Kom, fylg mér
25.–31. maí. „Drottinn vakti upp hjálparmann“: Dómarabókin 2–4; 6–8; 13–16


„25.–31. maí. ‚Drottinn vakti upp hjálparmann‘: Dómarabókin 2–4; 6–8; 13–16,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„25.–31. maí. ,Drottinn vakti upp hjálparmann‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Spákonan Debóra

„Ég fer með þér“ – Spákonan Debóra, eftir Des Leavitt

25.–31. maí: „Drottinn vakti upp hjálparmann“

Dómarabókin 2–4; 6–8; 13–16

Við vitum öll hvernig er að gera mistök, líða illa vegna þeirra, iðrast síðan og einsetja sér að breyta háttum sínum. En of oft gleymum við fyrri ásetningi og þegar freisting kemur, drýgjum við sömu synd. Þetta mynstur birtist oft í Dómarabókinni. Ísraelsmenn urðu fyrir áhrifum af trú og tilbeiðslu Kanverja – sem þeim var ætlað að hrekja burt úr landinu – og brutu sáttmála sína við Drottin og urðu fráhverfir tilbeiðslu á hann. Af því leiddi að þeir nutu ekki verndar hans og féllu í ánauð. Í hvert sinn sem það gerðist gaf Drottinn þeim þó kost á að iðrast og reisti upp hjálparmann, herforingja sem kallaður var „dómari“. Dómararnir í Dómarabókinni voru ekki allir réttlátir, en sumir þeirra sýndu mikla trú til að bjarga Ísraelsmönnum og endurreistu þá til sáttmálssambands við Drottin. Þessar frásagnir minna okkur á að sama hvað það er sem hefur leitt okkur frá Jesú Kristi, þá er hann frelsari Ísraelsmanna og ávallt fús til að bjarga okkur og taka okkur aftur í sátt.

Til að fá yfirlit yfir Dómarabókina, sjá þá „Dómarabókin“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Dómarabókin 2:1–19; 3:5–12

Drottinn fyrirgefur mér jafn oft og ég iðrast.

Dómarabókin getur bæði verið aðvörun og hvatning. Gætið að þessari aðvörun og hvatningu við lestur Dómarabókarinnar 2:1–19; 3:5–12. Hvernig finnst ykkur aðvörunin og hvatningin eiga við um ykkur?

Dæmi: Ef Dómarabókin 2:19 fjallaði um ykkur og freistingar ykkar, frekar en um Ísraelsmenn til forna, hvað myndi standa í henni? Hvað myndi standa í Dómarabókinni 3:9 um það sem Drottinn hefði gert ykkur til bjargar?

Íhugið að lesa spurningar og svör á bls. 9 í Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum. Hvernig haldið þið að þetta eigi við um reynslu Ísraelsmanna í Dómarabókinni? Hvað kennir þetta ykkur um Jesú Krist?

Dómarabókin 4:1–15

trúarskólatákn
Ég get hvatt aðra til að trúa á Drottin.

Stundum getur trú eins manns innblásið trú margra. Í Dómarabókinni 4 var Debóra þessi eina. Lesið um hana í Dómarabókinni 4:1–15 og gætið að áhrifunum sem hún hafði á fólk umhverfis. Hér eru nokkrar spurningar til að hjálpa ykkur að íhuga hvernig reynsla hennar gæti átt við um líf ykkar:

  • Hvernig mynduð þið lýsa aðstæðunum sem Ísraelsmenn voru í á þeim tíma? (sjá vers 1–3). Hvað er líkt með aðstæðum á okkar tíma – hjá einstaklingum og samfélögum?

  • Hvaða orð eða verk Debóru sýna að hún trúði á Drottin? Hvernig hafði trú hennar áhrif á aðra? Hvað annað hrífur ykkur varðandi hana?

  • Hvað haldið þið að Debóra hafi átt við þegar hún sagði í versi 14: „Vissulega fer Drottinn fyrir þér.” Hvernig „fer Drottinn fyrir“ ykkur? (sjá einnig Kenning og sáttmálar 84:87–88).

