Kom, fylg mér
8.–14. júní. „Drottinn horfir á hjartað“: 1. Samúelsbók 8–10; 13; 15–16


„8.–14. júní. ‚Drottinn horfir á hjartað‘: 1. Samúelsbók 8–10; 13; 15–16,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„8.–14. júní. ‚Drottinn horfir á hjartað‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Jesús heldur á staf

Við lygn vötn, eftir Simon Dewey

8.–14. júní: „Drottinn horfir á hjartað“

1. Samúelsbók 8–10; 13; 15–16

Sál gætti asna. Þótt hann væri stórvaxinn og myndarlegur, fannst honum hann sjálfur vera „smár“ og hann var uppburðarlítill varðandi eigin ættararfleifð (sjá 1. Samúelsbók 9:2–3, 21; 15:17). Daginn sem kynna átti hann fyrir Ísrael sem konung þeirra mætti hann ekki; hann var svo taugaóstyrkur að hann hafði „falið sig“ (1. Samúelsbók 10:21–22). Þegar þið horfið á Sál, gætuð þið ekki hafa getið ykkur til um að hann myndi leiða Ísraelsmenn til sigurs yfir óvinum sínum – eða að hann myndi síðar verða drambsamur og gera uppreisn gegn Drottni.

Davíð var fjárhirðir. Hann var ekki eins tilkomumikill líkamlega og eldri bræður hans sjö. Daginn sem Samúel kom til að velja nýjan konung fyrir Ísrael, virtist það ekki þess virði að hafa Davíð með meðal mögulegra valkosta, svo hann var skilinn eftir úti í haga með sauðféð. Ef þið lituð á Davíð, hefði ykkur kannski ekki dottið í hug að hann myndi hafa trú og hugrekki til að sigra risa og verða sigursælasti konungur Ísraels.

Drottinn horfir þó fram hjá skilgreiningum okkar, útliti og óöryggi. Hann „horfir á hjartað“ (1. Samúelsbók 16:7). Jafnvel þótt hjarta okkar sé ekki alveg einlægt, mun hann gefa okkur „[umbreytt hjarta]“ ef við erum fús til þess (1. Samúelsbók 10:9).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

1. Samúelsbók 8

Jesús Kristur er konungur minn.

1. Samúelsbók 8 segir frá atburði sem átti eftir að breyta örlögum Ísraelsmanna varanlega. Ísraelsmenn vildu, sér til verndar gegn óvinum sínum, fá það sem nágrannar þeirra áttu – konung til að ríkja yfir þeim. Þegar þið lesið um beiðni þeirra og viðbrögð Drottins, hugsið þá um til hvers þið leitið eftir öryggi og leiðsögn. Íhugið merkingu þess að láta Drottin „[ríkja yfir okkur]“ (1. Samúelsbók 8:7).

Á næstu vikum munið þið lesa um fjölda konunga sem hafa verið kallaðir til að leiða Ísrael. Hugleiðið eftirfarandi spurningar þegar þið lærið um þá:

  • Hvernig uppfylltust aðvaranir Drottins í 1. Samúelsbók 8:10–18?

  • Hvaða áhrif hafði það á Ísraelsmenn að velja að hafa jarðneskan konung?

  • Hvernig er Jesús Kristur öðruvísi jarðneskum konungum? Íhugið hvaða veraldlegu áhrif þið þurfið að fjarlægja úr lífi ykkar til að Kristur verði konungur ykkar?

Sjá einnig: „Nú fagna vér skulum,“ Sálmar, nr. 3.

1. Samúelsbók 9–10; 16:1–13

Guð kallar fólk til þjónustu í ríki sínu með spádómi.

Lesið um það hvernig Guð valdi konunga Ísraels í 1. Samúelsbók 9–10 og16 (sjá einkum 9:15–17; 10:1–12; 16:1–13). Leitið að versum sem hjálpa ykkur að skilja merkingu þess að „vera kallaður af Guði með spádómi“ í kirkju Drottins á okkar tíma (Trúaratriðin 1:5). Þið gætuð íhugað að setja ykkur sjálf í spor leiðtogans sem veitir köllunina (Samúel), þess sem kallaður er (Sál og Davíð) og fólksins sem þeir eru kallaðir til að þjóna (Ísraelsmenn). Hvað lærið þið af orðum þeirra og verkum í þessum kafla?

Samúel smyr Sál

Myndskreyting af Samúel að smyrja Sál, eftir P. Mann, © Lifeway Collection/birt með leyfi goodsalt.com

1. Samúelsbók 13:5–14; 15

„Hlýðni er betri en fórn.“

Þegar haft er í huga hve huglítill Sál virtist vera í 1. Samúelsbók 10, sætir furðu að lesa um „þrjósku“ hans og „þvermóðsku“ eftir að hann varð konungur (1. Samúelsbók 15:23). Af hverju haldið þið að þetta hafi gerst? Hvaða viðhorf og atferli sjáið þið í 1. Samúelsbók 13:5–14 sem leiddu til falls hans?

Í 1. Samúelsbók 15 getið þið lesið um boðorð frá Drottni sem Sál hlýddi ekki, því honum fannst hann hafa gilda ástæðu. Til að læra af slæmu vali Sáls, lesið þá vers 22 og skiptið út orðunum „fórn“ og „hrútafeiti“ fyrir það sem virðist gott en er ekki jafn mikilvægt og að heyra og hlýða á Drottin. Hvernig hafið þið verið blessuð þegar þið hafið haft vilja Drottins í fyrirrúmi í lífi ykkar?

