Kom, fylg mér
1.–7. júní. „Hjarta mitt fagnar í Drottni“: Rutarbók; 1. Samúelsbók 1–7


„1.–7. júní. ‚Hjarta mitt fagnar í Drottni‘: Rutarbók 1; 1. Samúelsbók 1–7,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„1.–7. júní. ‚Hjarta mitt fagnar í Drottni‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Rut og Naomí ferðast saman

Hvert sem þú ferð, eftir Sandy Freckleton Gagon

1.–7. júní: „Hjarta mitt fagnar í Drottni“

Rutarbók; 1. Samúelsbók 1–7

Stundum finnst okkur að líf okkar eigi að vera eins og hindrunarlaus vegur frá upphafi til enda. Stysta leiðin á milli tveggja punkta er jú bein lína. Samt er lífið oft fyllt hindrunum og hjáleiðum sem leiða okkur í óvæntar áttir.

Rut og Hanna skildu þetta vissulega. Rut var ekki Ísraelíti en giftist einum slíkum og þegar eiginmaður hennar lést, þurfti hún að taka ákvörðun. Átti hún að fara aftur til fjölskyldu sinnar og taka upp sinn gamla lífshátt eða átti hún að meðtaka hina ísraelsku trú og vera áfram hjá tengdamóður sinni í hinum nýju heimkynnum? (sjá Rutarbók 1:4–18). Hanna hugðist eignaðist börn en gat það ekki, sem varð til þess að hún varð „full örvæntingar“ (sjá 1. Samúelsbók 1:1–10). Þegar þið lesið um Rut og Hönnu, íhugið þá trúna sem þær hljóta að hafa búið yfir til að fara sínar óvæntu leiðir. Þið gætuð síðan hugsað um ykkar eigin lífsleið. Hún er ólík Rutar og Hönnu – og allra annarra. Þið getið þó í lífsins raunum og óvæntum hlutum, fram að eilífum ákvörðunarstað ykkar, lært að segja með Hönnu: „Hjarta mitt fagnar í Drottni“ (1. Samúelsbók 2:1).

Sjá einnig Rut og Samúel, spámaður í Gamla testamenti í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Rutarbók

Jesús Kristur megnar að breyta hörmungum í sigur.

Lífið er erfitt fyrir ekkju á hvaða æviskeiði sem er. Þegar eiginmaður Rutar lést voru aðstæður hennar einkar erfiðar. Í menningu Ísraelsmanna á þessum tíma gat eiginkona ekkert tilkall gert til eigna án eiginmanns og erfitt var að afla sér viðurværis. Þegar þið lesið frásögnina um Rut, gætið þá að því hvernig Drottinn breytti harmi í miklar blessanir. Hverju takið þið eftir í fari Rutar sem gæti hafa hjálpað henni? Hvernig leysti Bóas Rut úr örvæntingarástandi hennar? (sjá Rutarbók 4:4–10). Hvernig voru bæði Rut og Bóas lík Jesú Kristi?

Sjá einnig „Ver hljóð, mín sál,“ Sálmar, nr. 41.

Rutarbók; 1. Samúelsbók 1

Ég get treyst því að Guð leiðbeini og liðsinni mér, burtséð frá aðstæðum mínum.

Ef til vill hefur missir ykkar verið mikill, líkt og Rutar og Naomí (sjá Rutarbók 1:1–5). Þið gætuð kannski þráð blessanir sem þið hafið enn ekki hlotið, líkt og Hanna gerði (sjá 1. Samúelsbók 1:1–10). Hvernig sýndu þessar konur trú sína á Guð? Hvað lærið þið af fordæmi þeirra?

Auðvitað eignast ekki allir barn sem um það biðja og ekki giftast allir aftur sem missa maka sinn. Allir sem snúa sér til frelsarans hljóta hins vegar hjálp hans og leiðsögn. Íhugið hvernig þið hafið „[leitað] verndar undir vængjum“ Drottins (Rutarbók 2:12) á erfiðum stundum lífsins.

Sjá einnig Amy A. Wright, „Standast daginn í Kristi,“ aðalráðstefna, október 2023.

Hanna og barnið hennar

Fyrir þessu barni bað ég, eftir Elspeth Young

1. Samúelsbók 2; 4–7

Ég þarf að treysta honum og hlýða boðorðum Drottins til að hljóta liðsinni hans.

Þegar óvinir Ísraelsmanna gerðu árás virtust þeir greinilega halda að það eitt að eiga sáttmálsörkina myndi vernda þá. Þegar þið lesið 1. Samúelsbók 4–6, íhugið þá ástæðu þess að það var ekki svo. (Gætið einnig að ranglátri breytni sona Elí í þjónustu sinni sem prestar í tjaldbúðinni í 1. Samúelsbók 2:12–25.) Hvað finnst ykkur Drottinn hafa verið að reyna að kenna lýð sínum? Hvað lærið þið af því sem gerðist með Filisteana eftir að þeir höfðu tekið örkina? (sjá kafla 5–6). Hvað lærið þið af tilraunum Ísraelsmanna til að endurheimta vernd Drottins í 1. Samúelsbók 7?

Þið gætuð hlotið innblástur af því að lesa lofgjörðarljóð Hönnu í 1. Samúelsbók 2:1–10. Hvað finnið þið í orðum hennar sem gæti hafa hjálpað sonum Elí og hinum Ísraelítunum?

1. Samúelsbók 3

trúarskólatákn
Ég get heyrt og hlýtt rödd Drottins.

