Kom, fylg mér
29. júní–5. júlí. „Ef Drottinn er Guð, fylgið honum“: 1. Konungabók 12–13; 17–22


„29. júní–5. júlí. ‚Ef Drottinn er Guð, fylgið honum‘: 1. Konungabók 12–13; 17–22,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„29. júní–5. júlí. ‚Ef Drottinn er Guð, fylgið honum‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Elía fyrir framan brennifórnaraltari

Elía deilir við Baalsprestana, eftir Jerry Harston

29. júní–5. júlí: „Ef Drottinn er Guð, fylgið honum“

1. Konungabók 12–13; 17–22

Ísraelsætt var klofin og tvístruð. Konungsríkið var tvískipt, tíu ættkvíslir mynduðu norðurríkið Ísrael og tvær ættkvíslir mynduðu suðurríkið Júda. En verri en aðskilnaður þeirra var aðskilnaður beggja konungsríkjanna frá sáttmálum sínum. Ranglátir konungar leiddu fólkið frá Drottni og margir meðal þess voru á báðum áttum í trúnni.

Við þessar aðstæður kallaði Drottinn Elía til að vera spámaður. Líf hans sýnir að einstaklingur getur búið yfir mikilli trú á Drottin, jafnvel í slæmum aðstæðum. Stundum bregst Drottinn við slíkri trú með áhrifamiklum, opinberum kraftaverkum, eins og með eldi sem fellur af himni. Hann vinnur þó líka hljóðlát, persónuleg kraftaverk, líkt og að mata dygga ekkju og son hennar. Oftast eru kraftaverk Drottins svo persónuleg að þau verða einungis kunnug einum einstaklingi – til að mynda þegar Drottinn opinberar sig og vilja sinn sem „þytur af þýðum blæ“ (1. Konungabók 19:12).

Til frekari upplýsingar um Elía, sjá þá „Elía“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Konungabók 12:1–20

Kristilegir leiðtogar blessa fólkið sem þeir leiða.

Hvernig mynduð þið lýsa mistökunum sem Rehabeam konungur, sonur Salómons, gerði í 1. Konungabók 12:1–14? Hvaða kristilegir eiginleikar gætu hafa hjálpað Rehabeam að bjarga ríki hans? (sjá vers 7; Matteus 20:25–28; Mósía 2:10–21). Hvernig getið þið notað þessa eiginleika sem leiðtogar – hvort heldur í kirkjuköllun eða sem leiðtogi eigin lífs?

1. Konungabók 17:8–16; 19:19–21

trúarskólatákn
Boð um að fórna er tækifæri fyrir mig til að iðka trú mína á Jesú Krist.

Spámaðurinn Elía bað ekkju nokkra að gefa sér mat og vatn áður en hún gæfi sjálfri sér og sveltandi syni sínum að borða. Af hverju gerði hann það? Beiðni Elía mætti líta á sem blessun fyrir þessa litlu fjölskyldu. Þau þurftu á blessunum Drottins að halda og fórn færir blessanir – þar á meðal blessun sterkari trúar.

Þegar þið lesið 1. Konungabók 17:8–16, ímyndið ykkur þá að þið væruð þessi ekkja. Hvað hrífur ykkur varðandi hana? Þið gætuð líka skráð ákvarðanir sem krefjast trúar á Jesú Krist (sjá t.d. Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum [2022]). Hvað lærið þið af þessari ekkju um trúariðkun?

Hvernig svipar gjörðum Elísa í 1. Konungabók 19:19–21 til breytni ekkjunnar?

Íhugið fórnir ykkar til að fylgja frelsaranum. Hvað kennir 1. Konungabók 17:8–16; 19:19–21 ykkur um þessar fórnir? Hvernig hjálpar vitneskja ykkar um frelsarann þegar hann biður ykkur að færa fórnir? Hvernig hefur hann blessað ykkur?

Sjá einnig Matteus 4:18–22; 6:25–33; Lúkas 4:24–26; „Elijah and the Widow of Zarephath“ (myndband), Gospel Library; „Trú mín er á Krist,“ Sálmar, nr. 34.

10:13

Elijah and the Widow of Zarephath

1. Konungabók 18

„Ef Drottinn er Guð, fylgið honum.“

Ísraelsmönnum gæti hafa fundist góð ástæða að baki þess að tilbiðja Baal, sem var kunnur sem guð storma og regns. Eftir þriggja ára þurrkatíð, þurftu þeir sárlega á rigningu að halda. Tilbeiðsla Baals var almennt viðurkennd og konungur og drottning hvöttu til hennar. Þegar þið lesið 1. Konungabók 18, íhugið þá hvers vegna einhver á okkar tíma gæti verið hikandi við að fylgja Drottni. Hvað haldið þið að Drottinn hafi verið að reyna að kenna um sig sjálfan í þessum kafla? Hvaða upplifanir hafa hjálpað ykkur að einsetja ykkur að fylgja frelsaranum?

Sjá einnig D. Todd Christofferson, „Choice and Commitment“ (heimslæg trúarsamkoma fyrir ungt fólk, 12. jan. 2020), Gospel Library.

Elía á Hórebfjalli

Teikning af Elía, eftir Wilson Ong

1. Konungabók 19:1–18

Drottinn talar oft á lágværan og hljóðan hátt.

