Uppgötva guðlega skipan fjölskyldu minnar: Sandra Singer
Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna
Sunnudagur, 8. mars 2026
Dallin H. Oaks forseti hefur sagt: „Mikilvægt er að Síðari daga heilagir glati ekki skilningi sínum á tilgangi hjónabands og virði barna. Það er sú framtíð sem við keppum að.“
Á árum áður fluttum við langt frá fjölskyldum okkar og dvöldum í öðru landi. Fjölskyldan fékk þá þýðingarmeiri merkingu. Við áttum hvert annað að en komumst að því að við áttum einnig stærri fjölskyldu, hvar sem við bjuggum, því við vorum í deild eða grein eða stiku eða umdæmi með meðlimum sem höfðu sömu lífshugsjónir og sömu trú. Meðlimir kirkjunnar um allan heim.
Þeir 900.000 sem hafa gengið í þessa kirkju á síðustu þremur árum gætu hugsað: „Hvernig get ég nokkru sinni átt þá fjölskyldu sem við ræðum um í kirkju Jesú Krists?” En ég er hér til að segja systrum um víða veröld að það er með Jesú Kristi. Það er vegna þessa, Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu – sáttmálanna sem við gerum – að okkur gefst öllum kostur á að eignast fjölskyldu. Þess konar fjölskyldu sem ykkur dreymir um. Fjölskyldu sem vinnur saman, hjálpar hvert öðru og elskar hvert annað. Ég ber vitni um að það er mögulegt, að við getum upplifað gleði, fjölskyldugleði. Ég veit að þetta er satt og ég veit að það er satt fyrir ykkur.