Kom, fylg mér
4.–10. maí. „Gerið ekki uppreisn gegn Drottni. Óttist ekki“: 4. Mósebók 11–14; 20–24; 27


„4.–10. maí. ‚Gerið ekki uppreisn gegn Drottni. Óttist ekki‘: 4. Mósebók 11–14; 20–24; 27,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„4.–10. maí. ‚Gerið ekki uppreisn gegn Drottni. Óttist ekki‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

mynd af Wadi Rum

Eyðimörk nálægt Sínaískaga

4.–10. maí: „Gerið ekki uppreisn gegn Drottni. Óttist ekki“

4. Mósebók 11–14; 20–2427

Það tæki ekki 40 ár að ferðast yfir eyðimörkina í Sínaí til fyrirheitna landsins í Kanaanslandi, jafnvel fótgangandi. Ísraelsmenn þurftu þó svo langan tíma – ekki vegna landfræðilegrar fjarlægðar, heldur vegna andlegrar fjarlægðar: fjarlægðar sem skildi á milli þess sem þeir voru og þess sem Drottinn vildi að þeir yrðu, sem sáttmálslýður hans.

Í 4. Mósebók er greint frá nokkru því sem gerðist á þessum 40 árum, þar með talið lexíum sem Ísraelsmenn þurftu að læra fyrir inngöngu sína í fyrirheitna landið. Þeir lærðu að vera trúfastir hinum útvöldu þjónum Drottins (sjá 4. Mósebók 12). Þeir lærðu að treysta á mátt Drottins, jafnvel þegar framtíðin virtist vonlaus (sjá 4. Mósebók 13–14). Þeir lærðu líka að vantrú leiddi til andlegra hörmunga og að þeir gætu iðrast og litið til frelsarans eftir lækningu (sjá 4. Mósebók 21:4–9).

Við erum öll að einhverju leyti eins og Ísraelsmenn. Við vitum hvernig er að vera í andlegri eyðimörk og sömu lexíurnar og þeir lærðu geta hjálpað okkur að komast til fyrirheitna landsins okkar: eilífs lífs með himneskum föður.

Til að fá yfirlit yfir 4. Mósebók, sjá þá „Numeri (Fjórða Mósebók)“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

4. Mósebók 11:11–17, 24–2912

Opinberun er öllum tiltæk, en Guð leiðir kirkju sína með spámanni sínum.

Gætið að vandanum sem Móse glímdi við í 4. Mósebók 11:11–17, 24–29 og lausninni sem Guð lagði til. Hvað haldið þið að Móse hafi átt við er hann óskaði þess „að öll þjóð Drottins væri spámenn“? (vers 29). Þegar þið íhugið þessa spurningu, leitið þá mögulegra svara í boðskap Russells M. Nelson forseta „Opinberun fyrir kirkjuna, opinberun fyrir eigið líf“ (aðalráðstefna, apríl 2018).

Að segja að við getum öll hlotið opinberun merkir þó ekki að við getum öll leitt fólk Guðs á þann hátt sem Móse gerði. Atburðurinn í 4. Mósebók 12 varpar skæru ljósi á þetta. Hvaða aðvaranir finnið þið í þessum kafla? Hvað finnst ykkur að Drottinn vilji að þið skiljið um persónulega opinberun og að fylgja spámanninum?

Sjá einnig 1. Nefí 10:17; Kenning og sáttmálar 28:1–7; Dallin H. Oaks, „Samskiptarásirnar tvær,“ aðalráðstefna, október 2010.

Einblínið á það sem er mikilvægast. Hinar vikulegu lestrartillögur í Kom, fylg mér vaxa sumum í augum. Fylgið andanum er þið skoðið lexíudrögin. Íhugið eigin þarfir og þarfir fólksins sem þið gætuð verið að kenna. Að skilja og tileinka sér að fullu eina reglu á viku, gæti verið gagnlegra en að lesa nokkra kafla aðeins á yfirborðskenndan hátt.

