Kom, fylg mér
22.–28. júní. „Heyr þú í himninum [bæn] þeirra“: 2. Samúelsbók 11–12; 1. Konungabók 3; 6–9; 11


„22.–28. júní. ‚Heyr þú í himninum [bæn] þeirra‘: 2. Samúelsbók 11–12; 1. Konungabók 3; 6–9; 11,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„22.–28. júní. ‚Heyr þú í himninum [bæn] þeirra‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Salómon vígir musterið

Salómon vígir musterið í Jerúsalem, eftir James Tissot og fleiri

22.–28. júní: „Heyr þú í himninum [bæn] þeirra“

2. Samúelsbók 11–12; 1. Konungabók 3; 6–911

Sál, Davíð og Salómon, fyrstu þrír konungar Ísraels, lofuðu allir afar góðu í upphafi. Auðmjúkir, hugrakkir og vitrir, fundu þeir allir náð hjá Drottni – að minnsta kosti í fyrstu. Því miður lét hver konungur líka undan mannlegum veikleikum og freistingum. Þeir settu eigin þrár framar Drottni. Eins og við höfum séð aftur og aftur í ritningunum – og í okkar eigin lífi – þá leiddi það til harmleiks.

En nokkuð mikilvægt gerðist á valdatíma Salómons sem veitti von um stöðugleika í lífi sáttmálslýðsins. Salómon byggði musteri. Það átti að vera varanlegra hús Drottins en tjaldbúðin hafði verið. Það myndi líka tákna varanlegri návist Drottins meðal fólks hans. Salómon vissi að fólkið myndi áfram takast á við veikleika og ýmiss konar raunir. Þegar Salómon vígði hið nýja heilaga hús baðst hann fyrir til Drottins: „Þeir munu snúa sér aftur til þín af öllu hjarta. … Heyr þá … ákall þeirra og bæn“ (1. Konungabók 8:48–49). Það er hluti af því sem sáttmálar musterisins gera fyrir okkur – þeir skapa tengingu við Guð. Þeir tryggja okkur það loforð, að fyrir iðrun okkar og miskunn hans, mun hann „búa meðal“ okkar og aldrei yfirgefa okkur (1. Konungabók 6:13).

Til að fá yfirlit yfir 1. Konungabók, sjá þá Konungabækurnar í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

2. Samúelsbók 11; 12:1–14

trúarskólatákn
Drottinn getur hjálpað mér að taka góðar ákvarðanir þegar mín er freistað til að syndga.

Stundum horfum við á fólk sem virðist sterkt í trú sinni og teljum að freistingin hafi ekki áhrif á það. Hinar sorglegu ákvarðanir Davíðs, sem lýst er í 2. Samúelsbók 11, sýna glögglega að svo er ekki. Íhugið hvaða lærdóm þið getið dregið af þessari reynslu. Spurningar eins og þessar gætu hjálpað við að læra 2. Samúelsbók 11–12:

  • Hvaða ákvarðanir tók Davíð sem leiddi hann út á sífellt syndugri braut? Hvaða réttlátu ákvarðanir hefði hann getað tekið þess í stað? (Sjá einnig myndbandið „To Look Upon,“ Gospel Library.)

    4:15

    To Look Upon

    Notkun myndbanda. Myndbönd geta hjálpað ykkur að sjá fyrir ykkur frásagnirnar úr ritningunum og íhuga hvernig þær eiga við um ykkur. Íhugið hvernig þið getið notað þær til að auðga kennslu og nám. Dæmi: Þegar þið horfið á „To Look Upon“ (Gospel Library), íhugið þá að gera hlé á myndbandinu á ýmsum stöðum til að ígrunda eða ræða nokkrar þeirra spurninga sem lagðar eru til í þessu verkefni.

  • Hvernig reynir óvinurinn að leiða ykkur út á syndugar brautir? Hvaða ákvarðanir gætuð þið tekið núna til að vera andlega örugg?

  • Gætið að viðbrögðum Davíðs við frásögn Natans í 2. Samúelsbók 12:1–6. Hvað segja viðbrögð Davíðs um viðhorf hans til sjálfs sín? Hvað hefur Drottinn gert til að hjálpa ykkur að sjá ykkur sjálf í sannara ljósi?

  • Hvernig mynduð þið lýsa atburðunum í 2. Samúelsbók 11–12 með einnar setningar aðvörun?

Þegar þið lesið um slæmar ákvarðanir Davíðs, gætuð þið lært um hættur kláms og kynlífssyndar. Gott efni fyrir þetta er Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum, einkum kaflarnir „Hvað skal gera á þeirri stundu“ og „Líkami þinn er heilagur“ (bls. 21–28). Þið gætuð ef til vill leitað í þessari kennslubók að leiðsögn sem hefði hjálpað Davíð að taka betri ákvarðanir. Þið gætuð líka þess í stað lesið „Jesús Kristur mun hjálpa ykkur“ (bls. 6–9) og leitað að einhverju sem hefði hjálpað Davíð að snúa aftur til Drottins.

Íhugið að syngja sálm eins og „Ver hjá mér hverja stund“ (Sálmar, nr. 31) og íhugið hvernig frelsarinn hefur styrkt ykkur þegar freistingar herja á.

Sjá einnig 2. Nefí 28:20–24; Ulisses Soares, „Leitið að Kristi með hverri hugsun,“ aðalráðstefna, október 2020; „Taking Charge of Technology,“ Gospel Library; „Watch Your Step“ (myndband), Gospel Library.

2:36

Watch Your Step

1. Konungabók 3:1–15

Gjöf dómgreindar hjálpar mér að greina á milli rétts og rangs.

