„24.–30. ágúst. ‚Ég mun segja frá öllu sem hann gerði fyrir mig‘: Sálmarnir 49–51; 61–66; 69–72; 77–78; 85–86,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„24.–30. ágúst. ‚Ég mun segja frá öllu sem hann gerði fyrir mig‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Bjarga því sem glatað var, eftir Michael Malm
24.–30. ágúst: „Ég mun segja frá öllu sem hann gerði fyrir mig“
Sálmarnir 49–51; 61–66; 69–72; 77–78; 85–86
Höfundar Sálmanna miðluðu afar persónulegum tilfinningum í ljóðum sínum. Þeir rituðu um eigin vonbrigði, ótta og eftirsjá. Stundum fannst þeim þeir jafnvel yfirgefnir af Guði og sumir sálmar bera vott um gremju eða örvæntingu. Ef ykkur hefur einhvern tíma liðið þannig, getur lestur Sálmanna gert ykkur ljóst að þið eruð ekki ein um það. Þið munuð líka finna vers sem geta veitt ykkur hvatningu þegar þið hafið slíkar tilfinningar, því höfundar Sálmanna lofuðu líka Drottin fyrir gæsku hans, undruðust kraft hans og fögnuðu yfir miskunn hans. Þeir vissu að við værum þjökuð af illsku og synd, en að Drottinn væri „góður og fús til að fyrirgefa“ (Sálmarnir 86:5). Þeir skildu að þótt menn hefðu trú á Drottin, merkti það ekki að þeir myndu aldrei há baráttu við kvíða, synd eða ótta. Það merkir að þið vitið til hvers skal snúa sér þegar það gerist.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Sálmarnir 49; 62:6–13
Endurlausn getur aðeins átt sér stað fyrir Jesú Krist.
Í Sálmunum 49 er boðskapur fyrir bæði „háa og lága, jafnt ríka sem fátæka“ (vers 3). Hvern mynduð þið segja þann boðskap vera? Hvað finnst ykkur Sálmarnir 62:6–13 bæta við þann boðskap?
Lestur þessara sálma gæti veitt ykkur innblástur til að íhuga hvernig okkur er freistað til að setja traust okkar á eitthvað annað en Guð okkur til endurlausnar (sjá Sálmarnir 49:7–8). Hvernig hefur vitnisburður ykkar um að „Guð muni leysa líf [ykkar] úr greipum heljar“ haft áhrif á líf ykkar? (Sálmarnir 49:16).
Sálmarnir 51; 85–86
Vegna miskunnar frelsarans, get ég hlotið fyrirgefningu.
Davíð konungur ritaði Sálmana 51 eftir að honum varð ljós brýn þörf hans fyrir fyrirgefningu – nokkuð sem við þörfnumst öll. Hvaða vers lýsa tilfinningum sem þið hafið upplifað? Hvað finnið þið í þessum versum sem veitir ykkur von um fyrirgefningu?
Þið gætuð líka leitað vísbendinga í Sálmunum 51 um merkingu þess að iðrast. Skráið það sem þið finnið. Athugið hvort þið getið bætt við listann með því að kanna boðskap Russells M. Nelson forseta, „Við getum gert betur og orðið betri“ (aðalráðstefna, apríl 2019).
Hvernig mynduð þið lýsa tilfinningu þess að hljóta fyrirgefningu fyrir milligöngu Krists? Ef þið þurfið hjálp við að lýsa tilfinningum ykkar, gætuð þið lesið Sálmana 51:3–4, 9–14; 85:3–10. Sumum finnst gaman að teikna eða finna myndir til að tjá tilfinningar sínar; þið gætuð reynt það. Þið gætuð líka sungið eða hlustað á sálm um frelsarann, t.d. „Um Jesú ég hugsa“ (Sálmar, nr. 65).
Til að iðrast, verðum við ekki aðeins að hafa trú á að Jesús Kristur geti hreinsað okkur, heldur einnig að hann muni gera það. Hvað finnið þið í Sálmunum 86:5, 13, 15 sem hjálpar ykkur að vita að frelsarinn getur fyrirgefið og er fús til þess?
Sjá einnig Alma 36; Peter F. Meurs, „Hann gæti læknað mig!,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
Sálmarnir 51:15–17; 66:5–20; 71:15–24
Vitnisburður minn um Jesú Krist getur hjálpað öðrum að koma til hans.
Íhugið hvernig þið öðluðust vitnisburð ykkar um Jesú Krist og friðþægingarkraft hans. Þegar þið síðan lærið Sálmana 51:15–17; 66:5–20; 71:15–24, íhugið þá hvernig þið getið boðið öðrum að „koma og sjá verk Guðs“ (Sálmarnir 66:5). Hvað mynduð þið segja ef þið hygðust „segja frá öllu sem [Drottinn] gerði fyrir [ykkur]“ (Sálmarnir 66:16)?
Hvað merkir það fyrir ykkur að „vitna [daglangt] um réttlæti [hans]“? (Sálmarnir 71:24).
Sjá einnig Alma 26.
„Komið, hlustið, … ég mun segja frá öllu sem [Guð] gerði fyrir mig“ (Sálm 66:16).
Sálmarnir 63; 69; 77–78
Drottinn mun hjálpa mér á tíma neyðar.
Nokkrir Sálmarnir lýsa því hvernig það er að finnast Guð vera fjarlægur sér og að þarfnast hjálpar hans sárlega (sjá Sálmarnir 63:2, 9; 69:2–9, 19–22; 77:2–10). Hvað finnið þið í Sálmunum 63; 69; 77–78 sem veitti höfundum Sálmanna fullvissu?
