„27. júlí–2. ágúst. ‚Ég er að vinna að miklu verki‘: Esrabók 1; 3–7; Nehemíabók 2; 3–6; 8,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„27. júlí–2. ágúst. ‚Ég er að vinna að miklu verki‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Ég hef mikið verk að vinna, eftir Tyson Snow
27. júlí–2. ágúst: „Ég er að vinna að miklu verki“
Esrabók 1; 3–7; Nehemíabók 2; 3–6; 8
Gyðingar höfðu verið í ánauð í Babýlon í um 70 ár. Þeir höfðu glatað Jerúsalem og musterinu og margir höfðu gleymt skuldbindingum sínum við lögmál Guðs. Guð hafði þó ekki gleymt þeim. Hann hafði reyndar lýst yfir með spámanni sínum: „Ég [mun] vitja yðar. Þá mun ég standa við heit mitt og flytja yður aftur til þessa staðar“ (Jeremía 29:10). Drottinn var trúr þessum spádómi og sá fólki sínu fyrir leið til að snúa aftur – bæði til Jerúsalem og það sem mikilvægara var, til sáttmála þess. Og hann reisti upp þjóna sem unnu „mikið verk“ (Nehemíabók 6:3): Landstjóri að nafni Serúbabel hafði yfirumsjón með byggingu húss Drottins. Esra, sem var prestur og ritari, hjálpaði fólkinu að snúa hjarta sínu aftur að lögmáli Drottins. Nehemía stjórnaði endurreisn varnarmúrsins umhverfis Jerúsalem. Þeir mættu andstöðu en fengu einnig hjálp úr óvæntum áttum. Reynsla þeirra getur upplýst og hvatt okkur, því við erum líka að vinna mikið verk. Líkt og verk þeirra, þá snýst verk okkar mikið um hús Drottins, lögmál Drottins og þá andlegu vernd sem við finnum í honum.
Til að fá yfirlit yfir Esrabók og Nehemíabók, sjá þá „Esra“ og „Nehemía“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Esrabók 1
Drottinn hvetur fólk til að vinna að tilgangi sínum.
Eftir að Persía hafði lagt undir sig Babýlon, innblés Drottinn Kýrus Persakonung til að senda hóp Gyðinga til Jerúsalem til að endurreisa musterið. Þegar þið lesið Esrabók 1, gætið þá að því sem Kýrus gerði til að styðja Gyðinga í þessu mikilvæga verki. Hvernig sjáið þið Drottin vinna í gegnum karla og konur umhverfis, þar á meðal fólk sem ekki eru meðlimir í kirkju hans? Hvað kennir þetta ykkur um Drottin og verk hans?
Sjá einnig Jesaja 44:24–28.
Esrabók 3:8–13; 6:16–22
Hús Drottins er gleðistaður.
Þegar Babýloníumenn réðust inn í Jerúsalem rændu þeir musterið og brenndu það til grunna (sjá 2. Konungabók 25:1–10; 2. Kroníkubók 36:17–19). Hvernig haldið þið að ykkur hefði liðið ef þið hefðuð verið meðal Gyðinganna sem urðu vitni að þessu? (sjá Sálmarnir 137). Gætið að því hvernig Gyðingunum leið, áratugum síðar, þegar þeir fengu að snúa aftur og endurbyggja musterið (sjá Esrabók 3:8–13; 6:16–22). Það gæti fengið ykkur til að hugleiða eigin tilfinningar til Drottins og húss hans. Af hverju er bygging musteris ástæða til fagnaðar?
Musteri Serúbabels; myndskreyting: Sam Lawlor
Esrabók 4–7; Nehemíabók 2; 3–4; 6
Guð ætlar mér mikilvægt verk að vinna.
Verk Drottins er sjaldan án andstöðu. Það átti við um verkið sem Serúbabel og Nehemía leiddu. Hér er einföld nálgun sem getur hjálpað ykkur að læra af þessum frásögnum og íhuga hvernig þið getið unnið verk Drottins þrátt fyrir mótlæti:
Verk Guðs fyrir Serúbabel (Esrabók 4:3):
Verk Guðs fyrir Nehemía (Nehemíabók 2:17–18):
Verk Guðs fyrir mig:
Andstaða sem Serúbabel stóð frammi fyrir (Esrabók 4:4–24):
Andstaða sem Nehemía stóð frammi fyrir (Nehemíabók 2:19; 3:33–35 og 4:1–2; 6:1–13):
Andstaða ég stend frammi fyrir:
Hvernig Serúbabel brást við (Esrabók 5:1–2):
Hvernig Nehemía brást við (Nehemíabók 2:20; 3:38 og 4:3; 6:3–15):
Hvernig ég get brugðist við:
Íhugið að miðla hluta af ræðu Dieters F. Uchtdorf forseta, „Við höfum mikið starf með höndum og getum því ekki komist ofan eftir“ (aðalráðstefna, apríl 2009), einkum tveimur síðustu hlutunum. Þegar þið hugsið um það verk sem Guð hefur falið ykkur, gætuð þið lært „þema Stúlknafélagsins“ eða „þema Aronsprestdæmissveita“ (Gospel Library). Þið gætuð líka þess í stað fundið sálm eins og „Við leitum til þín, Drottinn“ (Sálmar, nr. 118) eða „Þér öldungar fólksins“ (Sálmar, nr. 119).
