Kom, fylg mér
15.–21. júní. „Þetta er stríð Drottins“: 1. Samúelsbók 17–18; 24–26; 2. Samúelsbók 5–7


„15.–21. júní. ‚Þetta er stríð Drottins‘: 1. Samúelsbók 17–18; 24–26; 2. Samúelsbók 5–7,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„15.–21. júní. ‚Þetta er stríð Drottins‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Davíð heldur á slöngvu

Davíð og Golíat, eftir Steve Nethercott

15.–21. júní: „Þetta er stríð Drottins“

1. Samúelsbók 17–18; 24–26; 2. Samúelsbók 5–7

Allt frá því að ættkvíslir Ísraelsmanna höfðu numið land í fyrirheitna landinu, höfðu Filistear stöðugt ógnað öryggi þeirra. Drottinn hafði oftsinnis komið þeim til bjargar á liðinni tíð, en öldungarnir settu nú fram þessa kröfu: „Við viljum hafa konung … [sem] skal fara fyrir okkur og heyja stríð okkar“ (1. Samúelsbók 8:19–20). Sál var því smurður til konungs. Þegar Sál hins vegar sá hinn ógnvekjandi risa Golíat hreyta áskorun sinni framan í Ísraelsher, þá varð hann „mjög hræddur“ – eins og aðrir í hersveitinni (1. Samúelsbók 17:11). Það var ekki Sál konungur sem bjargaði Ísrael dag þennan, heldur auðmjúkur drengur að nafni Davíð, sem ekki var í herklæðum, heldur íklæddur óhagganlegri trú á Drottin. Þessi orrusta gerði Ísraelsmönnum ljóst, og öllum þeim sem há andlegar orrustur, að „Drottinn frelsar ekki með sverði og spjóti“ og að „þetta er stríð Drottins“ (1. Samúelsbók 17:47).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Samúelsbók 17

trúarskólatákn
Ég get sigrast á öllum áskorunum með liðsinni Drottins.

Sagan um Davíð og Golíat er ein best þekkta saga ritninganna. Auðvitað einblínum við yfirleitt á Davíð. Þegar þið lesið 1. Samúelsbók 17 í þetta sinn, íhugið þá orð hinna ýmsu einstaklinga í þessum kafla (sjá nafnalista hér að neðan). Hvað lærið þið um þá og tilgang þeirra? Hvað lærið þið um Davíð? Hvernig er hann öðruvísi?

  • Golíat: vers 8–10, 43–44

  • Elíab: vers 28

  • Sál: vers 33

  • Davíð: vers 26, 32, 34–37, 39, 45–47

Þótt saga ykkar sé ekki jafn vel þekkt og saga Davíðs, þá mun hún örugglega hafa að geyma áskoranir á stærð við Golíat við að sigrast á og tækifæri til að iðka trú á Drottin. Hvað kennir fordæmi Davíðs í sögunni ykkur um að takast á við áskoranir? Þið gætuð líka lesið boðskap Camille N. Johnson forseta, „Bjóðið Kristi að vera höfundur sögu ykkar“ (aðalráðstefna, október 2021) með eina af áskorunum ykkar í huga. Leitið svara við spurningum sem þessum: Hvernig vill Drottinn að ég líti á áskoranir mínar? Hvernig hefur hann hjálpað mér á liðinni tíð? Hvernig get ég sýnt að ég treysti honum til að skrifa sögu mína?

Þið vitið kannski nú þegar að það koma sorgarkaflar í sögu Davíðs síðar (sjá t.d. 2. Samúelsbók 11). Hvað mynduð þið segja ef þið fenguð tækifæri til að gefa Davíð ráð eftir bardagann við Golíat? Hvernig gæti þetta ráð átt við um líf ykkar?

Sjá einnig „The Lord Will Deliver Me“ (myndband), Gospel Library.

3:24

The Lord Will Deliver Me

1. Samúelsbók 17:26–50

Ein manneskja sem trúir á Krist getur skipt sköpum.

Auk persónulegra áskorana, stöndum við einnig frammi fyrir miklum og flóknum vandamálum sem hafa áhrif á allan heiminn. Þegar hin illu öfl „draga [sig] saman … til bardaga“ gegn hinum góðu öflum (1. Samúelsbók 17:1), gætum við velt fyrir okkur hvernig einstaklingsframtak okkar gæti mögulega gert gæfumuninn. Hvað finnið þið í sögunni um Davíð sem veitir ykkur von?

Sjá einnig „Fylkjum liði,“ Sálmar, nr. 93.

Jónatan og Davíð

Sönn vinátta og sjálfsvirðing, eftir Wilson Ong (hluti af mynd)

1. Samúelsbók 18

„Jónatan elskaði [Davíð] eins og sjálfan sig.“

Þegar þið lesið 1. Samúelsbók 18, íhugið þá að gera samanburð á Sál og Jónatan syni hans (sem hefði getað vænst þess að verða næsti konungur, ef ekki hefði verið fyrir Davíð). Hvernig brugðust Sál og Jónatan við velgengni Davíðs? Hvað getið þið lært af þessari upplifun?

Hvað finnið þið í viðhorfi og verkum Jónatans sem minnir ykkur á Jesú Krist?

„Tileinkið [ykkur] ritningargreinarnar“ (1. Nefí 19:23). Ritningarnar veita frábært tækifæri til að læra af ásetningi og verkum fólks eins og Davíðs, Jónatans og Sáls. Þið munuð komast að því að enginn í ritningunum er óaðfinnanlegur. Þegar þið til dæmis lesið um trúfastar ákvarðanir Davíðs, verið þá opin fyrir að læra líka af mistökum hans. Það getur hjálpað við að koma auga á hugsanlega veikleika okkar sjálfra svo við fáum „lært og orðið vitrari“ en aðrir hafa verið (Mormón 9:31).

1. Samúelsbók 24–26

Fyrirgefning er örugg leið til friðar og lækningar.

Leitið að lexíum í 1. Samúelsbók 24–26 um dramb, fyrirgefningu og sjálfsstjórn. Þið gætuð líka íhugað að lesa boðskap öldungs Marks A. Bragg, „Kristilegt jafnaðargeð“, sem hluta af námi ykkar (aðalráðstefna, apríl 2023). Hvernig sýndu Davíð, Abígail og fleiri kristilegt jafnaðargeð í þessum köflum? Hvaða tækifæri hafið þið til að sýna kristilegt jafnaðargeð?

Boðskapur systur Kristen Yee, „Höfuðdjásn í stað ösku: Hinn læknandi vegur fyrirgefningar“ (aðalráðstefna, október 2022), getur hjálpað ykkur að læra 1. Samúelsbók 25. Hvernig er Abígail eins og Jesús Kristur?

2. Samúelsbók 5:17–25

Drottinn getur veitt mér leiðsögn.

Jafnvel eftir að Davíð hafði sigrað Golíat, var vandamálum hans gagnvart Filisteum ekki lokið. Þegar þið lesið 2. Samúelsbók 5:17–25, íhugið þá hvernig fordæmi Davíðs getur hjálpað ykkur við eigin áskoranir (sjá einnig 1. Samúelsbók 23:2, 10–11; 30:8; 2. Samúelsbók 2:1). Hvernig hafið þið verið blessuð af því að bregðast við þeirri opinberun sem þið hlutuð?

2. Samúelsbók 7

Hvaða „húsi“ lofaði Drottinn Davíð?

Þegar Davíð bauðst til þess að byggja hús, sem væri musteri, fyrir Drottin (sjá 2. Samúelsbók 7:1–3), svaraði Drottinn að sonur Davíðs myndi byggja það (sjá vers 12–15; sjá einnig 1. Kroníkubók 17:1–15). Drottinn sagði líka að þess í stað myndi hann byggja Davíð „hús“, sem væri ætt hans, og að konungsdæmi hans skyldi standa ævinlega (sjá 2. Samúelsbók 7:11, 16, 25–29; Sálmarnir 89:4–5, 36–38). Þetta loforð uppfylltist með Jesú Kristi, hinum eilífa konungi okkar, sem var afkomandi Davíðs (sjá Matteus 1:1; Lúkas 1:32–33; Jóhannes 18:33–37).