Stundum gæti ykkur liðið eins og Samúel sem heyrði rödd Drottins en þekkti hana ekki. Samúel þurfti, eins og við öll, að læra að þekkja rödd Drottins. Hvað lærið þið af þessum unga dreng er þið lærið 1. Samúelsbók 3 um að heyra og hlíta rödd Drottins? Þið gætuð líka kannað þessi viðbótarvers og skráð leiðbeiningar sem geta hjálpað einstaklingi að þekkja rödd Drottins: 1. Konungabók 19:11–12; Lúkas 24:15–32; 3. Nefí 11:3–7; Kenning og sáttmálar 6:22–23; 8:2–3; 9:7–9.

Á öðrum stundum gæti ykkur fundist himnarnir lokaðir og Guð vilji ekki eiga samskipti við ykkur. Russell M. Nelson forseti sagði: „Vill Guð í raun tala til ykkar? Já!“ („Opinberun fyrir kirkjuna, opinberun fyrir eigið líf,“ aðalráðstefna, apríl 2018). Hvað finnið þið sem innblæs ykkur til að heyra og hlýða rödd Drottins, er þið lærið boðskap Nelsons forseta? Hvað býður Nelson forseti ykkur að gera og hvaða blessunum lofar hann? Þið getið líka fundið boð og fyrirheitnar blessanir varðandi opinberun í „Verið í ljósi Guðs“ (Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum, 16–20). Íhugið að velja eitthvað eitt sem þið gætuð gert til að „auka andlega hæfni ykkar til að hljóta opinberun“.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Rutarbók

Ég get sýnt fólki umhverfis mig elsku og góðvild.

  • Þegar þið miðlið börnum ykkar sögunni um Rut (þið gætuð notað „Rut og Naomí“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 100–103), biðjið þau þá að rétta upp hönd í hvert sinn sem þau heyra góðverk í frásögninni. Þau gætu líka sagt frá því hvernig þeim líður þegar aðrir eru góðir við þau eða þegar þau eru góð við aðra. Hvernig hefur frelsarinn verið góður við okkur? Hvernig getum við fylgt fordæmi hans? (sjá „Góðvildin hefst hjá mér,“ Barnasöngbókin, 83).

    2:0

    Ruth and Naomi

Rutarbók; 1. Samúelsbók 1

Ég get trúað á Drottin.

  • Sögurnar um Rut og Hönnu geta hvatt börn ykkar til að vera trúföst á erfiðum tímum. Íhugið að hjálpa þeim að búa til einfalda töflu með fyrirsögnunum Erfiðleikar, Verk, Blessanir. Þið gætuð síðan lesið saman Rutarbók 1:3–5, 8, 16; 2:1–3, 8–12; 4:13–17; 1. Samúelsbók 1:1–18 og skrifað undir fyrirsagnirnar það sem þau finna í þessum versum. Hvernig sýndu Rut og Hanna trú á Drottin? Þið eða börn ykkar gætuð síðan miðlað dæmum um það hvernig Drottinn hefur blessað ykkur á erfiðum tímum.

1. Samúelsbók 1:1–18

Himneskur faðir heyrir og svarar bænum mínum.

  • Til að læra um Hönnu, gætu börn ykkar lesið 1. Samúelsbók 1:1–18 eða „Hanna“ í Sögur úr Gamla testamentinu (104–5) eða horft á „Hannah‘s Faith“ (myndband, Gospel Library). Það gæti verið gaman að kasta bolta til barns og bjóða því að segja hluta sögunnar áður en það sendir boltann til einhvers annars. Hvað lærum við um bæn af fordæmi Hönnu?

    1:15

    Hannah

    3:9

    Hannah's Faith

Samúel og Elí

Samúel segir Elí sannleikann, eftir Robert T. Barrett

1. Samúelsbók 3:1–10

Ég get heyrt og hlýtt rödd Drottins.

  • Ef til vill gæti einfaldur hlutverkaleikur hjálpað börnum ykkar að læra af reynslu Samúels af opinberun. Eitt barn gæti látist vera Samúel og annað gæti látist vera Elí við lestur 1. Samúelsbókar 3:1–10 (sjá einnig „Spámaðurinn Samúel“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 106–9, eða myndbandið „Samuel og Eli,“ Gospel Library). Hvað lærum við af Samúel um hvernig heyra á rödd Drottins? Hvernig sýnum við að við erum fús til að hlusta þegar Drottinn talar til okkar?

    2:10

    Samuel the Prophet

    1:58

    Samuel and Eli

  • Spyrjið börn ykkar að því hvernig þau myndu útskýra fyrir einhverjum hvernig Drottinn talar til þeirra. Þið gætuð hjálpað þeim að leita svara í Kenningu og sáttmálum 6:22–23; 8:2–3; 9:7–9.

Hjálpið börnum ykkar að læra að bera kennsl á andann. Það er ekki auðvelt að greina á milli eigin tilfinninga og heilags anda. Allir glíma við þetta af og til. Grípið hvert tækifæri sem gefst til að hjálpa börnum ykkar að skilja hvenær þau finna fyrir áhrifum andans. Dæmi: Þegar þið lesið 1. Samúelsbók 3:1–10 og versin sem lögð eru til í Kenningu og sáttmálum, gætuð þið miðlað upplifunum þar sem Drottinn hefur kennt ykkur í huga ykkar og hjarta.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Samúel vaknar í rúminu

Drengurinn Samúel kallaður af Drottni, eftir Harry Anderson

Verkefnasíða Barnafélagsins: Himneskur faðir heyrir og svarar bænum mínum