Elska og ljós Guðs eru stöðug, óbreytanleg og óhagganleg
Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna
Sunnudagur, 8. mars 2026
Kæru systur, hvar sem þið eruð í heiminum, vitið að við elskum ykkur og faðir ykkar á himnum og frelsari ykkar elska ykkur. Ég veit að stundum getur verið erfitt að skynja elsku þeirra. Ég hef upplifað þær stundir sjálf. En ég ber ykkur vitni um að elska þeirra til ykkar breytist aldrei. Hún er alltaf til staðar, jafnvel á þessum myrku tímum í lífi ykkar, þegar erfitt getur verið að skynja hana.
Flest okkar elska fallega sólardaga, ekki satt! Allir litir náttúrunnar eru meira ljómandi þegar sólin skín. Á köldum dögum elskum við að finna sólina skína á andlit okkar. Hún fyllir okkur hlýju og ljósi. En svo koma óhjákvæmilega skýjaðir rigningardagar og dimmir dagar þegar við sjáum ekki sólina eða finnum fyrir hlýju hennar og allir litir eru daufir og gráir. Efumst við um að sólin sé til á þessum skýjuðu eða stormasömu dögum eða í myrkri næturinnar? Erum við hrædd um að sólin skíni aldrei aftur? Auðvitað ekki! Við vitum að þegar stormurinn eða nóttin tekur enda, þegar skýin skiljast að, munum við enn á ný sjá skæra geisla sólarinnar og finna hlýju hennar. Sólin er alltaf til staðar, óbreytanleg og óhagganleg. Hún er fasti.
Þetta er dýrmæt samlíking fyrir ljós frelsarans og elsku hans til okkar. Ljós hans gefur öllu í lífi okkar lit og merkingu. Elska hans vermir sál okkar og veitir okkur von um framtíðina. Alveg eins og það eru skýjaðir, stormasamir og dimmir dagar, þegar við fáum ekki séð sólina, í okkar jarðneska ferðalagi, þá munu líka koma skýjaðir, stormasamir og dimmir dagar þar sem erfitt getur verið að skynja elsku frelsarans eða sjá ljós hans. Það kunna að koma tímar þar sem okkur finnst sem himneskur faðir og frelsari okkar séu fjarverandi í lífi okkar og við finnum fyrir miklum ótta um að þeir hafi yfirgefið okkur, að þeir elski okkur ekki og að við séum alein. Jafnvel Joseph Smith og frelsarinn sjálfur upplifðu þá tilfinningu að Guð hefði yfirgefið þá.
En systur mínar, ég ber mitt vitni um að ekkert fær aðskilið okkur frá elsku himnesks föður og Jesú Krists! Ljós þeirra og elska til okkar eru stöðug, óbreytanleg og óhagganleg, rétt eins og ljós og hlýja sólarinnar. Við þurfum ekki að óttast að þeir hafi yfirgefið okkur, því þeir munu aldrei gera það. Það er ekki í þeirra eðli að gera það.
Ég man eftir því að hafa verið svo einmana þegar við fluttum til Mexíkó eftir að ég og eiginmaður minn giftum okkur. Í fyrsta sinn á ævinni bjó ég fjarri upprunalega heimili mínu og fjölskyldu. Ég talaði ekki enn eða skildi tungumálið vel, ég átti von á okkar fyrsta barni og eiginmaður minn var yfirleitt í burtu vegna vinnu og skóla. Ég man að mér fannst ég hræðilega ein, týnd og hrædd. Ég átti erfitt með að finna að faðir minn á himnum væri meðvitaður um mig. Ég fann ekki fyrir hlýju og kærleiksljósi frelsara míns. Ég tók að upplifa myrkur, vonleysi og örvæntingu.
Nokkrar af Líknarfélagssystrum mínum komu mér þó til bjargar. Þær tóku utan um mig og hjálpuðu mér að finna að ég væri ekki einsömul. Þær veittu mér hvatningu og stuðning með brosi sínu, ljúfu augnaráði og mildum kærleika, jafnvel þótt ég skildi ekki orð þeirra og þær gætu ekki skilið mín. Þar sem ég skynjaði elsku þeirra og væntumþykju til mín, þá hvarf það móðumyrkur sem ég hafði fundið fyrir og ég fór aftur að skynja elsku og stuðning himnesks föður míns til mín.