4. Mósebók 12:3

„Móse var hógvær.“

Sumir verða hissa á því að komast að því að Móse, hinn mikli leiðtogi sem stóð frammi fyrir faraó og framkvæmdi undursamleg kraftaverk með krafti Drottins, hafi líka verið „hógvær“ (4. Mósebók 12:3). Hvað merkir að vera hógvær? Íhugið að kynna ykkur útskýringar öldungs Davids A. Bednar í „Hógvær og af hjarta lítillátur“ (aðalráðstefna, apríl 2018) eða í „Hógvær, hógværð“ í Leiðarvísi að ritningunum (Gospel Library).

Hvað lærið þið af fordæmi Móse um hógværð í 2. Mósebók 18:13–25; 4. Mósebók 11:26–29; 4. Mósebók 12; Hebreabréfinu 11:24–27; og HDP Móse 1:10–11? Þið gætuð líka íhugað hvernig frelsarinn sýndi hógværð (sjá Matteus 11:29; 27:11–14; Lúkas 22:41–42; Jóhannes 13:4–5). Hvað kenna þessi dæmi ykkur?

4. Mósebók 13–14

Ég get átt von um framtíðina með trú á Drottin.

Þegar þið lesið 4. Mósebók 13–14, reynið þá að setja ykkur í spor Ísraelsmanna. Af hverju haldið þið að þeir hafi viljað „snúa aftur til Egyptalands“? (4. Mósebók 14:3). Hvernig mynduð þið lýsa því sem kallað var annar „andi“ sem Kaleb bjó yfir? (4. Mósebók 14:24). Hvað hrífur ykkur varðandi trú Kalebs og Jósúa og hvernig gætuð þið tileinkað ykkur fordæmi þeirra í aðstæðum ykkar?

Móse og nokkrir njósnarar Ísraelsmanna

Tíu njósnara Ísraelsmanna voru hræddir; Jósúa og Kaleb höfðu trú. Jósúa og Kaleb: Hlýðnir njósnarar, eftir Douglas Klauba. © Lifeway Collection/með leyfi frá goodsalt.com

4. Mósebók 21:4–9

trúarskólatákn
Ef ég lít til Jesú Krists í trú, getur hann læknað mig andlega.

Spámenn Mormónsbókar þekktu frásögnina sem skráð er í 4. Mósebók 21:4–9 og skildu andlegt mikilvægi hennar. Lesið kenningar þeirra um þessa sögu í 1. Nefí 17:40–41; Alma 33:18–22; og Helaman 8:13–15. Hér eru nokkrar spurningar til að hugleiða við það:

  • Hvað gæti eirormurinn táknað?

  • Hvað gætu snákabitin táknað?

  • Ísraelsmenn urðu að „horfa til til eirormsins“ (4. Mósebók 21:9) til að læknast. Af hverju haldið þið að sumir hafi neitað að horfa til hans? Hefur eitthvað svipað nokkurn tíma komið fyrir ykkur?

  • Hvað finnst ykkur þið hvött til að gera betur við að „líta … til Guðssonarins í trú“ og læknast? (Helaman 8:15).

Lestur þessara ritningarhluta gæti minnt ykkur um önnur tilvik í ritningunum þar sem fólk þurfti að einblína stöðugt á Krist. Dæmi: Berið saman boðskapinn í 4. Mósebók 21:4–9 og Matteusi 14:25–31 og 1. Nefí 8:24–28 (sjá einnig myndir aftast í lexíudrögum þessarar viku). Hvað hefur tilhneigingu til að draga okkur frá Kristi? Hvernig blessar hann fólk sem einblínir stöðugt á hann?

Sjá einnig „Alsælu fyllist öndin mín,“ (Sálmar, nr. 42).

4. Mósebók 22–24

Ég get farið að vilja Guðs, þótt aðrir reyni að sannfæra mig um að gera það ekki.

Þegar Balak, konungur í Móab, frétti að Ísraelsmenn nálguðust, kallaði hann á Bíleam, mann sem var þekktur fyrir að lýsa yfir blessunum og bölvunum. Balak vildi að hann lýsti yfir bölvun á Ísraelsmenn. Gætið að því hvernig Balak reyndi að sannfæra Bíleam (sjá 4. Mósebók 22:5–7, 15–17) og íhugið mögulegar freistingar ykkar til að breyta gegn vilja Guðs. Hvað hrífur ykkur varðandi viðbrögð Bíleams í 4. Mósebók 22:18, 38; 23:8, 12, 26; 24:13? Því miður lét Bíleam að endingu undan þrýstingi og sveik Ísraelsmenn (sjá 4. Mósebók 31:16; Júdasarbréfið 1:11). Íhugið hvernig þið getið verið trúföst Drottni, þrátt fyrir þrýsting frá öðrum.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

4. Mósebók 11:4–10

Ég get sýnt þakklæti fyrir það sem Guð hefur gefið mér.

