Forgangsröðun ósamrýmanlegra málefna: Sharlene Miner
Trúarsamkoma Líknarfélagsins 2026: Heimslæg samkoma kvenna
Sunnudagur, 8. mars 2026
Helstu forgangsatriði mín eru að elska Guð og elska aðra. Benson forseti sagði að þegar við setjum Guð í fyrsta sæti, muni allt annað falla á sinn rétta stað. Sannleikurinn er sá að við erum öll í ólíkum aðstæðum. Sumar okkar framfleyta fjölskyldum okkar, sumar okkar eru einhleypar, sumar okkar eiga börn, sumar okkar búa einar og sumar bera ábyrgð á fjölskyldum fyrir utan börnin sín. Það sem ég hef lært, er að ef við setjum Guð í fyrsta sæti, þá fellur allt á sinn rétta stað. Oaks forseti sagði: „Forgangur okkar er sýnilegastur í því hvernig við nýtum tíma okkar.“ Þannig að ég hef komist að því að með því að greina notkun tíma míns, get ég betur séð hvort líf mitt sé í samræmi við forgangsröðun mína.
Ég er bráðalæknir og annast þá sem koma á sjúkrahúsið sem eru annaðhvort veikir eða þjáðir eða hafa nýlega lamast eða misst ástvin í hörmulegu slysi. Markmið mín eru fyrst og fremst að elska Guð og að elska aðra. Á afar stuttum tíma verð ég því að koma á traustu sambandi og hjálpa öðrum að skynja elsku Guðs. Þegar ég fer í vinnuna hugsa ég ekki: „Hvernig get ég náð lengra á starfsferli mínum á meðan ég er í vinnunni í dag?“ Bæn mín á hverjum degi, áður en ég fer til vinnu, er: „Hvernig get ég hjálpað sjúklingunum sem ég annast að skynja kærleika Jesú Krists?“ Það er líka afar mikilvægt að þegar fólk yfirgefur bráðamóttökuna eftir að hafa átt samskipti við mig, að það finni fyrir kærleika Jesú Krists. Ég geri það ekki fullkomlega en ég skal segja ykkur að í hvert skipti sem ég fer til vinnu, alltaf þegar ég fer á fætur á morgnana og hvenær sem ég á samskipti við börnin mín, þá er það bæn mín, að þau geti skynjað elsku himnesks föður í gegnum mig.
Ég ber vitni um himneskur faðir elskar ykkur. Hann elskar hvert barna sinna. Ég ber líka vitni um að þegar við leitumst við að miðla öðrum elsku Jesú Krists, munu okkar eigin hjörtu fyllast. Við munum fyllast ljósi Jesú Krists og þau munu geta skynjað elsku hans í gegnum okkur.