Barnavinur
Því svo elskaði Guð heiminn
Mars 2026


„Því svo elskaði Guð heiminn,“ Barnavinur, mars 2026, 2–3.

Frá forsætisráði Barnafélagsins

Því svo elskaði Guð heiminn

Himneskur faðir elskar okkur svo mikið að hann sendi son sinn, Jesú Krist, til að hjálpa okkur að snúa aftur til sín.

Jesús vissi að við myndum upplifa sorg, sársauka og einmanaleika í lífi okkar. Við myndum gera mistök og jafnvel vera hrædd stundum. Í Getsemanegarðinum valdi Jesús Kristur að skynja allt þetta svo hann gæti skilið og liðsinnt okkur fullkomlega. Hann greiddi líka fyrir syndir okkar svo við gætum iðrast. (Sjá Alma 7:11–13.)

Jesús vissi líka að þegar tíminn kæmi myndum við öll deyja. Dauðinn er náttúrulegur og eðlilegur hluti af lífinu. En Guð vildi ekki að dauðinn yrði endir sögunnar. Vegna þess að Jesús Kristur gaf líf sitt og reis upp, munum við öll lifa aftur líka. Þess vegna valdi hann að deyja fyrir okkur.

Við köllum það sem frelsarinn gerði friðþægingu Jesú Krists. Þessi helga gjöf var gefin okkur af kærleika. Hafið hugfast að Guð elskaði heiminn svo heitt að hann sendi son sinn Jesú Krist (sjá Jóhannes 3:16). Jesús elskaði okkur líka svo heitt að hann gaf líf sitt svo að við gætum snúið aftur til að búa á ný hjá Guði.

Páskarnir snúast um elsku

Hversu oft getið þið fundið orðið elska eða elskað í þessum versum? Skrifið fjöldann eftir hverja ritningargrein og leysið síðan reikningsdæmið. Þegar þið fáið svarið, reynið þá að gera það margt til að miðla öðrum elsku Jesú.

Jóhannes 3:16

+

Jóhannes 13:34

+

Efesusbréfið 5:2

-

Jóhannes 15:13

-

Rómverjabréfið 8:35, 37

=

PDF-síða af Jesú Kristi að hugga tvær konur, auk ritningarstærðfræðiverkefnis