„27. apríl–3. maí. ‚[Heilagleiki Drottins]‘: 2. Mósebók 35–40; 3. Mósebók 1; 4; 16; 19,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„27. apríl–3. maí. ‚[Heilagleiki Drottins]‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Ríó de Janeiro-musterið, Brasilíu
27. apríl–3. maí: „[Heilagleiki Drottins]“
2. Mósebók 35–40; 3. Mósebók 1; 4; 16; 19
Brottför frá Egyptalandi – svo mikilvæg sem hún var – uppfyllti ekki fyllilega tilgang Guðs varðandi Ísraelsmenn. Velsæld þeirra í fyrirheitna landinu var jafnvel ekki endanlegur tilgangur Guðs fyrir þá. Þetta voru aðeins skref í áttina að því sem Guð vildi raunverulega fyrir fólk sitt: „Verið heilagir því að ég, Drottinn, Guð ykkar, er heilagur“ (3. Mósebók 19:2). Hvernig ráðgerði Guð að gera fólk sitt heilagt eftir að það hafði lifað í ánauð um kynslóðir? Hann bauð því að búa til stað heilagleika í eyðimörkinni – tjaldbúð. Hann sá þeim fyrir sáttmálum og lögmálum til að breyta eftir og umbreyta hjartalagi þess. Og hann bauð því að færa dýrafórnir til að kenna því um friðþægingu fyrir syndir þess. Öllu þessu var ætlað að beina huga þess, hjarta og lífi að frelsaranum. Hann er hinni sanni vegur til heilagleika fyrir Ísraelsmenn og fyrir okkur. Öll höfum við varið einhverjum tíma í ánauð syndar og okkur er öllum boðið að segja skilið við synd og fylgja Jesú Kristi, sem hefur lofað: „Ég get gjört yður heilaga“ (Kenning og sáttmálar 60:7).
Til að fá yfirlit yfir 3. Mósebók, sjá þá „Leviticus (Þriðja Mósebók)“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
2. