„20.–26. júlí. ,Vér beinum sjónum vorum til þín‘: 2. Kroníkubók 14–20; 26; 30,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„20.–26. júlí. ‚Vér beinum sjónum vorum til þín‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Bæn Jósafat konungs, eftir Keeley Rae
20.–26. júlí: „Vér beinum sjónum vorum til þín“
2. Kroníkubók 14–20; 26; 30
Konungsríkið Júda var umkringt. Herir frá þremur öflugum óvinaþjóðum sóttu fram samtímis, tilbúnir til orrustu. Á þessari neyðarstundu sneri Jósafat konungur Júda sér að konungi himins og jarðar. Jósafat safnaði fólki sínu saman við musterið og baðst fyrir. Hann viðurkenndi mannlega veikleika þeirra og sárbað um björgun. Drottinn lofaði öryggi með svari sínu: „Óttast ekki. Skelfist ekki“ (2. Kroníkubók 20:17).
Við erum ef til vill ekki með innrásarher við dyraþrepið sem hótar að tortíma okkur, en stundum finnst okkur við umkringd andstreymi og illsku. Vegur okkar til lausnar er sá sami og Jósafat leitaði og bæn okkar getur líka verið lík hans: „[Ó,] Guð, … vér erum aflvana gegn þessum volduga her sem heldur gegn oss. Vér vitum ekki hvað vér getum gert, þess vegna beinum vér sjónum vorum til þín“ (2. Kroníkubók 20:12).
Í 2. Kroníkubók 14–30 getið þið lesið um Jósafat og fleiri konunga í Júda. Íhugið hvernig trúardrifin siðbót þeirra, sigrar og áskoranir geta átt við um ykkar eigið líf.
Til að fá yfirlit yfir 2. Kroníkubók, sjá þá „Kroníkubækur“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
2. Kroníkubók 14–16
Það færir mér frið að treysta Guði.
Þegar Asa var konungur Júda, tókst hann á við margar áskoranir – rétt eins og við öll á okkar tíma. Þegar þið lesið um raunirnar sem hann tókst á við, gætið þá að því á hvað hann setti traust sitt og hvernig það breyttist með tímanum.
|
Tilvísun |
Áskoranir sem Asa stóð frammi fyrir |
Á hvað Asa setti traust sitt |
|---|---|---|
Tilvísun 2. Kroníkubók 14:9–12 | ||
Tilvísun 2. Kroníkubók 15:1–8 | ||
Tilvísun 2. Kroníkubók 16:1–10 |
Af hverju hættum við stundum að treysta Drottni? Hvað annað lærið þið af lífi Asa?
Sjá einnig D. Todd Christofferson, „Samband okkar við Guð,“ aðalráðstefna, apríl 2022.
2. Kroníkubók 18
Ég get varið sannleikann, jafnvel þegar það er óvinsælt.
Spámaðurinn Míka hlýtur að hafa fundið fyrir miklum þrýstingi til að spá fyrir um velsæld konunganna Jósafats og Akabs í stríði þeirra gegn Sýrlandi. Gætið að vísbendingum um þann þrýsting í 2. Kroníkubók 18:1–12. Hvaða merki finnið þið um hugrekki og ráðvendni Míka í versum 13–27? (Gætið að því að í versi 14 svarar Míka hæðnislega; raunverulegt svar hans er í versi 16.) Hvernig uppfyllast orð Míka í versum 28–34?
Við hvaða aðstæður gætuð þið fundið fyrir þrýstingi eins og Míka gerði? Hvað veitir ykkur hugrekki til að koma Drottni og kenningum hans til varnar?
Á dögum Jósafats konungs réðust þrjár þjóðir á Jerúsalem.
2. Kroníkubók 20:1–25
Á erfiðum tímum get ég snúið mér til Guðs og spámanna hans.
Þegar þið lesið 2. Kroníkubók 20:1–12, gætið þá að því sem Jósafat konungur gerði þegar margar þjóðir komu til að ráðast á Júda. Hvernig gætuð þið tileinkað ykkur viðbrögð hans í þeim krefjandi aðstæðum sem þið standið frammi fyrir?
Svar Drottins við bæn Jósafats er að finna í versum 14–17. Hvaða orðtök finnið þið sem gætu hughreyst ykkur eða einhvern sem þið þekkið á erfiðum tímum?
Daginn eftir fór fólkið í Jerúsalem út til móts við andstæðinginn. Þegar þið lesið 2. Kroníkubók 20:20, gætið þá að boðskapnum sem Jósafat flutti íbúum Jerúsalem. Hvernig uppfylltust orð hans? (sjá vers 22–23). Hvernig hefur Guð blessað ykkur fyrir að trúa á sig og fylgja spámönnum sínum?
Russell M. Nelson forseti sagði: „Reynsla mín er sú að þegar maður hættir að setja spurningarmerki aftan við fullyrðingar spámannsins, setur upphrópunarmerki í stað þess og gerir það, munu blessanirnar hreinlega flæða yfir. Ég spyr mig aldrei: ‚Hvenær talar spámaðurinn sem spámaður og hvenær ekki?‘ Áhugi minn hefur verið: ‚Hvernig get ég orðið líkari honum?‘“ (í Lane Johnson, „Russell M. Nelson: A Study in Obedience,“ Ensign, ágúst 1982, 24).
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 21:4–6; „A Secure Anchor“ (myndband), Gospel Library; „Takið innblásnar ákvarðanir,“ Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum (2022), 4–5.
