Kom, fylg mér
13.–19. júlí. „[Hann] treysti Drottni, Guði Ísraels“: 2. Konungabók 16–25


„13.–19. júlí. ‚[Hann] treysti Drottni, Guði Ísraels‘: 2. Konungabók 16–25,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„13.–19. júlí. ‚[Hann] treysti Drottni, Guði Ísraels‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

fjölmennur hópur Gyðinga ferðast til útlegðar í Babýlon

Flótti fanganna. eftir James Jacques Joseph Tissot og fleiri

13.–19. júlí: „[Hann] treysti Drottni, Guði Ísraels“

2. Konungabók 16–25

Þrátt fyrir áhrifamikla þjónustu spámannsins Elísa, iðruðust íbúar norðurríkis Ísraels ekki. Svo fór að lokum að Assýríuveldið sigraði og tvístraði hinum tíu ættkvíslum Ísraels. Á sama tíma gekk litlu betur hjá suðurríkinu Júda: Skurðgoðadýrkun var þar líka útbreidd.

Mitt í allri þessari andlegu hnignun er greint frá tveimur konungum Júda sem um tíma snéru þjóð sinni aftur til Drottins. Annar þeirra var Hiskía. Á valdatíma hans lögðu Assýríumenn undir sig stóran hluta Júda. Hiskía og þjóð hans sýndu þó trú á Drottin, sem frelsaði Jerúsalem á undraverðan hátt. Síðar, eftir annan fráhvarfstíma, varð Jósía konungur. Jósía var að nokkru innblásinn af hinni enduruppgötvuðu lögmálsbók Móse og kom á siðbót sem endurvakti trúarlíf meðal þjóðar hans.

Líkt og Ísrael og Júda, þá tökum við öll bæði góðar og slæmar ákvarðanir. Þegar við skynjum að við þörfnumst siðbótar í lífi okkar, getum við tekið hughreystingu frá þessum tveimur jákvæðu þáttum á myrkum árum í sögu Júda. Ef til vill geta dæmin um Hiskía og Jósía hvatt okkur til að „treysta Drottni, Guði okkar“ (2. Konungabók 18:22).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

2. Konungabók 18–19

trúarskólatákn
Við getum verið trúföst Drottni þegar reynt er á trú okkar.

Flest upplifum við nokkuð sem reynir á trú okkar. Ein slík áskorun kom upp fyrir Hiskía og þjóð hans þegar hersveit Assýríu nálgaðist Jerúsalem. Þegar þið lesið 2. Konungabók 18–19, ímyndið ykkur þá að þið byggjuð í Jerúsalem á þessum tíma. Hvernig gæti ykkur t.d. hafa liðið við að heyra storkanir Assýríumanna í 2. Konungabók 18:28–37; 19:10–13? Hvað hefðuð þið gert? Berið saman ástæður Assýríumanna fyrir því að Ísraelsmenn treystu ekki Drottni og ástæður Satans fyrir því að við efumst um trú okkar á okkar tíma. Þið gætuð líka gert samanburð á ástæðum Assýríumanna og ástæðum ykkar fyrir því að þið treystið vissulega Drottni.

Hvað lærið þið af viðbrögðum Hiskía við þessum aðstæðum? (sjá 2. Konungabók 19:1–7, 14–19). Hvernig brást Drottinn við? (sjá 2. Konungabók 19:35–37). Af hverju haldið þið að Hiskía hafi verið trúfastur? (sjá 2. Konungabók 18:5–7). Íhugið hvernig Drottinn hefur veitt ykkur stuðning á erfiðum tímum. Hvað finnst ykkur þið hvött að gera til að auka traust á hann?

Boðskapur Jeffrey R. Holland forseta, „Óttast ekki, trú þú aðeins!“ (aðalráðstefna, apríl 2022), hefur að geyma gagnlega leiðsögn fyrir tíma ótta eða efasemda. Sálmur eins og „Fylkjum liði“ (Sálmar, nr. 93) hefur líka að geyma uppörvandi boðskap. Hvað finnið þið í þessu efni sem hjálpar ykkur?

Sjá einnig 2. Kroníkubók 31–32; 3. Nefí 3–4; Jörg Klebingat, „Hughraustur lærisveinn á síðari dögum,“ aðalráðstefna, apríl 2022.

Notið hjálpartæki ritningarnáms. Kirkjan veitir mörg úrræði til að hjálpa ykkur að skilja ritningarnar. Dæmi: Í Gospel Library getið þið fundið Leiðarvísi að ritningunum, Topics and Questions og kirkjutímaritin. Þegar þið lesið Gamla testamentið, getið þið auk þess fundið gagnlegt samhengi og skilning í greinunum „Ábendingar til að hafa hugfastar“ í Kom, fylg mér. Greinin sem heitir „Jesús býður þá Ísrael öllum: ‚Ó, komið nú heim‘“ gæti hjálpað ykkur við lestur 2. Konungabókar 16–25.

fjölskylda les ritningarnar saman

2. Konungabók 19:20–37

Allt er í höndum Drottins.

Sanheríb Assýríukonungur hafði góða ástæðu til að trúa að her hans gæti sigrað Jerúsalem (sjá 2. Konungabók 17; 18:33–34; 19:11–13). Drottinn hafði þó boðskap varðandi Sanheríb, gefinn með spámanninum Jesaja. Hann er skráður í 2. Konungabók 19:20–34. Hvaða sannleika finnið þið í boðskap Drottins sem hjálpar ykkur að trúa á hann og áætlun hans?

2. Konungabók 21–23

Ritningarnar geta snúið hjarta mínu til Drottins.

