2. Lúkas 19:38

  3. Matteus 21:10

  4. Matteus 21:11

  5. Markús 14:22

  6. Markús 14:23-24

  7. Jóhannes 13:34–35

  8. Matteus 26:36

  9. Matteus 26:39

  10. Lúkas 23:34

  11. Lúkas 24:2–3

  12. Matteus 28:5

  13. Matteus 28:6

  14. Matteus 28:8