Byggja upp tilfinningalegt þolgæði: Carolee Scowcroft
Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna
Sunnudagur, 8. mars 2026
Mér finnst ég raunverulega standa á öxlum áa minna. Sögur þeirra hafa virkilega snert mig. Ég á langafa sem missti næstum allt eyrað vegna þess að hann datt af vagni. Og móðir hans þvoði það, vonandi, og setti það aftur á og vafði sárabindi um það. Fyrir trú varð eyrað svo gott sem nýtt. Ég hugsa bara um trú hennar og bænirnar sem hún flutti fyrir hönd sonar síns.
Svo hugsa ég um ömmu sem stóð uppi sem einstæð móðir í kreppunni með fjögur börn og hún þurfti að finna út hvernig hún gæti séð fyrir þeim. Það bauð enginn henni peninga og hún varð farsæl kaupsýslukona og gerði margt dásamlegt. Mér finnst því eins og allir áar mínir hafi haft raunveruleg áhrif á mig – þeir hafa haft áhrif á mig á þann hátt að ég er svo þakklát fyrir þær blessanir sem ég hef.
Ég, eins og allir aðrir, eins og þið öll, hef tekist á við tilfinningalegar áskoranir. Mér hefur lærst að áskoranir – rétt eins og Kristur er vegurinn –að áskoranir séu aðaláætlunin. Ef við svo viðurkennum að í stað þess að berjast gegn þeim og læra að gleðjast í þeim og vera þakklát fyrir þessar áskoranir, verðum við mun hamingjusamari. Við munum geta lært hvernig á að hjálpa öðrum þegar þeir takast á við áskoranir.
Annað sem mér hefur lærst er að við skiptumst einfaldlega á með áskoranir. Þið gætuð átt við áskorun að stríða og lært ýmislegt af henni, sem gefur ykkur síðan tækifæri til að hjálpa einhverjum að takast á við annað hvort álíka áskorun eða einhverja sem gæti verið öðruvísi, en eitthvað sem þið finnið til meiri samúðar yfir.
Ég á svo sannlega vitnisburð um að sérhver áskorun sem við tökumst á við verður yfirstigin með frelsara okkar. Hvort sem það er bein tilfinning eða í gegnum einn útsendara hans – eina af Líknarfélagssystrunum okkar eða son eða dóttur, einhvern sem er ykkur nákominn og kemur og þjónar ykkur á þann hátt sem hjálpar ykkur að takast á við þá reynslu.