þrjár ungar konur á göngu saman

Íhugið hvernig trú ykkar á Jesú Krist gæti blessað aðra á sama hátt og trú Debóru blessaði Barak og aðra Ísraelsmenn. Til að hjálpa ykkur að íhuga þetta, gætuð þið kynnt ykkur boðskap öldungs Neils L. Andersen, „Við tölum um Krist“ (aðalráðstefna, október 2020). Leitið í boðskap hans að (1) ástæðum til að tala opinskátt um frelsarann og (2) hvernig gera mætti það.

Þið gætuð síðan skráð allt það sem þið vitið um Jesú Krist – frá ritningunum, frá orðum lifandi spámanna og frá persónulegri reynslu ykkar. Hver þarf að vita þetta? Hvernig munið þið miðla því?

Sjá einnig Matteus 5:14–16; 1. Pétursbréf 3:15; „Hef ég drýgt nokkra dáð,“ Sálmar, nr. 91.

Hvetjið til miðlunar. Ef þið eruð kennarar – heima eða í kirkju – „veitið þá nemendum tækifæri til að miðla því með hver öðrum sem þeir eru að læra um frelsarann og fagnaðarerindi hans. Með því að gera þetta mun það hjálpa þeim að tileinka sér sannleikann sem þeim er kenndur og tjá hann“ (Kenna að hætti frelsarans, 26). Dæmi: Þegar þið lærið Dómarabókina 4, gætuð þið látið hvern nemanda fá eitthvað sérstakt til að leita að í kaflanum og síðan boðið þeim að miðla hver öðrum því sem þeir fundu.

Dómarabókin 6–8

Drottinn getur gert kraftaverk ef ég reiði mig á hætti hans.

Þegar þið lesið Dómarabókina 6–8, skráið þá tilvik þar sem Drottinn býður Gídeon að trúa einhverju sem gæti hafa virst ólíklegt. Hefur hann einhvern tíma beðið ykkur um eitthvað álíka?

Hvað finnst ykkur Drottinn vera að reyna að kenna ykkur með þessari frásögn? Hvernig hafið þið séð Drottin vinna verk sitt á þann hátt sem virðist ólíklegt?

Dómarabókin 13–16

Guð styrkir mig þegar ég lifi trúfastlega eftir sáttmálum mínum.

Samson missti bæði líkamlegan og andlegan styrk því hann braut sáttmála sína við Guð, einnig þá sem sérstaklega áttu við um nasíreana (til að lesa meira um nasíreana, sjá þá 4. Mósebók 6:1–6; Dómarabókin 13:7). Þegar þið lesið um Samson í Dómarabókinni 13–16, gætið þá að versum sem sýna að Drottinn var með Samson, sem og versum sem sýna að Samson hafði ekki fyllilega skuldbundið sig Drottni.

Þið gætuð líka íhugað þá sáttmála sem þið hafið gert við Drottin. Hvernig hafa þessir sáttmálar fært kraft hans í líf ykkar? Hvað lærið þið af reynslu Samsonar sem hvetur ykkur til að vera trúföst sáttmálum ykkar við Guð?

Systir Ann M. Dibb kenndi: „Samson bjó yfir miklum möguleikum þegar hann fæddist. Móður hans var lofað: ‚Hann mun byrja að frelsa Ísrael af hendi Filistea‘ [Dómarabókin 13:5]. En eftir því sem Samson óx úr grasi sneri hann sér meira að freistingum heimsins en leiðsögn Guðs. Hann tók ákvarðanir vegna þess að þær ‚[geðjuðust] augum [hans]‘ [Dómarabókin 14:3] fremur en að þær væru réttar. Ritningarnar endurtaka orðtakið ‚síðan fór hann ofan‘ [Dómarabókin 14:7] er ferðum, gjörðum og vali Samsonar er lýst. Í stað þess að rísa og láta ljós sitt skína til að nýta sína miklu möguleika, lét Samson yfirbugast af heiminum, missti guðlegan kraft sinn og dó harmdauða um aldur fram“ („Rísið og látið ljós ykkar skína,“ aðalráðstefna, apríl 2012).