Hefur ykkur einhvern tíma fundist ykkur skorta eitthvað andlegt? Ef til vill fannst ykkur að samband ykkar við Guð gæti verið nánara. Hvað hjálpaði ykkur að snúa aftur til hans? Íhugið þessar spurningar er þið lesið 2. Konungabók 21–23, sem lýsir því hvernig konungsríkið Júda varð fráhverft Drottni undir stjórn Manasse konungs (sjá 2. Konungabók 21) og hvernig Jósía konungur hjálpaði fólkinu að snúa aftur til hans (sjá 2. Konungabók 22–23). Hvernig og hvers vegna breyttist Jósía og þjóð hans? (sjá 2. Konungabók 22:8–11; 23:1–6, 21, 24).

Spencer W. Kimball forseti sagði frásögnina um Jósía konung vera „eina bestu frásögnina í öllum ritningunum“ (Teachings of Presidents of the Church: Spencer W. Kimball [2006], 62). Lesið orð Kimballs forseta um Jósía konung (bls. 62–64). Þið gætuð ef til vill sagt frá reynslu þar sem eitthvað ritningarvers „hafði mikil áhrif“ á ykkur. Hvað gætuð þið gert til að hljóta fleiri slíkar upplifanir?

Sjá einnig Alma 31:5; „Josiah and the Book of the Law“ (myndband), Gospel Library.

12:25

Josiah and the Book of the Law

2. Konungabók 23:1–25

Sáttmáli er skuldbinding af allri sálu milli mín og Drottins.

Hvað vekur áhuga ykkar varðandi sáttmálann sem Jósía gerði í 2. Konungabók 23:3? Þegar þið haldið áfram að lesa kafla 23, gætið þá að því sem Jósía gerði til að sýna hollustu við Drottin (sjá einnig myndina aftast í þessum lexíudrögum). Hvernig getið þið sýnt skuldbindingu ykkar við hann?

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

2. Konungabók 18:3–6; 19:14–19

Ég get treyst himneskum föður og Jesú Kristi.

  • Hjálpið börnum ykkar að uppgötva í 2. Konungabók 18:3, 5–6 hvað gerði Hiskía að góðum konungi. Þegar þið svo lesið saman 2. Konungabók 19:14–19, gætu þau uppgötvað hvernig hann sýndi að hann treysti Drottni. Þið gætuð skoðað mynd af Jesú og rætt af hverju við getum treyst honum. Hvernig getum við sýnt að við treystum Drottni?

2. Konungabók 22:1–7

Himneskur faðir og Jesús Kristur geta treyst mér.

  • Hjálpið börnum ykkar að uppgötva í 2. Konungabók 22:1 hve gamall Jósía var þegar hann varð konungur. Hvað lærum við um Jósía í versi 2? Hugsið upp verkefni sem gæti sýnt að okkur ber að fylgja Drottni og að „víkja hvorki til hægri né vinstri“.

  • Verkamönnunum sem greint er frá í 2. Konungabók 22:3–7 var treyst fyrir fénu sem notað var til að endurbyggja musterið, „því að þeir báru sjálfir ábyrgð á verki sínu” (vers 7). Eftir lestur þessara versa, gætuð þið og börn ykkar rætt það sem ykkur hefur verið treyst fyrir. Hvernig getum við verið traustsins verð, líkt og verkamennirnir í þessum versum?

skrifari með Jósía konungi

Skrifari færir Jósía konungi ritningarbókrollu; myndskreyting: Robert T. Barrett

2. Konungabók 22:8–11; 23:2–3

Ritningarnar kenna mér að fylgja Jesú Kristi.

  • Til að kynna söguna um Jósía konung í 2. Konungabók 22–23, gætuð þið falið eintak af ritningunum einhvers staðar í herberginu. Bjóðið börnum ykkar að finna það. Þið gætuð síðan sagt frá því sem gerðist þegar einn af prestum Jósía fann ritningarnar í musterinu (sjá 2. Konungabók 22:8–11; sjá einnig „Jósía konungur“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 148–49). Hvað gæti komið fyrir okkur ef við hefðum ekki ritningarnar? Miðlið hvert öðru ástæðu þess að þið eruð glöð yfir því að við höfum ritningarnar í dag.

    1:36

    King Josiah

  • Eftir að hafa lesið 2. Konungabók 23:2–3, gætuð þið og börn ykkar rætt ritningarvers sem hafa innblásið ykkur að „fylgja Drottni“ (vers 3). Þið gætuð líka sungið söng um ritningarnar, t.d. „Rannsaka og biðja“ (Barnasöngbókin, 66).

2. Konungabók 23:1–3

Ég mun halda sáttmála mína við Guð.

  • Þegar Jósía og fólk hans lærði boðorð Guðs gerði það sáttmála um að lifa eftir þeim. Lesið um þetta með börnum ykkar í 2. Konungabók 23:1–3 og hjálpið þeim að finna orð eða orðtök sem sýna hvað fólkinu fannst um boðorð Drottins. Börn ykkar gætu ef til vill staðið upp og rætt hvað það gæti þýtt að „gangast undir sáttmálann“. Þau gætu síðan gengið á sínum stað og rætt hvað það gæti þýtt að „fylgja Drottni“. Því næst gætu þau lagt hendur á hjartastað og lagt til leiðir til að halda sáttmála sína „af öllu hjarta“.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

fólk dregur niður styttu með reipi

Fólk Jósía flytur skurðgoð úr borginni; myndskreyting: William Hole

Verkefnasíða Barnafélagsins: Ritningarnar kenna mér að fylgja Jesú Kristi