A Secure Anchor
Berið kennsl á einfaldar staðhæfingar sannleikans. Öldungur Neal A. Maxwell kenndi: „Ritningarnar bjóða okkur upp á svo marga kenningarlega demanta. Og þegar ljós andans leikur um hinar mörgu hliðar þeirra, þá leiftra þær af himneskri visku og lýsa upp veginn sem okkur er ætlað að fylgja“ („According to the Desire of [Our] Hearts,“ Ensign, nóv. 1996, 21). Þegar þið lærið ritningarnar, íhugið þá að gefa ykkur tíma til að auðkenna, merkja við og ígrunda stuttan en áhrifamikinn boðskap. Nokkur dæmi má finna í 2. Kroníkubók 14:11; 15:7; 18:13; 20:15; 26:5. Hvaða fleiri „kenningarlega demanta“ getið þið fundið?
2. Kroníkubók 26:3–21
Dramb leiðir til tortímingar.
Eins og átti við um marga aðra konunga Júda, hófst valdatíð Ússía með miklum afrekum en lauk með hörmungum. Gætið að þessu mynstri í 2. Kroníkubók 26. Hver mynduð þið segja að hefði verið vendipunkturinn í lífi Ússía?
Þegar þið lesið vers 16–23, hafið þá í huga að á þessum tíma var aðeins prestum leyft að brenna reykelsi í musterinu. Hvers vegna haldið þið að Ússía konungur hafi óhlýðnast Guði? Hvað lærið þið af þessari hörmulegu upplifun?
Sjá einnig „Beygðu kné þín,“ Sálmar, nr. 57.
2. Kroníkubók 30
Ég get verið friðflytjandi.
Í 2. Kroníkubók 30 var Hiskía konungur Júda. Hann bauð keppinaut sínum, konungsríki Ísraels að safnast saman í Jerúsalem til að halda upp á páskahátíðina – nokkuð sem Ísraelsmenn höfðu ekki getað gert í mörg ár (sjá vers 1–12). Hvað hrífur ykkur varðandi boðið og hvernig því var tekið – bæði meðal gesta Ísraelsmanna og gestgjafa þeirra í Júda?
Þar sem svo langur tími hafði liðið, voru sumir sem komu til Jerúsalem ókunnugir því hvernig taka ætti þátt í páskahátíðinni. Hvað lærið þið af viðbrögðum Hiskía og afleiðingum viðbragða hans við lestur 2. Kroníkubókar 30:18–27?
Sjá einnig Russell M. Nelson, „Þörf er á friðflytjendum,“ aðalráðstefna, apríl 2023.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
2. Kroníkubók 14–16; 20
Ég get treyst Guði.
-
Til að kynna hugmyndina um að treysta Drottni, gætuð þið sýnt börnum ykkar eitthvað sem þið treystið til að halda ykkur þurrum í rigningu, eins og regnhlíf eða jakka. Látið þau ræða af hverju við getum treyst þessum hlutum. Hjálpið þeim síðan að bera það saman við traust okkar á Drottni. Hvers vegna treystum við honum til að vernda okkur andlega?
-
Þið gætuð hjálpað börnum ykkar að skilja hvernig Asa konungur og Jósafat brugðust við áskorunum með því að treysta á Drottin (sjá 2. Kroníkubók 14:11; 20:3–5, 12). Miðlið hvert öðru því hvernig þið getið sýnt Drottni að þið treystið honum.
2. Kroníkubók 20:1–29
Guð mun heyra og svara bænum mínum.
-
Verkefnasíða þessarar viku getur hjálpað börnum ykkar að skilja frásögnina um bæn Jósafats og svar Drottins. Þið og börn ykkar gætuð sagt frá því þegar Guð heyrði og svaraði bænum ykkar. Íhugið að hafa með þau tilvik þar sem svörin komu á þann hátt eða á tímum sem þið áttuð ekki von á. Söngur um bæn, t.d. „Geta börnin beðið rétt“ (Barnasöngbókin, 6), gæti hjálpað við að efla trú barna ykkar.
2. Kroníkubók 26:3–23
Ég get sýnt auðmýkt.
-
Til að læra um hættur drambs, gætu börn ykkar byggt turn úr kubbum eða litlum bollum. Þegar þau setja hvern kubb eða bolla í turninn, hjálpið þeim þá að bera kennsl á eitt af afrekum Ússía í 2. Kroníkubók 26:3–15. Þegar börn ykkar hafa lokið við turninn, ræðið þá við þau um það hvernig Ússía gæti haldið honum háum og sterkum. Hvað gæti fengið hann til að falla? Þegar þið síðan lesið vers 16, gætuð þið rætt merkingu þess að vera „hrokafull“. Miðlið börnum ykkar því sem kom fyrir Ússía í versum 16–23. Leyfum þeim að rífa turna sína niður. Ræðið hvað við getum gert til að vera auðmjúk.
Hiskía konungur og fólkið þakkar Guði, © Lifeway Collection/birt með leyfi goodsalt.com
2. Kroníkubók 30
Ég get verið friðflytjandi.
-
Myndin hér að ofan sýnir þegar Hiskía bauð nágrönnum Júda frá konungsríkinu Ísrael að halda páska hátíðlega með þeim. Þið gætuð skoðað þessa mynd með börnum ykkar og lesið 2. Kroníkubók 30:18–19, sem útskýrir að sumir gestanna höfðu ekki þvegið sér samkvæmt lögmáli Móse. Hvað gerði Hiskía? Hvernig hefði þetta látið gestunum líða? Hjálpið börnum ykkar að hugsa um það hvernig þau geta verið eins og Hiskía í framkomu við aðra.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.