Systur, við getum gert þetta fyrir hver aðra. Við erum allar dætur himneskra foreldra og við þörfnumst hver annarrar. Hvar sem við búum, hverjar sem einstaklingsbundnar aðstæður okkar eru, þá ættum við aldrei að þurfa að upplifa að við séum ein eða einangruð. Við erum umkringd andlegum systrum okkar og bræðrum. Við höfum öll komið saman til jarðar á þessum tíma og þörfnumst hvers annars sárlega. Freistingin að bera saman og dæma hvert annað kemur frá andstæðingnum. Hann vill sundra okkur, því hann þekkir þann mikla styrk sem hlýst af því að finna einingu, elsku og stuðning hvert við annað. Við getum hjálpað hvert öðru að skynja elsku frelsarans er við reynum að vera sameinaðar sem dætur Guðs. Tökum höndum saman, lyftum hvert öðru og göngum heim saman.
Ég trúi að himneskur faðir og frelsarinn sendi okkur oft kærleiks- og stuðningsskilaboð, en oft skiljum við ekki þau skilaboð, því við erum kannski ekki að leita þeirra. Að sjá kólibrífugl sveima fyrir utan gluggann minn, sjá stórkostlegt sólarlag eða bara að virða fyrir mér fegurð og undur náttúrunnar, hjálpar mér oft að skynja elsku þeirra. Þegar hlutirnir eru erfiðir og ég upplifi vonleysi, skynja ég stundum kærleiksríkan og stuðningsríkan boðskap þeirra, sökum ákveðins ritningarvers sem snertir hjarta mitt við lesturinn, eða innblásins samtals við einhvern eða eitthvað sem ég skynja þegar ég hlusta á texta fallegs sálms eða upplyftandi söngs.
Ég ann texta eins af nýju sálmunum okkar: „Hans auga shans er á spörfuglinum." Í fyrsta versi segir:
Hví ætti ég að hörfa?
Hví ætti’ að skyggja á?
Hví ætti hjarta’ að bugast,
fyllast himins heimþrá
fyrst Jesús er minn faðmur,
svo fús að fórna sér?
Hans auga sér hvern spörva
og hann vakir yfir mér.
Ég ber ykkur vitni um að hans auga sér ekki aðeins hvern spörva, heldur einnig sérhverja ykkar. Þið eruð ástkærar dætur Guðs og ég ber vitni um að þið munuð aldrei gleymast. Þið eruð þekktar, þið eruð elskaðar og rödd ykkar skiptir máli,einkum fyrir föður ykkar á himnum og hans eingetna son. Þeir skilja náið harm ykkar, sorgartár og sársauka. Ástkær himneskur faðir heyrir alltaf bænir ykkar.
Jarðneska ferðin er full af áskorunum og erfiðleikum, þar með talið að missa vini eða ástvini, missa líkamlega eða andlega heilsu, missa fjárhagsöryggi og jafnvel að missa styrk og sjálfstraust. Ég hrífst af því sem öldungur Joseph B. Wirthlin sagði um missi: „Drottinn umbunar hinum trúföstu fyrir sérhvern missi. Það sem tekið er frá þeim sem elska Drottin, mun bætast þeim á hans hátt. Þótt það komi kannski ekki á þeim tíma sem við þráum, þá munu hinir trúföstu vita að sérhverju sorgartári í dag, mun að lokum verða umbunað hundraðfalt með gleði- og þakkartárum.“
Spámaðurinn Joseph Smith sagði: „Allur missir ykkar, verður ykkur bættur í upprisunni, ef þið haldið áfram trúföst. Fyrir sýn hins almáttuga, hef ég séð það.“
Ég ber vitni um að sökum okkar ástkæra frelsara og friðþægingarfórnar hans, þá eru þessi loforð sönn. Ef þið eruð trú Guði, mun allur missir ykkar að lokum verða ykkur bættur og þið munið fella gleði- og þakkartár vegna himnesks föður, fyrir blessanir hans.
Þetta vers í Opinberunarbókinni hefur oft hughreyst mig og hjálpað mér að skynja elsku Guðs: „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ Munið einnig eftir þessu loforði: „Við vitum að þeim sem Guð elska samverkar allt til góðs.“ Hve falleg og hughreystandi orð! Jesús Kristur er ljós og líf heimsins og hann hefur lofað að við munum ekki ganga í myrkri er við fylgjum honum.
Ég ber ykkur vitni um að himneskur faðir og frelsari ykkar munu aldrei gleyma ykkur, hverjar sem þið eruð, hvar sem þið búið, hverjar sem aðstæður ykkar eru og fortíð. Ljós þeirra og elska til ykkar eru stöðug, óbreytanleg og óhagganleg. Þegar skýin og stormarnir eru hluti af lífi ykkar, munið þið vita að þeir voru alltaf hjá ykkur, jafnvel á ykkar myrkustu dögum. Í nafni Jesú Krists, amen.