Barnavinur
Páskar um víða veröld
Mars 2026


„Páskar um víða veröld,“ Barnavinur, janúar 2026, 28–29.

Páskar um víða veröld

Lærið um hefðir frá ýmsum löndum til að hjálpa ykkur að muna eftir frelsaranum.

Armenía

Hér eru páskaegg rauðlituð eins og blóð Jesú Krists. Á páskum segir fólkið: „Kristur er risinn upp frá dauðum!“ Blessuð er upprisa Krists!“ Svo brjóta þau eggin saman.

Gana

Margir klæðast hvítu á páskasunnudegi til minningar um upprisu Jesú Krists og sigur yfir dauðanum.

Gvatemala

Á páskum þekur fólk göturnar með litríkum teppum úr lituðu sagi og blómum. Þessi teppi eru með fallegu mynstri og hönnun. Sum eru með mynd af frelsaranum.

Þýskaland

Föstudagurinn langi er „hljóður frídagur“ með lagalegum takmörkunum á hávaða og opinberum viðburðum. Það gerir fólki kleift að hafa kyrrð og hugleiða það sem Jesús Kristur hefur gert fyrir það.

Perú

Margar fjölskyldur halda veislu með 12 matarréttum á fimmtudegi eða föstudegi fyrir páska. Þessi máltíð táknar síðustu kvöldmáltíðina sem Jesús Kristur borðaði með postulunum tólf.

Filippseyjar

Á pálmasunnudegi fléttar fólk pálmalauf í falleg form. Þetta hjálpar þeim að minnast þess hvernig fólkið í Jerúsalem tók á móti Jesú Kristi með pálmagreinum í dymbilvikunni.

PDF-síða með mynd af hnetti- og páskatáknum víða að úr heiminum

Myndskreyting: Flavio Remontti. Afritun er aðeins heimil til kirkjunota.