Líkn í Jesú Kristi
Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna
Sunnudagur 8. mars 2026
Velkomnar, kæru systur, á þessa hátíðarsamkomu stofnunar og starfs Líknarfélagsins.
Þetta mikla málverk eftir Michael Malm sýnir á fallegan hátt konur og karla, börn og ungt fólk – af ýmsum kynþáttum, þjóðernum og frá mismunandi tíma – koma til frelsara okkar, Jesú Krists. Þetta er hlutverk Líknarfélagsins: að styrkja hlutverk okkar sem lærisveinar Jesú Krists og búa okkur undir að snúa aftur í návist himneskra foreldra.
Þið eruð systur okkar. Og við ykkar.
Í upphafi þessarar trúarsamkomu voruð þið kynntar fyrir aðalráðgjafaráði Líknarfélagsins. Þær eru kallaðar og settar í embætti til að ráðleggja og starfa með okkur við að leiða Líknarfélagssysturnar. Alveg eins og þið eru þær konur mikillar trúar – einkum er þær takast á við margbreytileika og áskoranir þessa jarðneska lífs. Á þessu ári hafið þið tækifæri að hljóta innblástur frá þeim í umræðumyndböndunum sem gefin eru út með þessari útsendingu.
Um heim allan eru meira en átta milljónir kvenna í Líknarfélaginu. Með því að veita og hljóta líkn, bæði stundlega og andlega, komumst við nær Jesú Kristi og verðum líkari honum.
Við biðjum þess að andinn verði með ykkur þegar þið hlýðið á boðskap okkar. Við undirbjuggum hann með ykkur í huga. Síðan munum við njóta þeirra forréttinda að hlýða á öldung Quentin L. Cook, meðlim Tólfpostulasveitarinnar. Við elskum ykkur, kæru konur í fagnaðarerindi Jesú Krists. Þið eruð systur okkar.