„18.–24. maí. ‚Vertu djarfur og hughraustur‘: Jósúabók 1–8; 23–24,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„18.–24. maí. ‚Vertu djarfur og hughraustur‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Móse vígir Jósúa, eftir Darrell Thomas (hluti af mynd)
18.–24. maí: „Vertu djarfur og hughraustur“
Jósúabók 1–8; 23–24
Nokkrar kynslóðir voru gengnar, en loforð Drottins var um það bil að uppfyllast: Ísraelsmenn voru loks í þann mund að erfa fyrirheitna landið. Í vegi þeirra stóðu þó áin Jórdan, múrar Jeríkóborgar og máttug þjóð sem hafði hafnað Drottni (sjá 1. Nefí 17:35). Þeir yrðu líka að horfast í augu við það án síns ástkæra leiðtoga Móse. Þessar aðstæður gætu hafa kallað vanmátt og ótta yfir Ísrael, en Drottinn sagði: „Vertu djarfur og hughraustur.“ Hvaða ástæðu höfðu þeir að sýna hugrekki? Ekki vegna eigin styrks – eða jafnvel styrks Móse eða Jósúa – heldur vegna þess að „Drottinn, Guð þinn, er með þér hvert sem þú ferð“ (Jósúabók 1:9). Þegar við sjálf þurfum að fara yfir eigin ár og rífa niður múra, geta undursamlegir hlutir gerst í lífi okkar, því „Drottinn [mun] vinna kraftaverk á meðal [okkar]“ (Jósúabók 3:5).
Til að fá yfirlit yfir Jósúabók, sjá þá „Jósúa“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jósúabók 1:1–9
Guð mun verða með mér er ég kappkosta að sýna honum hollustu.
Ímyndið ykkur hvernig það hefur verið fyrir Jósúa að vera kallaður til að fylla í skarð Móse. Gætið að því sem Drottinn sagði í Jósúabók 1:1–9, honum til hvatningar. Íhugið þær erfiðu áskoranir sem þið standið frammi fyrir; hvað í þessum versum veitir ykkur hugrekki?
Nafnið Jósúa (Yehoshua eða Yeshua á hebresku) merkir „Jehóva bjargar“. Nafnið Jesús er dregið af Yeshua. Þegar þið því lesið um Jósúa, íhugið þá hlutverk hans í því að leiða Ísraelsmenn yfir ána Jórdan og inn í fyrirheitna landið. Hvernig svipar hlutverki hans til þess sem Kristur gerir fyrir okkur?
Jósúabók 1:8
Orð Guðs getur leitt okkur til farsældar.
Þegar Drottinn hvatti Jósúa veitti hann leiðsögn í Jósúabók 1:8 um ritningarnar eða „orð lögmálsins“. Af hverju gæti þessi leiðsögn hafa verið einkar gagnleg, með hliðsjón af hinni þungu ábyrgð Jósúa?
Þegar Drottinn býður okkur að lesa ritningarnar, notar hann oft orð sem ekki nægir aðeins að lesa. Hann lofar líka miklum blessunum. Taflan hér að neðan getur hjálpað ykkur að uppgötva þessi boð og fyrirheitnar blessanir:
|
Boð |
Fyrirheitnar blessanir | |
|---|---|---|
|
Jósúabók 1:8 | Boð Hugleiða dag og nótt | Fyrirheitnar blessanir
|
Boð
| Fyrirheitnar blessanir
| |
Boð
| Fyrirheitnar blessanir
| |
Boð
| Fyrirheitnar blessanir Njóta farsældar í landinu | |
Boð
| Fyrirheitnar blessanir
| |
Boð
| Fyrirheitnar blessanir
| |
|
Russell M. Nelson, „Hlýð þú á hann,“ aðalráðstefna, apríl 2020, málsgrein sem hefst svona: „Við getum snúið okkur að ritningunum.“ | Boð
| Fyrirheitnar blessanir
|
Hvernig hefur Drottinn uppfyllt loforð sín í lífi ykkar? Núna gæti verið góður tími til að leggja mat á venjur ykkar við ritningarnám. Hvað gerið þið vel? Hvað finnst ykkur þið hvött til að gera til að upplifa orð Guðs á innihaldsríkari hátt?
Sjá einnig „Er í lífsins orðum leita,“ Sálmar, nr. 106.
Jósúabók 2
Bæði trú og verk eru nauðsynleg til sáluhjálpar.
Hinir kristnu í Nýja testamentinu litu á Rahab sem dæmi um áhrifamátt bæði trúar og verka (sjá Hebreabréfið 11:31; Jakobsbréfið 2:25). Þegar þið lesið Jósúabók 2, íhugið þá þátt trúar og verka Rahab við að bjarga sjálfri sér, fjölskyldu sinni og ísraelsku útsendurunum. Hvað kennir þetta ykkur um hvernig trú á Krist og verk ykkar geta haft áhrif á ykkur sjálf og aðra?
Rahab við gluggann sinn. Beðið eftir fyrirheitinu, eftir Elspeth Young (hluti af mynd)
Jósúabók 3–4
Fyrir trú á Jesú Krist get ég upplifað „kraftaverk“ Guðs.
Drottinn gerði kraftaverk meðal fólks síns er hann leiddi það í fyrirheitna landið og hann getur líka gert það sama fyrir ykkur. Hér eru nokkrar spurningar til að leiðbeina ykkur við nám í Jósúabók 3–4:
-
Af hverju haldið þið að Ísraelsmenn hafi þurft að helga sig áður en þeir fóru yfir ána Jórdan? (sjá Jósúabók 3:5).
-
Athugið að áin klofnaði aðeins „jafnskjótt og fætur prestanna … [snertu] vatn Jórdanar“ (Jósúabók 3:13, 15). Af hverju er það mikilvægt?