Hvernig hjálpar það ykkur að „minnast verka Drottins“ og hans „fyrri dáða“ þegar ykkur líður illa? (Sálmarnir 77:12). Sumum þessara dásemdarverka er lýst í Sálmunum 78. Þegar þið lesið um þau, íhugið þá hvað hjálpar ykkur að „setja traust [ykkar] á Guð“ (vers 7).
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Þar sem þessi sunnudagur er fimmti sunnudagur mánaðarins, eru Barnafélagskennarar hvattir til að nota námsverkefnin í „Viðauki B: Búa börn undir ævilanga veru á sáttmálsvegi Guðs“.
Sálmarnir 51; 86:5, 13, 15
Þegar ég tek ranga ákvörðun, getur Jesús hjálpað mér að breytast.
-
Til að hjálpa börnum ykkar að uppgötva sannleika um iðrun í Sálmunum 51, gætuð þið teiknað stórt hjarta. Þið gætuð síðan hjálpað börnum ykkar að skrifa í hjartað slæma hluti sem Satan freistar okkar til að gera. Hvernig fjarlægjum við þessa hluti úr hjörtum okkar? Biðjið börn ykkar að finna orðið „hjarta“ í Sálmunum 51:12, 19. Ræðið hvað þessi vers kenna um iðrun. Látið börn ykkar þurrka út orðin sem eru í hjartanu og skrifa ný orð sem lýsa því hvernig Jesús getur breytt okkur þegar við iðrumst.
-
Þið gætuð viljað hjálpa börnum ykkar að skilja merkingu þess að hafa „sundurmarið og sundurkramið hjarta“ (Sálmarnir 51:19). Þau gætu t.d. skipst á við að opna eitthvað sem hefur hart yfirborð, eins og egg eða hnetu. Þið gætuð hjálpað þeim að líkja skurninni eða skelinni við það sem kemur í veg fyrir að við finnum elsku himnesks föður. Hvernig getum við lokið upp hjörtum okkar fyrir honum?
-
Þið gætuð líka horft saman á mynd af frelsaranum og spurt börn ykkar hvaða orð þau myndu nota til að lýsa honum. Bjóðið þeim að finna orð sem lýsa honum í Sálmunum 86:5, 13, 15. Af hverju er mikilvægt að vita þetta um hann?
Sálmarnir 61:4
Jesús Kristur er bjargið mitt.
-
Börn ykkar gætu notið þess að teikna myndir af táknunum í Sálmunum 61:4. Hvernig er Jesús Kristur eins og hátt „bjarg“, „hæli“ og „traust vígi“? (vers 4).
„Þú ert mér hæli, traust vígi“ (Sálmarnir 61:4).
Sálmarnir 66:16; 77:12; 78:6–7
„Ég minnist verka Drottins.“
-
Biðjið börn ykkar að segja frá einhverjum af eftirlætissögum þeirra í ritningunum (myndir úr Trúarmyndabók gætu verið gagnlegar). Hvað kenna þessar sögur okkur um Drottin? Þið gætuð lesið saman Sálmana 66:16 og skipst á við að svara spurningunni: „Hvað hefur Drottinn gert fyrir mig“?
-
Þegar þið lesið saman Sálmana 77:12; 78:6–7, gætuð þið miðlað hvert öðru hvernig þið reynið að að „minnast verka Drottins“ (Sálmarnir 77:12), einnig verka hans í lífi ykkar sjálfra. Hvernig hjálpar sakramentið okkur að „hafa … ávallt í huga“? (Moróní 4:3; 5:2).
Sálmarnir 71:8
Ég get sagt öðrum frá Jesú Kristi.
-
Eftir að hafa lesið Sálmana 71:8 með börnum ykkar, bjóðið þeim þá að teikna stóran munn. Biðjið þau að hjálpa ykkur að „fylla“ munninn af myndum eða orðum sem tákna það sem við getum sagt öðrum um Jesú Krist.
-
Þið gætuð látið mynd af Jesú Kristi ganga á milli ykkar. Sá sem heldur á myndinni gæti sagt eitthvað eitt sem hann veit um hann. Hvernig getum við hjálpað öðrum að vita þessa hluti?
Börn hafa miklu að miðla. „Þegar börn læra eitthvað nýtt, er þeim eðlislægt að vilja miðla öðrum því. Ýtið undir þessa þrá með því að gefa börnum tækifæri til að kenna hvert öðru reglur fagnaðarerindisins, fjölskyldum sínum og vinum. Biðjið þau einnig að miðla ykkur hugsunum sínum, tilfinningum og reynslu sem tengist þeim reglum sem þið eruð að kenna. Þið munið komast að því að þau hafa innsýn sem er einföld, hrein og kraftmikil“ (Kenna að hætti frelsarans,32).
Sálmarnir 86:7
Himneskur faðir heyrir og svarar bænum mínum.
-
Margir sálmanna eru eins og bænir til Guðs. Þegar þið lesið Sálmana með börnum ykkar, gætuð þið sýnt þeim það sem við getum notað til að eiga samskipti við fólk sem er fjarlægt, svo sem síma eða bréf. Lesið síðan Sálmana 86:7. Hvernig „áköllum við“ himneskan föður? Hvernig svarar hann okkur?
-
Þið gætuð sungið saman söng um bæn, svo sem „Bæn barns“ (Barnasöngbókin, 6; sjá einnig Susan H. Porter, „Biðjið, hann er þar,“ aðalráðstefna, apríl 2024). Segið hvert öðru frá því þegar Guð hefur bænheyrt ykkur.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.
Komið til Krists, eftir Casey Childs