Relief Society Devotionals
Uppgötva guðlega skipan fjölskyldu minnar: Andrea McConkie


3:11

Uppgötva guðlega skipan fjölskyldu minnar: Andrea McConkie

Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna

Sunnudagur, 8. mars 2026

Fjölskyldan mín lítur allt öðruvísi út en ég bjóst við. Ég missti eiginmann minn stuttu eftir að við giftum okkur og hef því alið upp fjölskyldu mína sem einstætt foreldri. Og ég veit að sú hugsun að „þetta lítur öðruvísi út en ég hélt“ er ekki einskorðuð við mig. Það eru margir sem eru að takast á við þá tilfinningu og það getur valdið miklum sársauka. En ég hef lært nokkra hluti. Það hafa verið raunveruleg tækifæri í eyðunum eða í mismuninum til að bera kennsl á hönd Guðs í að styðja mig og veita mér þá getu að gera það sem ég þarf að gera sem er mikilvægt og sem ég vil gera vel fyrir hann.

Það eru svo margir sem hafa lagt hönd á plóg til að fylla tómarúmið og elska og sýna okkur elsku Guðs með þjónustu og þeirri góðvild sem við höfum þarfnast. Það sem ég hef þó í raun lært er að það skiptir mestu að tilheyra eilífri fjölskyldu. Ég er dóttir himnesks föður og hann hefur boðið mér sáttmálssamband og ef ég tek við því og geri allt sem ég get til að styrkja það, þá gefur hann mér allt sem ég þarf til að ala upp fjölskyldu mína, að verða besta mögulega móðir sem ég get verið, að elska þá sem eru hluti fjölskyldu minnar, stórfjölskyldu minnar, fjölskyldu Guðs. Þegar ég styrki þetta sáttmálssamband, þá hjálpar það mér að elska meira eins og hann gerir. Og að geta borið kennsl á elsku Guðs í lífi okkar er máttugt – það er máttug gjöf. Þegar mér verður síðan ljóst hve heitt himneskur faðir elskar mig, hversu þolinmóður hann er við mig og hve einlæglega hann vill hafa mig í nærveru sinni, verða þessi fjölskyldusambönd mun auðugri og dýpri og þess virði að leggja vinnu í.

Á sama hátt og mér finnst ég vera mjög blessuð að þekkja Guð og elsku hans til mín, þá er ég líka þakklát fyrir að finna elsku hans gagnvart öðrum og kenna þeim sem mér hefur verið treyst fyrir og ástvinum mínum um hana. Þetta er það mikilvægasta sem ég myndi vilja að einhver vissi um mig, að ég elska Jesú Krist. Ég veit að kærleiksríkur himneskur faðir veit af mér. Hann tekur virkan þátt í smáatriðum lífs míns. Og ástæðan fyrir því að hann vill að ég sé í sáttmálssambandi við hann og taki ákvarðanir sem gera mig líka þeim, er að hann vill að ég elski eins og hann gerir. Það er mikil blessun að geta gert svo og borið kennsl á hönd hans í þeirri elsku.