Barnavinur
Spámaðurinn Móse
Mars 2026


„Spámaðurinn Móse,“ Barnavinur, mars 2026, 46–48.

Kom, fylg mér

Spámaðurinn Móse

Móse í egypskum klæðum horfir á Egypta fara illa með ísraelskan þræl

Móse var Ísraelsmaður en dóttir faraós ól hann upp í Egyptalandi. Móse var dapur yfir því að Egyptar voru vondir við Ísraelsmenn og gerðu þá að þrælum sínum.

Móse heldur utan um ísraelskan þræl og styður hann

Dag einn sá Móse Egypta slá Ísraelsmann. Móse kom Ísraelsmanninum til varnar.

Móse einn í óbyggðunum

Þegar faraó komst að þessu ætlaði hann að drepa Móse, en Móse flúði Egyptaland.

Móse með eiginkonu sinni og börnum

Móse kom til staðar sem hét Midían, þar hitti hann konu sem hét Sippóra. Þau giftu sig og eignuðust börn.

Móse sér Drottin inni í logandi runnanum

Þegar Móse bjó í Midían sá hann logandi runna, en runninn brann þó ekki. Drottinn birtist í logunum og talaði til Móse.

Drottinn talar við Móse

Drottinn sagðist vita að Ísraelsmenn þjáðust í Egyptalandi. Hann bauð Móse að snúa aftur til Egyptalands og segja faraó að sleppa Ísraelsmönnum lausum. Drottinn sagði að hann myndi hjálpa Móse að frelsa Ísraelsmenn og leiða þá til fyrirheitins lands.