  • Spyrjið börn ykkar að því hvort þau muni eftir einhverjum þeirra kraftaverka sem Drottinn gerði til að hjálpa Ísraelsmönnum (sjá „Plágur Egyptalands“ og „Páskahátíð Gyðinga“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 67–74). Þið gætuð síðan gert samantekt fyrir þau á 4. Mósebók 11:4–10 og lagt áherslu á að Ísraelsmenn höfðu gleymt blessunum sínum og voru möglandi. Hvaða blessunum gleymum við stundum?

  • Þegar þið syngið eða hlustið á söng um þakklæti, t.d. „Er í stormum lífs þíns“ (Sálmar, nr. 27), gætu börn ykkar teiknað myndir af blessunum sem Drottinn hefur veitt þeim.

4. Mósebók 12

Drottinn vill að ég fylgi spámanni hans.

  • Til að kynna 4. Mósebók 12, gætuð þið sagt börnum ykkar að Drottinn var ekki ánægður með Aron og Mirjam, bróður og systur Móse. Bjóðið þeim að lesa 4. Mósebók 12:1–8 til að komast að ástæðunni. Íhugið að nota Trúarmyndabók til að hjálpa börnum ykkar að finna dæmi um fólk í ritningunum sem virti spámann Drottins og var blessað. Hvernig erum við blessuð þegar við fylgjum spámanni Drottins?

4. Mósebók 21:6–9

Ég get litið til Jesú Krists.

  • Þið gætuð notað „Móse og eirormurinn“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 83–84, til að hjálpa börnum ykkar að læra um það sem gerðist í 4. Mósebók 21:6–9. Hvernig er eirormurinn eins og Jesús Kristur? (sjá Jóhannes 3:14–15). Börn ykkar gætu haft gaman af því að búa til snák úr pappír og skrifa á hann nokkra einfalda hluti sem þau geta gert til að „líta til Guðssonarins í trú“ (Helaman 8:15).

    1:2

    Moses and the Brass Serpent

  • Eldri börn gætu valið eitt af eftirfarandi ritningarversum og sagt frá hverju það eykur við skilning þeirra á sögunni: 1. Nefí 17:41; Alma 33:18–20; Helaman 8:13–15; Kenning og sáttmálar 6:36.

eirormurinn

Eirormur, eftir Brent Evans

4. Mósebók 22–24

Ég get farið að vilja Guðs, þótt aðrir reyni að sannfæra mig um að gera það ekki.

  • Gerið samantekt á 4. Mósebók 22:1–18 fyrir börn ykkar og leggið áherslu á það hvernig Bíleam neitaði að setja bölvun á lýð Guðs, jafnvel þótt Balak, konungur í Móab, byði honum heiður og ríkidæmi. Þið gætuð síðan hjálpað börnum ykkar að leita í eftirfarandi versum að orðtökum sem þeim finnst sýna að Bíleam hafi viljað fylgja Guði: 4. Mósebók 22:18; 23:26; 24:13. Börn ykkar gætu ef til vill valið eitt orðtak sem höfðar til þeirra og skrifað það á spjald til að hjálpa þeim að muna eftir að hlýða Drottni.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

samsett mynd sem sýnir Jesú á krossinum, eirorminn, Jesú hjálpa Pétri að ganga á vatni og sýn Lehís

Efst til vinstri: Krossfesting Krists. Efst til hægri: Móse og eirormurinn, eftir Judith Mehr. Neðst til vinstri: Fullkomnari trúarinnar, eftir Kelsy og Jesse Lightweave. Neðst til hægri: Draumur Lehís, eftir Jerry Thompson

Verkefnasíða Barnafélagsins: Ég get litið til Jesú Krists