Hvað þýðir það að vera „heils hugar“ í þjónustu frelsarans? (Nehemíabók 3:38). Hver gæti verið merking þess að „Guð heldur verndarhendi yfir [ykkur]“ þegar þið vinnið verk hans? (Nehemíabók 2:8; sjá einnig Nehemíabók 2:18; Esrabók 7:6, 9, 27–28). Hvernig hafið þið séð hönd hans í viðleitni ykkar til að þjóna honum?
Nehemíabók 8
Ég hlýt blessanir þegar ég les ritningarnar.
Gyðingar höfðu verið í ánauð kynslóðum saman og höfðu takmarkaðan aðgang að „bókinni sem lögmál Móse var skráð á“ (Nehemíabók 8:1). Í Nehemíabók 8 les Esra lögmálið fyrir fólkið. Hvað finnið þið í þessum kafla sem sýnir hvað Esra og fólki hans fannst um Guð og orð hans? (sjá einkum vers 1–12). Hvað í lífi ykkar sýnir hvað ykkur finnst um Guð og orð hans?
Sjá einnig Teachings of Presidents of the Church: Ezra Taft Benson (2014), 115–24.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Esrabók 3:8–13; 6:16–22
Hús Drottins er gleðistaður.
-
Til að kenna börnum ykkar um gleðina sem Gyðingar upplifðu þegar musteri þeirra var endurreist, gætuð þið sýnt þeim mynd eins og hér að neðan. Ræðið hvers vegna þetta fólk gæti verið hamingjusamt að vera í húsi Drottins. Þið gætuð líka sagt börnum ykkar frá því af hverju musterið er gleðistaður fyrir ykkur. Hvernig hefur musterið hjálpað ykkur að finnast þið vera nær himneskum föður og frelsaranum?
-
Þegar þið lesið Esrabók 3:10–13 með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að finna orð sem lýsa því hvernig Gyðingum leið þegar verið var að endurbyggja musterið. Þegar þið komið að lokum vers 13, gætuð þið ef til vill hrópað af gleði saman. Hjálpið börnum ykkar að finna ástæður til að gleðjast yfir því að Drottinn hefur gefið okkur musteri. Hvernig getum við sýnt þessa gleði?
-
Íhugið að syngja söng um musterið með börnum ykkar, eins og „Musterið“ í Barnasöngbókinni, 99. Eftir hverja línu, getið þið gert hlé og beðið barn að miðla einhverju sem það hefur unun af í musterinu. Þið gætuð líka skoðað myndir af musterum meðan þið syngið.
Nehemíabók 2:17–20; 6:1–9
Drottinn mun hjálpa mér að vinna sitt „mikla verk“.
-
Miðlið börnum ykkar sögunni um Nehemía (sjá Nehemíabók 2:17–20; 6:1–9; eða „Nehemía“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 173–74). Þegar þið lesið Nehemíabók 2:20, gætuð þið og börn ykkar „hafist handa“ og þóst fara til að hjálpa við að reisa múra Jerúsalem. Börn ykkar gætu líka þess í stað haft gaman af því að byggja vegg úr kubbum eða öðrum hlutum. Þegar þau gera það, gætuð þið hjálpað þeim að hugsa um mikilvæga hluti sem himneskur faðir vill að við gerum.
1:38Nehemiah
-
Þegar þið lesið Nehemíabók 6:9, bjóðið þá börnum ykkar að rétta upp hönd þegar þau heyra ykkur segja: „En þá tók ég til hendinni svo um munaði.“ Segið börnunum frá því þegar þið funduð Guð styrkja hendur ykkar til að vinna verk hans.
Nehemíabók 8:1–12
Ritningarnar eru blessun.
-
Lesið upphátt nokkur orðtök í Nehemíabók 8:2–3, 5–6, 8–9, 12 sem lýsa því hvað fólkið gerði þegar það heyrði Esra lesa ritningarnar. Þegar þið lesið, gætu börn ykkar leikið það sem þessi orðtök segja. Þið gætuð síðan miðlað hvert öðru hvernig ykkur líður við að lesa eða heyra ritningarnar.
-
Þegar þið lesið saman Nehemíabók 8:8, gætuð þið spurt börn ykkar að því hvað hjálpi þeim að skilja ritningarnar. Sýnið þeim hvernig á að nota ritningarnámshjálp eins og Leiðarvísi að ritningunum og Topics and Questions (Gospel Library). Bjóðið börnum ykkar að miðla einhverju sem þau hafa lært í ritningunum um frelsarann.
Leitið eilífs sannleika í ritningunum. „Ritningarnar eru … fylltar sannleika fagnaðarerindisins, en stundum þarf meðvitað erfiði til að finna hann. Þegar þið eruð að læra saman úr ritningunum, staldrið þá við og spyrjið þá sem þið kennið hvaða sannleikur fagnaðarerindisins veki athygli þeirra. Hjálpið þeim að sjá hvernig þessi sannleikur tengist sáluhjálparáætlun himnesks föður. Stundum er eilífur sannleikur settur fram í ritningunum og stundum er hann sýndur í sögunum og í lífi fólksins sem við lesum um. Það getur einnig verið hjálplegt að kanna sögulegan bakgrunn versanna sem þið eruð að lesa, ásamt merkingu versanna og hvernig þau tengjast okkur í dag“ (Kenna að hætti frelsarans, 22).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.