„Margo og Paulo,“ Barnavinur, janúar 2026, 26–27.
Margo & Paulo
Nýjar hefðir
Vei! Loksins fá þau páskaegg! Get ég fengið eitt? Geeerðu það?
Ekki í dag. Þú færð eitt um páskana.
Mig langar að prófa nýjar páskavenjur á þessu ári.
Ó, eins og hvað?
Júlía, vinkona okkar, sagði að fyrir páska fastaði hún í 40 daga eins og Jesús gerði.
Borðar hún ekki í 40 DAGA?
Hún hættir líklega bara að gera eitthvað sem hún hefur gaman af – eins og að spila tölvuleiki eða borða súkkulaði.
Hvað? Ekkert SÚKKULAÐI?
Sumir færa slíkar fórnir til að minnast Jesú um páskana.
Þarf ég líka að hætta að borða súkkulaði?
Það eru margar aðrar leiðir til að minnast frelsarans á páskum.
Ó! Munið þið eftir páskunum okkar í Hollandi?
Ó, já. Bálkösturinn minnti okkur á að ljós Jesú Krists sigrar myrkrið.
Ég er viss um að vinir okkar um allan heim fylgja mörgum frábærum hefðum. Við skulum skrifa þeim!
Við ættum líklega líka að senda þeim súkkulaði.
Þessi eru of stór til að hægt sé að senda.
Úps! Þá verðum við víst að borða þau!
Margo …
Þú mátt fá eitt.
Myndskreyting: Katie McDee. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.