Barnavinur
Vikuleg ritningarskemmtun
Mars 2026


„Vikuleg ritningarskemmtun,“ Barnavinur, mars, 2026, 28-29.

Kom, fylg mér

Vikuleg ritningarskemmtun

23. febrúar–1. mars

Fyrir Fyrstu Mósebók 18–23

Þolinmæði og tímasetning Guðs

Sálmur: „Elska Guðs umlykur” (Sálmar – Fyrir heimili og kirkju, nr. 1013)

Ritning: 1. Mósebók 15:3–6; 21:1–3.

Verkefni: Abraham og Sara þurftu að sýna þolinmæði og bíða lengi áður en Guð blessaði þau með barni. Þið getið líka verið þolinmóð. Vefjið leikfangi eða nammi í nokkur lög af pappír. Opnið svo umbúðirnar eitt lag í einu í hvert sinn sem þið lesið vers í ritningunum hér að ofan í sögu Abrahams og Söru. Þegar þið eruð búin, ræðið þá hvernig blessanir koma stundum ekki samstundis. Þegar við erum þolinmóð og treystum Guði, munu blessanir hans alltaf koma.

Farið með bæn:

Stjórnið söngnum:

Lesið ritningarversin

Kennið lexíuna:

2.–8. mars

1. Mósebók 24–33

Góðvild

Sálmur: „Elsku og ást get gefið” (Sálmar – Fyrir heimili og kirkju, nr. 1019)

Ritning: 1. Mósebók 24:17–20

Verkefni: Rebekka var gæskurík. Hún gaf ókunnugum manni og úlföldum hans vatn. Farið í góðvildarleit! Gangið um heimili ykkar eða nágrenni og leitið leiða til að sýna góðvild. Sýnið síðan góðvild!

Farið með bæn:

Stjórnið söngnum:

Lesið ritningarversin

Kennið lexíuna:

9.–15. mars

1. Mósebók 37–41

Drottinn hjálpar fólki sínu

Sálmur: „Jesú Krist, kærleiks Guð, trúi á” (Sálmar – fyrir heimili og kirkju, nr. 1024)

Ritningar: 1. Mósebók 37:2–5, 18–21, 26–28; 39:20–23

Verkefni: Lesið ritningarnar um sögu Jósefs eða horfið á myndbandið í Sögur úr Gamla testamentinu. Litið síðan skykkju hans á næstu síðu! Kastið teningi fyrir hvern ferning. Hvaða tölu sem þið lendið á, notið litinn til að fylla í næsta ferning. Hvernig hjálpaði Drottinn Jósef? Hvernig hjálpar hann ykkur?

Farið með bæn:

Stjórnið söngnum:

Lesið ritningarversin

Kennið lexíuna:

Drottinn hjálpar fólki sínu–verkefni

16.–22. mars

Fyrir 1. Mósebók 42-50

Jesús Kristur frelsaði mig

Sálmur: Ég veit hann elskar mig heitt” (Sálmar – Fyrir heimili og kirkju, nr. 1021)

Ritningar: 1. Mósebók 47:12 og Jóhannes 6:35

Verkefni: Jósef bjargaði fjölskyldu sinni frá hungri og fyrirgaf bræðrum sínum. Saga hans getur minnt okkur á það hvernig Jesús Kristur frelsar og fyrirgefur okkur líka. Lærið hvernig Jesús frelsaði okkur með því að lesa páskaboðskapinn á bls. 2.

Farið með bæn:

Stjórnið söngnum:

Lesið ritningarversin

Kennið lexíuna:

23.–29. mars

2. Mósebók 1–6

Drottinn er Guð kraftaverka

Sálmur: „Ei tölu hef öllum þeim á“ (Sálmar – Fyrir heimili og fjölskyldu, nr. 1029)

Ritning: 2. Mósebók 2:2–10.

Verkefni: Móðir Móse setti ungbarnið Móse í körfu og faldi það nálægt fljóti, svo það væri öruggt! Búið til litla körfu úr efniviði frá heimilum ykkar. Þið gætuð notað föndurprik, pappír eða jafnvel ávexti eða grænmeti. Prófið síðan að láta körfuna fljóta í dálitlu vatni. Lesið ritningarversin hér að ofan og ræðið um það hvernig Drottinn hjálpaði Móse. Kraftaverk Guðs vernduðu Móse!

Farið með bæn:

Stjórnið söngnum:

Lesið ritningarversin

Kennið lexíuna:

PDF síða með myndskreytingum af Abraham, Söru og barnungum Ísak

Myndskreyting: Audrey Day. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.