1. Samúelsbók 16:6–12

trúarskólatákn
„Drottinn horfir á hjartað.“

Hafið þið einhvern tíma tekið ákvörðun út frá „ytra útliti“ eitthvers eða einhvers, einungis til að komast að því að þið höfðuð rangt fyrir ykkur? Ef til vill borðuðuð þið eitthvað sem var ekki eins gott og það leit út fyrir að vera. Ef til vill dæmduð þið einhvern ósanngjarnt.

Þegar Samúel leitaði að nýjum konungi yfir Ísrael, kenndi Drottinn honum betri leið. Lesið um hana í 1. Samúelsbók 16:6–7 og íhugið að skrá hvernig fólk dæmir aðra eftir „hinu ytra“. Þið getið fundið nokkur dæmi í boðskap öldungs Christophe G. Giraud-Carrier, „Við erum börn hans“ (aðalráðstefna, október 2023). Hver er merking þess að horfa „á hjartað“ eins og Drottinn gerir? (1. Samúelsbók 16:7). Þið getið einnig fundið dæmi um þetta í boðskap öldungs Giraud-Carrier. Þið getið ef til vill hugsað um önnur skipti þar sem frelsarinn horfði fram hjá útliti einhvers einstaklings. (Sjá t.d. Markús 12:41–44; Lúkas 5:1–11; 19:1–9; Jóhannes 4:5–30; HDP Móse 6:31–36.) Hvað lærið þið af þessum dæmum?

Hvernig getið þið fylgt fordæmi frelsarans í því hvernig þið sjáið aðra – og ykkur sjálf? Hvernig gæti það haft áhrif á samskipti ykkar við aðra? Íhugið að segja einhverjum frá gæskunni sem þið sjáið í hjarta þeirra.

Sjá einnig Ulisses Soares, „Bræður og systur í Kristi,“ aðalráðstefna, október 2023.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

1. Samúelsbók 8

Jesús Kristur er konungur minn.

  • Þegar þið lesið 1. Samúelsbók 8 með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að finna ástæður þess að Samúel sagði Ísraelsmönnum að slæmt væri að hafa konung. Af hverju er betra að hafa Jesú Krist sem konung okkar? Ef til vill gætuð þið búið til pappírskórónu saman og skipst á að krýnast henni og sagt frá einhverju sem við getum gert til að sýna að við viljum að Jesús verði konungur okkar. (Sjá einnig Jeremía 23:5; Kenning og sáttmálar 45:59.)

1. Samúelsbók 8:6; 9:15–17; 10:1–24; 16:1–13

Fólk sem þjónar í kirkjunni er kallað af Guði.

  • Frásagnirnar af því þegar Guð útvaldi Sál og Davíð sem konunga geta hjálpað börnum ykkar að skilja hvernig fólk er útvalið með opinberun til að þjóna í kirkjunni á okkar tíma. Til að kenna börnum ykkar þessar sögur, gætuð þið skrifað atburði úr sögunum á blaðræmur og þau gætu raðað þeim í rétta röð þegar þið lesið ritningarhlutana saman (sjá einnig „Hinn ungi Davíð“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 110–11). Þið gætuð síðan rætt þær stundir þegar Guð blessaði ykkur með andlegum krafti til að leysa af hendi verkefni eða köllun (sjá 1. Samúelsbók 10:9–10).

    1:16

    Young David

  • Þetta gæti verið góður tími til að kenna börnum ykkar fimmta trúaratriðið. Segið þeim frá því hvernig þið hlutuð köllun ykkar í kirkjunni. Hvernig vitið þið að þið voruð kölluð af Guði?

Samúel smyr Davíð til konungs

Spámaðurinn Samúel smyr Davíð til konungs Ísraels í Betlehem, eftir Balage Balogh

1. Samúelsbók 16:1–13

Drottinn horfir á hjartað.

  • Sýnikennsla gæti hjálpað börnum ykkar að skilja regluna í 1. Samúelsbók 16:7. Dæmi: Þið gætuð sýnt þeim matvæli eða bók í umbúðum eða kápu sem ekki passar við raunverulegt innihald. Hvað gefa 1. Samúelsbók 16:7 og þessi sýnikennsla til kynna um það hvernig okkur ber að sjá okkur sjálf og annað fólk? Syngið söng sem leggur áherslu á þessa reglu, t.d. „Elskið hver annan“ (Barnasöngbókin, 84).

    Hafið sýnikennslu. Þegar börn ykkar hafa eitthvað að sjá og snerta sem tengist reglu fagnaðarerindisins, eru þau líklegri til að muna eftir henni. Þegar þið t.d. lesið 1. Samúelsbók 16:7 með þeim, gætuð þið látið þau hjálpa ykkur að finna dæmi um sjónhverfingar til að útskýra að við ættum að reyna að sjá eins og Drottinn gerir – með því að horfa „á hjartað“ – fremur en að fella dóma byggða á „hinu ytra“.

  • Þið og börn ykkar gætuð miðlað upplifunum þar sem þið lærðuð hvers vegna ykkur bar að „líta á hjartað,“ en ekki aðeins „hið ytra útlit“ (vers 7). Þið gætuð líka skipst á við að segja hvert öðru frá góðum eiginleikum sem þið sjáið í hjarta hvers annars.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Samúel ræðir við Sál

Samúel leiðbeinir Sál, eftir Ted Henninger

Verkefnasíða Barnafélagsins: Drottinn horfir á hjartað