Kom, fylg mér
11.–17. maí. „Gæt þess … að þú gleymir ekki Drottni“: 5. Mósebók 6–8; 15; 18; 29–30; 34


„11.–17. maí. ‚Gæt þess … að þú gleymir ekki Drottni‘: 5. Mósebók 6–8; 15; 18; 29–30; 34,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„11.–17. maí. ‚Gæt þess … að þú gleymir ekki Drottni‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Móse á Nebófjalli

Móse á Nebófjalli, eftir John Steel, © Providence Collection/með leyfi frá goodsalt.com

11.–17. maí: „Gæt þess … að þú gleymir ekki Drottni“

5. Mósebók 6–8; 15; 18; 29–3034

Hin jarðneska þjónusta Móse hófst á fjalli, er Drottinn talaði til hans úr brennandi runna (sjá 2. Mósebók 3:1–10). Henni lauk líka á fjalli yfir 40 árum síðar, er Drottinn leyfði Móse að sjá fyrirheitna landið á Nebófjalli (sjá 5. Mósebók 34:1–4). Móse hafði varið lífi sínu við að búa Ísraelsmenn undir komu þeirra til fyrirheitna landsins og í 5. Mósebók eru síðustu fyrirmæli hans, áminningar, hvatningar og fyrirbænir til Ísraelsmanna. Lestur þessa texta gerir ljóst að raunverulegt viðfangsefni þjónustu Móse – hinn nauðsynlegi undirbúningur fólksins – snerist ekki um að komast af í eyðimörkinni, sigra þjóðir eða byggja samfélag. Hún snerist um að kenna þeim að elska Guð, hlýða honum og sýna honum hollustu. Það er sá undirbúningur sem við öll þurfum til að komast í fyrirheitið land hins eilífa lífs. Þótt Móse hefði aldrei stigið fæti á „land sem flaut í mjólk og hunangi“ (2. Mósebók 3:8), komst hann í fyrirheitna landið sem Guð hefur fyrirbúið öllum þeim sem fylgja honum, vegna trúar sinnar og staðfestu.

Til að fá yfirlit yfir 5. Mósebók, sjá þá „Devteronomium (Fimmta Mósebók)“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

5. Mósebók 6:4–7; 8:2–5, 11–17; 29:17–19; 30:6–10, 14–20

trúarskólatákn
„Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu.“

Lögmál Móse hafði að geyma margar ytri helgiathafnir og helgisiði. Eins og þið sjáið í leiðsögn Móse í 5. Mósebók, þá lét Drottinn sig líka skipta innra ástand fólksins – andlegt ástand hjartna þess.

Gætið að orðinu hjarta í næstu köflum og íhugið hvað það gæti táknað. Þið gætuð hugsað um þessi ritningarvers sem eins konar andlega skoðun á hjarta ykkar. Hvernig mynduð þið greina ykkur sjálf? Hvaða meðferðum mynduð þið ávísa til að bæta andlegt heilbrigði hjarta ykkar? Skrifið hughrif ykkar:

  • 5. Mósebók 6:4–7:

  • 5. Mósebók 8:2–5:

  • 5. Mósebók 8:11–17:

  • 5. Mósebók 29:17–19:

  • 5. Mósebók 30:6–10:

  • 5. Mósebók 30:14–20:

Eitt sem þið gætuð gert til að koma reglu á hugsanir ykkar, er að teikna hjarta og rita á það það sem Drottinn segir að þið ættuð að hafa í hjarta ykkar. Þið gætuð síðan skrifað utan við það það sem þið ættuð ekki að hleypa inn í hjarta ykkar.

Hvernig sýnið þið að þið elskið Guð af öllu hjarta? Fyrir hugmyndir, sjá þá „Elska Guð, elska náunga þinn“ í Til styrktar ungmennum: Leiðarvísir að ákvarðanatökum, 10–12.

Sjá einnig M. Russell Ballard, „Elskar þú mig meira en þessir?,“ aðalráðstefna, október 2021.

Leitið eigin andlegs skilnings. Í Kom, fylg mér eru lagðir til ritningarhlutar og reglur til að leggja áherslu á í ritningunum, en látið það ekki takmarka námið. Þegar þið lesið 5. Mósebók, gætuð þið uppgötvað reglu sem hér er ekki lögð áhersla á. Látið andann leiða ykkur til þess sem þið þurfið að læra.

5. Mósebók 6:4–12, 20–25

„Gæt þess … að þú gleymir ekki Drottni.“

Flestir Ísraelsmannanna sem myndu komast í fyrirheitna landið höfðu ekki orðið vitni að plágunum í Egyptalandi eða farið yfir Rauðahafið. Móse var ljóst að þeir – og komandi kynslóðir – þyrftu að hafa kraftaverk og lögmál Guðs hugföst, til að geta talist lýður Guðs áfram.

Hvaða leiðsögn finnið þið í 5. Mósebók 6:4–12, 20–25 sem gæti hjálpað ykkur að minnast alls þess dásamlega sem Guð hefur gert fyrir ykkur? Hvað eruð þið hvött til að gera til að orð Drottins verði ykkur „hugföst“ dag hvern? (vers 6).

Þið gætuð líka lært boðskap bróður Jan E. Newman „Varðveita rödd sáttmálsþjóðarinnar í hinni upprennandi kynslóð“ (aðalráðstefna, október 2023) og íhugað hvernig þið hyggist yfirfæra trú ykkar á Krist yfir á komandi kynslóðir.