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Samúelsbók 17:20–54

Trú á Jesú Krist getur hjálpað mér að sýna hugrekki.

  • Þið gætuð viljað nota „Davíð og Golíat“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 112–16, til að hjálpa börnum ykkar að skilja það sem gerðist í 1. Samúelsbók 17:20–54. Þið gætuð síðan leyft þeim að endursegja söguna með því að nota myndirnar eða línuteikningarnar í þessum lexíudrögum. Spyrjið þau að því hvað þau telji að Drottinn vilji að þau læri af þessari frásögn.

    2:36

    David and Goliath

  • Þið og börn ykkar gætuð líka skráð einhverjar erfiðar áskoranir sem þau gætu staðið frammi fyrir í lífi sínu. Hjálpið þeim síðan að finna það sem Davíð sagði, sem getur hjálpað við slíkar áskoranir (sjá 1. Samúelsbók 17:26, 32, 34–37, 45–47). Segið frá því hvernig Jesús Kristur hefur hjálpað ykkur í erfiðleikum.

  • Börn ykkar gætu marserað eins og þau væru Davíð að fara að berjast við Golíat meðan þau syngja söng um hugrekki, eins og „Hetja vil ég vera“ (Barnasöngbókin, 85).

1. Samúelsbók 18:1–4

Góðir vinir geta verið blessun frá Guði.

  • Hvernig getið þið hjálpað börnum ykkar að læra af vináttu Jónatans og Davíðs? Ein leið væri að gefa hverju barni tvö pappírshjörtu, annað til að tákna Davíð og hitt til að tákna Jónatan. Lesið síðan saman nokkrar setningar í 1. Samúelsbók 18:1–4 sem leggja áherslu á kærleikann sem þessir tveir vinir höfðu hvor til annars. Börn ykkar gætu síðan skrifað eða teiknað á pappírshjörtu sín hvernig þau geta sýnt vini elsku.

2. Samúelsbók 5:19, 23

Ég get spurt himneskan föður ef ég þarfnast leiðsagnar.

  • Í þessum köflum varð Davíð konungur Ísraels. Það gæti verið skemmtilegt fyrir börn ykkar að þykjast vera konungur eða drottning. Hvaða lög myndu þau setja? Hvert færu þau til að leita sér liðsinnis? Hjálpið börnum ykkar að skilja að þegar Davíð þarfnaðist hjálpar, þá „leitaði hann“ eða baðst fyrir til að fá svör. Þegar þið t.d. lesið 2. Samúelsbók 5:19, 23, bjóðið þá börnunum að hlusta eftir orðtakinu „leita svara“ og krossleggja hendur þegar þau heyra það. Af hverju þurfti Davíð hjálp Drottins í þessu nýja hlutverki?

  • Segið hvert öðru frá því þegar þið báðuð um liðsinni himnesks föður. Hverju breytti það að fá hann til að hjálpa ykkur?

stúlka á bæn

2. Samúelsbók 7:16–17

Jesús Kristur er eilífur konungur minn.

  • Konungarnir sem við lesum um í Gamla testamentinu höfðu allir misbresti og ríki þeirra liðu undir lok. Jesús Kristur er hins vegar fullkominn konungur og mun ríkja að eilífu. Þið getið hjálpað börnum ykkar að uppgötva þetta með því að lesa saman það sem spámaðurinn Natan sagði við Davíð konung í 2. Samúelsbók 7:16–17. Hvernig gat ríki Davíðs átt sér engan endi? Hjálpið börnum ykkar að finna og lesa ritningarhluta sem kenna að Jesús Kristur, afkomandi Davíðs, sé konungur okkar, eins og Lúkas 1:32–33; Jóhannes 18:33–37; og Opinberunarbókin 19:16. Hvernig er Jesús öðruvísi jarðneskum konungum? Hvernig heiðrum við Jesú Krist sem eilífan konung okkar?

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Davíð og Golíat

Myndskreyting af Davíð, eftir Dilleen Marsh

Verkefnasíða Barnafélagsins: Trú á Jesú Krist getur hjálpað mér að sýna hugrekki