Ef Drottinn spyrði: „Segðu hvað þú vilt að ég gefi þér“ (1. Konungabók 3:5), hvers mynduð þið þá óska ykkur? Hvað hrífur ykkur varðandi ósk Salómons? Íhugið af hverju það er dýrmæt gjöf að hafa „vilja til að hlýða“ og geta „greint gott frá illu“ (vers 9). Hvað getið þið gert til að sækjast eftir þessari gjöf?

Sjá einnig Moróní 7:12–19.

1. Konungabók 6–8; 9:1–9

Vegna sáttmála sem gerðir eru í húsi Drottins, dvelur Drottinn hjá mér.

Í 1. Konungabók 6–7 finnið þið nákvæma lýsingu á hinu helga húsi sem Salómon reisti Drottni. Ef til vill finnst ykkur smáatriðin ekki eins mikilvæg og þau voru Ísraelsmönnum til forna. Lestur þessara kafla gæti þó veitt ykkur skilning á því hversu mikilvægt það var þeim að hafa hús Drottins. Af hverju eru það ykkur mikilvægt?

Þið gætuð íhugað hvað hinir mismunandi hlutar musteris Salómons gætu táknað. Dæmi: Íhugið hvað kerúbarnir, trén og blómin í 1. Konungabók 6:35 gætu táknað. (Sjá einnig 1. Mósebók 3:24.)

Í kafla 8 er sagt frá bæn Salómons þegar byggingu musterisins lauk (sjá vers 22–61). Íhugið að búa til lista yfir blessanirnar sem Salómon bað um. Hvað vekur áhuga ykkar varðandi þessar blessanir? (Gætið einnig að loforðum Drottins í 2. Konungabók 6:11–13; 9:1–9.) Ef þið hafið komið í hús Drottins, íhugið þá upplifun ykkar af tilbeiðslu þar. Hvernig hefur það hjálpað ykkur að hljóta blessanir Drottins að halda musterissáttmála?

Sjá einnig Kenning og sáttmálar 109; Henry B. Eyring, „Ég má til musterisins gá,“ aðalráðstefna, apríl 2021.

Barranquilla-musterið, Kólumbíu

Barranquilla-musterið, Kólumbíu

1. Konungabók 8:61; 11:1–11

„Hjarta hans var ekki einlægt gagnvart Drottni.“

Hver er merking þess að „[hjörtu yðar séu heil og óskipt gagnvart Drottni]“? (1. Konungabók 8:61). Er þetta öðruvísi en að gjörðir okkar séu fullkomnar? Hvernig þá? Lesið 1. Konungabók 11:1–11 og gætið að því sem Drottinn sagði um hjarta Salómons. Þið gætuð velt fyrir ykkur hvort það séu áhrif í lífi ykkar sem gætu snúið hjarta ykkar frá Drottni og að „öðrum guðum“.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

2. Samúelsbók 11

Drottinn getur blessað mig þegar mín er freistað.

  • Kaflinn „Davíð konungur“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 117–20, getur hjálpað ykkur að segja börnum ykkar söguna í 2. Samúelsbók 11. Þið gætuð beðið börn ykkar að tilgreina rangar ákvarðanir sem David tók og leggja til góðar ákvarðanir sem hann hefði getað tekið í staðinn. Hvað getum við gert þegar okkar er freistað sem getur hjálpað okkur að velja rétt?

    2:11

    King David

  • Að lesa um hörmulegar syndir Davíðs, gæti veitt gott tækifæri til að ræða hættuna sem felst í klámefni. Myndbandið „What Should I Do When I See Pornography?“ (Gospel Library) hefur gagnlega leiðsögn. Hjálpið börnum ykkar að gera áætlun um viðbrögð þegar klámefni ber fyrir augu.

    5:46

    What should I do when I see pornography?

1. Konungabók 8:22–61

Að gera sáttmála í húsi Drottins – og halda þá – hjálpar mér að ganga á hans vegum.

  • Þegar þið og börn ykkar lærið um vígslu musterisins í 1. Konungabók 8, gætuð þið skoðað myndir af musterum í lexíudrögum þessarar viku. Látið börn ykkar ræða allt sem þau sjá á myndunum. Þið gætuð lagt áherslu á vers 57–58. Hver er merking þess að „vér göngum á [Drottins] vegum“? (1. Konungabók 8:58). Börn ykkar gætu ef til vill tekið eitt skref fyrir hvert svar sem þau gefa.

  • Segið börnum ykkar hvernig það hjálpar ykkur að ganga á Drottins vegum að halda sáttmálana sem þið gerið í musterinu. Þið gætuð sagt þeim hverjir þessir sáttmálar eru (sjá Almenn handbók, 27.2, Gospel Library). Þið gætuð líka sungið saman söng eins og „Musterið“ (Barnasöngbókin, 99).

Musteri Salómons

Myndskreyting af musteri Salómons, eftir Sam Lawlor

1. Konungabók 11:1–11

Ég get haft Drottin í fyrirrúmi í lífi mínu.

  • Að lesa um hvernig eiginkonur Salómons höfðu áhrif á hann, gæti leitt til umræðna um dæmi um „aðra guði“ – eða hluti sem fólk tilbiður eða elskar í stað Drottins. Hvernig sýnum við að við elskum hann meira en nokkuð annað í lífi okkar?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Musteri Salómons

Vígsla musteris Salómons í Jerúsalem, eftir William Hole

Verkefnasíða Barnafélagsins: Að gera sáttmála í húsi Drottins, hjálpar mér að ganga á hans vegum