Sjá einnig 5. Mósebók 11:18–21; Dale G. Renlund, „Íhugið gæsku og mikilleika Guðs,“ aðalráðstefna, apríl 2020; Bible Dictionary, „Frontlets or phylacteries.“

5. Mósebók 15:1–15

Að hjálpa hinum þurfandi, krefst örlátra handa og viljugra hjartna.

Enn er sá dagur ekki runninn upp að „enginn [ykkar] á meðal [eigi] að vera fátækur“ (5. Mósebók 15:4), af þeim sökum eru reglurnar til hjálpar fátækum í 5. Mósebók 15 enn gagnlegar, jafnvel þótt ákveðnar venjur hafi breyst. Gætið að því hvað vers 1–15 kenna um ástæðu þess að við hjálpum fólki í neyð og hvert viðhorf okkar ætti að vera.

Hver er merking þess að „upp ljúka hendi [sinni]“ fyrir hinum nauðstöddu? (vers 8, 11). Hvað lærið þið af fordæmi Drottins um að hjálpa fólki í neyð? (sjá vers 15).

Sjá einnig „Hef ég drýgt nokkra dáð?,“ Sálmar, nr. 91.

5. Mósebók 18:15–19

Móse var „slíkur sem“ Jesús Kristur.

Pétur, Nefí, Moróní og frelsarinn sjálfur vitnuðu allir í spádóminn í 5. Mósebók 18:15–19 (sjá Postulasagan 3:20–23; 1. Nefí 22:20–21; Joseph Smith – Saga 1:40; 3. Nefí 20:23). Hvað lærum við um frelsarann af þessum versum? Hugsið um það sem þið hafið lesið um Móse undanfarnar vikur. Hvernig er Móse „slíkur sem“ Jesús Kristur?

Jesús kennir Nefítunum

Jesús Kristur sagði við fólk sitt í Ameríku til forna: „Ég er sá, sem Móse talaði um“ (3. Nefí 20:23).

5. Mósebók 29:8; 30:15–20

Drottinn býður mér að velja á milli góðs og ills.

Áhugavert gæti verið að gera samanburð á orðum Móse í 5. Mósebók 29:8; 30:15–20 og nokkrum af síðustu kenningum Lehís til fjölskyldu sinnar í 2. Nefí 2:26–29; 4:4. Á hvaða hátt jók Lehí við kennslu Móse? Hvað finnið þið í þessum ritningarhlutum sem innblæs ykkur til að „velja lífið“? (5. Mósebók 30:19).

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

5. Mósebók 6:5

Ég get elskað Guð af öllu hjarta.

  • Til að hjálpa börnum ykkar að skilja 5. Mósebók 6:5, gætuð þið teiknað hjarta, útlínur af líkama og sterkan handlegg. Börn ykkar gætu bent á myndirnar þegar þið lesið orð eins og „hjarta“, „sálu“ og „mætti“. Hvernig sýnum við Drottni að við elskum hann af öllu hjarta, sálu og mætti?

5. Mósebók 6:6–15

Ég get varðveitt orð Guðs í hjarta mér.

  • Lesið með börnum ykkar leiðsögn Drottins til Ísraelsmanna um að setja ritningarhluta þar sem þeir blasa við augum þeirra dag hvern (sjá 5. Mósebók 6:6–9). Það gæti hvatt ykkur og börn ykkar til að hugsa um leiðir til að tryggja að þið „gleymið ekki Drottni“ (vers 12) og minnist þess sem hann hefur gert fyrir ykkur.

  • Þið gætuð bent á að 5. Mósebók 6:13, 16 og 8:3 hafi hjálpað frelsaranum á mikilvægri stund í lífi hans. Lesið saman Matteus 4:1–10 til að sjá hvernig. Þið gætuð síðan miðlað hvert öðru einhverjum ritningarhlutum sem hafa hjálpað ykkur á tíma neyðar.

ungur maður les ritningarnar

5. Mósebók 18:15–18

Spámenn kenna okkur um Jesú Krist.

  • Þegar þið lesið saman 5. Mósebók 18:18, hjálpið þá börnum ykkar að skilja að spámaðurinn í þessu versum sem verður líkur Móse er Jesús Kristur. Þið gætuð ef til vill skoðað myndir af því sem Móse gerði og því sem Jesús Kristur gerði og látið börn ykkar tengja þær saman (sjá Trúarmyndabók, nr. 15, 16, 38,39). Hvað hefur spámaður okkar í dag kennt um frelsarann?

5. Mósebók 29:11–12; 30:8–10

Vegna sáttmála minna tilheyri ég fólki Guðs.

  • Að ræða um 5. Mósebók 29:11–12 veitir börnum ykkar tækifæri til að ræða sáttmálana sem þau munu gera eða hafa gert við himneskan föður. Hvað felst í því að vera fólk Guðs? Hvernig gera loforðin okkur að fólki Guðs? (sjá vers 12; sjá einnig Mósía 18:8–10).

  • Ef börn ykkar þurfa hjálp við að skilja hvað sáttmáli er, leggið þá til að þau finni skilgreiningu í „Sáttmáli“ í Leiðarvísi að ritningunum (Gospel Library). Hvaða loforð gáfu Guð og Ísraelsmenn sín á milli í 5. Mósebók 30:8–10? Hvaða loforð höfum við gefið Guði? (sjá Kenning og sáttmálar 20:37, 77). Hvernig tengja þessi loforð okkur við hann? Íhugið að syngja saman söng um sáttmála, t.d. „Standing on the Promises“ (Gospel Library).

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

Móse horfir til fyrirheitna landsins

Drottinn sýndi honum allt landið, eftir Walter Rane

Verkefnasíða Barnafélagsins: Ég get varðveitt orð Guðs í hjarta mér