-
Fleiri merkir atburðir gerðust við ána Jórdan – sjá 2. Konungabók 2:6–15; 5:1–14; og Markús 1:9–11. Hvaða samhengi sjáið þið milli þessara atburða?
-
Hvernig hefur Drottinn gert „kraftaverk“ í lífi ykkar? (Jósúabók 3:5). Hvernig getið þið upplifað – eða borið kennsl á – þessi kraftaverk oftar? (sjá t.d. Jósúabók 3:17).
Jósúabók 6–8
Hlýðni gerir mátt Guðs mögulegan í lífi mínu.
Í Jósúabók 6–8 er greint frá orrustum víða um lönd Jeríkó og Aí. Þegar þið lesið þessa kafla, íhugið þá hvernig þið heyið baráttu við freistingar (sjá t.d. Jósúabók 7:10–13). Hvað lærið þið um hvernig Guð getur hjálpað ykkur og hvað þið þurfið að gera til að hljóta mátt hans? Hvað hrífur ykkur t.d. varðandi fyrirmæli Drottins um að sigra Jeríkó? (sjá Jósúabók 6:1–5). Ef til vill mun frásögnin í Jósúabók 7 hvetja ykkur til að ákveða hvort einhverjir „bannhelgir munir“ séu í lífi ykkar sem þarf að fjarlæga (Jósúabók 7:13).
Jósúabók 23–24
„Kjósið þá í dag hverjum þið viljið þjóna.“
Síðasta kennsla Jósúa til Ísraelsmanna í Jósúabók 23–24 felur í sér mikilvægar aðvaranir, leiðsögn og fyrirheitnar blessanir. Þið gætuð ef til vill skráð allt það sem þið finnið. Af hverju haldið þið að Jósúa hafi ákveðið að segja þeim þessa hluti við lok lífs síns, með hliðsjón af öllu því sem Ísraelsmenn þurftu að takast á við? Hvað er það sem hvetur ykkur til að halda ykkur „fast við Drottin“? (Jósúabók 23:8).
Sjá einnig Dale G. Renlund, „Veljið þá í dag,“ aðalráðstefna, október 2018.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jósúabók 1–4; 6
„Vertu djarfur og hughraustur.“
-
Hér er ein leið til að hjálpa börnum ykkar að „vera djörf og hughraust“ (Jósúabók 1:6) með Jesú Kristi. Bjóðið þeim að finna orðtak sem er endurtekið í Jósúabók 1:6, 9 og 18 og skrifa það hjá sér eða læra það utanbókar. Hjálpið börnum ykkar að hugsa um aðstæður þar sem þau gætu þarfnast þessa boðskapar, á sama hátt og Jósúa gerði. Þið gætuð líka rifjað saman upp nokkrar frásagnanna í Jósúabók 1–4; 6 (sjá einnig „Spámaðurinn Jósúa“ og „Rahab og njósnararnir“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 85–91). Hvernig sýndi fólkið í þessum sögum hugrekki og styrk í Drottni?
2:59Joshua the Prophet
1:39Rahab and the Spies
Jósúabók 1:8
Það færir mér blessanir að læra ritningarnar.
-
Lestur Jósúabókar 1:8 gæti hvatt börn ykkar til að lesa ritningarnar á eigin spýtur. Hjálpið þeim að finna orð í þessu versi sem kenna þeim hvernig og hvers vegna okkur ber að lesa ritningarnar. Þau gætu leitað að því sama í 1. Nefí 15:23–24; 2. Nefí 31:20; 32:3; Jakobi 4:6; Helaman 3:29–30. Þið gætuð líka hjálpað þeim að gera og framkvæma áætlun um ritningarnarlestur.
Jósúabók 3–4
Ég verð að skírast til að komast aftur í himnaríki.
-
Þið gætuð notað frásögnina um Ísraelsmenn fara yfir ána Jórdan sem tákn um skírn – að láta af okkar gamla lífi í eyðimörkinni og hefja nýtt líf í sáttmálssambandi við Guð. Þegar þið lesið saman Jósúabók 3–4 (eða „Spámaðurinn Jósúa“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 85–89), gætuð þið líka skoðað mynd af Jesú að skírast og útskýrt að Jesús hafi skírst í sömu á og Ísraelsmenn fóru yfir. Þið gætuð síðan sungið söng eins og „Skírnin“ (Barnasöngbókin, 54). Miðlið hvert öðru því hvernig skírn er eins og að hefja nýtt líf í ríki Jesú Krists.
2:59Joshua the Prophet
Jósúabók 24:15
Ég get valið að þjóna Jesú Kristi.
-
Hvað gætuð þið gert til að hjálpa börnum ykkar að læra að velja að fylgja Jesú Kristi, eins og Jósúa bauð Ísraelsmönnum að gera? Þið gætuð boðið þeim að:
-
Leggja stutta setningu á minnið úr Jósúabók 24:15. Reynið að hafa þetta skemmtilegt fyrir börn ykkar. Orðafjöldinn sem þau læra utanbókar getur farið eftir aldri þeirra.
-
Finnið sögur um fólk sem valdi að þjóna Jesú Kristi. Þau gætu leitað í tímaritinu Barnavini, Trúarmyndabókinni eða Sögum úr Gamla testamentinu og í öðrum ritningarsögubókum.
-
Farið í hlutverkaleik þar sem þau geta valið að fylgja og þjóna frelsaranum.
-
Notið margar aðferðir. „Öll börn eru mismunandi og er þau þroskast, þá breytast einnig þarfir þeirra. Fjölbreytni í kennsluaðferðum ykkar mun hjálpa ykkur að mæta fjölbreytilegum þörfum þeirra“ (Kenna að hætti frelsarans,31).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.