Því miður gerði kraftaverkið á Karmelfjalli verkefni Elía ekki auðveldara. Í raun var líf hans í hættu og hann varð að fela sig í helli í óbyggðunum. Þar háði hann baráttu við einmanaleika og vanmátt og hlaut reynslu með Drottni sem var afar frábrugðin upplifuninni á Karmelfjalli. Hvað kennir reynsla Elía í 1. Konungabók 19:1–18 um það hvernig Drottinn hefur samskipti við ykkur á tíma neyðar?

Íhugið hvenær ykkur finnst Drottinn hafa talað til ykkar. Hvernig mynduð þið lýsa því hvernig hann hefur samskipti við ykkur? Af hverju eru orðin „hljóðlát“ og „lágvær“ vel lýsandi fyrir rödd andans? Hvaða önnur orð finnið þið í Helaman 5:30; Kenning og sáttmálar 6:22–23; 11:12–14? Hvað þurfið þið að gera til að hljóta oftar leiðsögn Drottins?

Sjá einnig Sálmana 46:11.

Notið mörg skilningarvit til að auðga námið. Við lærum öll um heiminn með skilningarvitunum fimm. Notkun þessara skilningarvita getur einnig auðgað trúarnámið. Hugsið t.d. um myndir eða hljóð sem þið gætuð notað til að útskýra orðin „hljóðlát“ og „lágvær“ er þið lærið eða kennið um rödd Drottins í 1. Konungabók 19.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Konungabók 17

Drottinn blessar mig þegar ég trúi á hann.

  • Til að hjálpa börnum ykkar að læra trúarsögur í 1. Konungabók 17, gætuð þið sýnt þeim hluti eða myndir til að útskýra sögurnar, eins og af fuglum, brauði eða dreng. Þegar þið segið börnum ykkar þessar sögur, bjóðið þeim þá að finna myndina eða hlutinn sem á við hverja frásögn. Kaflinn „Spámaðurinn Elía“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 121–24) getur hjálpað ykkur að segja þessar sögur. Hvað kennir hver þessara sagna okkur um að trúa á Jesú Krist?

    1:58

    Elijah the Prophet

  • Hjálpið börnum ykkar að hugsa um leiðir til að sýna trú sína á Jesú Krist. Syngið með þeim söng um trú, t.d. „Trú“ (Barnasöngbókin, 50) og miðlið hvert öðru því sem þið lærið um trú af söngnum.

Elía, ekkja og sonur hennar

Teikning af Elía og lækningu sonar ekkjunnar, eftir Charles Edmund Brock

1. Konungabók 17:8–16

Þegar Drottinn biður mig um að fórna, get ég hlýtt í trú.

  • Börn ykkar gætu ef til vill teiknað mynd af því sem Drottinn bauð ekkjunni að gefa Elía (sjá 1. Konungabók 17:12–13) og af því sem ekkjan fékk í staðinn (sjá 1. Konungabók 17:15–16). (Sjá einnig verkefnasíðu þessarar viku.) Þau gætu líka leitað að myndum af öðru fólki sem gaf eitthvað upp á bátinn fyrir eitthvað enn betra. Bjóðið börnum ykkar að finna myndir í Trúarmyndabók eða Kom, fylg mér. Hverju býður Drottinn okkur að fórna? Hvernig blessar hann okkur?

1. Konungabók 18:17–39

Ég get valið að fylgja Jesú Kristi.

  • Þegar þið lesið saman 1. Konungabók 18:17–39, gætu börn ykkar valið vers og teiknað mynd af því sem þar er lýst. Þau gætu notað myndirnar sínar til að segja söguna með eigin orðum. (Sjá einnig „Elía og Baalsprestarnir,“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 125–28.)

    2:17

    Elijah and the Priests of Baal

  • Hjálpið börnum ykkar að hugsa um aðstæður þar sem þau gætu þurft að ákveða hvort þau eigi að fylgja Jesú Kristi eða ekki. Þau gætu ef til vill teiknað myndir af sjálfum sér að taka réttar ákvarðanir. Miðlið hvert öðru ástæðu þess að þið veljið að fylgja Jesú.

1. Konungabók 19:9–12

Drottinn talar til mín með hinni lágu og hljóðlátu röddu heilags anda.

  • Þegar þið dragið saman 1. Konungabók 19:9–12, bjóðið þá börnum ykkar að gera hreyfingar sem tákna sterkan vind, jarðskjálfta og eld. Bjóðið þeim síðan að sitja kyrr þegar þið segið saman hljóðlátri röddu: „Eftir eldinn kom þytur af þýðum blæ“ (vers 12). (Sjá einnig „Drottinn talar til Elía,“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 129–31.) Segið börnum ykkar frá því þegar þið hafið upplifað hina lágu, hljóðlátu rödd heilags anda.

    1:48

    The Lord Speaks to Elijah

  • Syngið saman söng um heilagan anda, svo sem „Heilagur andi“ (Barnasöngbókin, 56). Hvað getur truflað okkur frá því að bera kennsl á andann? Hvað getur hjálpað okkur að hlýða á hann?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

ekkjan frá Sarefta og sonur hennar

Ekkjan frá Sarefta, eftir Rose Datoc Dall

Verkefnasíða Barnafélagsins: Þegar Drottinn biður mig um að fórna, get ég hlýtt í trú