Sjá einnig Dallin H. Oaks, „Sáttmálar og ábyrgðarskyldur,“ aðalráðstefna, apríl 2024; Ulisses Soares, „Sáttmálsfullvissa gegnum Jesú Krist,“ aðalráðstefna, apríl 2024.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Þar sem þessi sunnudagur er fyrsti sunnudagur mánaðarins, eru Barnafélagskennarar hvattir til að nota námsverkefnin í „Viðauki B: Búa börn undir ævilanga veru á sáttmálsvegi Guðs“.

Dómarabókin 3:7–9, 12–15

Jesús Kristur er bjargvættur minn.

  • Í Dómarabókinni 3 er lýsing á framvindu sem kennir um mátt frelsarans til að leysa okkur frá synd. Til að hjálpa börnum ykkar að bera kennsl á þessa framvindu, gætuð þið skrifað þessi orðtök niður: „gjörðu illt,“ „hrópuðu til Drottins“ og „vakti upp hjálparmann.“ Börn ykkar gætu síðan gætt að þessum orðtökum í Dómarabókinni 3:7–9 og Dómarabókinni 3:12–15. Hvað lærum við um Drottin af þessari framvindu?

  • Til að leggja áherslu á að Jesús Kristur er bjargvættur okkar, gætuð þið safnað saman nokkrum myndum af fólki, þar á meðal mynd af Jesú, og sett þær á hvolf. Látið börn ykkar skiptast á við að snúa við myndunum. Þegar þau finna myndina af Jesú, syngið þá söng um hann, t.d. „Hann sendi soninn“ (Barnasöngbókin, 20) og segið börnum ykkar frá því hvernig hann hefur bjargað ykkur.

Dómarabókin 4:1–15

Ég get hvatt aðra til að trúa á Drottin.

  • Þið getið notað „Spákonan Debóra“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 92–95, til að segja börnum ykkar söguna í Dómarabókinni 4. Miðlið hvert öðru því sem þið dáist að í fari Debóru. Hvernig blessaði trú hennar á Drottin fólkið umhverfis? Hvað getum við gert til að hjálpa öðrum að efla trú sína á Jesú Krist?

    2:9

    Deborah the Prophetess

Dómarabókin 7:1–21

Drottinn getur notað hið smáa til að gera hið mikla.

  • Notið Dómarabókina 7:4–7, verkefnasíðu þessarar viku eða „Hersveit Gídeons“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 96–99, til að kenna börnum ykkar um það hvernig Drottinn minnkaði her Ísraelsmanna. Hvers vegna vildi Drottinn að hersveit Gídeons væri svo fámenn? (sjá Dómarabókin 7:2).

    2:37

    The Army of Gideon

  • Börn ykkar gætu teiknað myndir af sverði, skildi, lúðri, lampa og krús og rætt hvern þessara hluta þau myndu vilja í bardaga. Þau gætu síðan lesið Dómarabókina 7:16 til að læra það sem Drottinn bauð hersveit Gídeons að nota. Þegar þið lesið um orrustuna í Dómarabókinni 7:19–21, miðlið þá hvert öðru því sem þið lærðuð um Drottin af þessari sögu.

Samson hrindir niður súlum musterisins

Samson hrindir niður súlunum, eftir James Tissot og fleiri

Dómarabókin 13:5

Það veitir mér styrk að halda sáttmála.

  • Sáttmálar Samsonar við Drottin veittu honum styrk á sama hátt og sáttmálar okkar veita okkur styrk. Fjölskylda ykkar gæti haft gaman af því að gera nokkrar líkamsæfingar og ræða hvernig þær geti aukið líkamsstyrk okkar. Hvernig styrkir það anda okkar að halda sáttmála? (sjá Mósía 18:8–10; Kenning og sáttmálar 20:77, 79).

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

hersveitarmenn Gídeons blása í lúðra sína

Hersveit Gídeons, eftir Daniel A. Lewis

Verkefnasíða Barnafélagsins: Drottinn getur notað hið smáa til að gera hið mikla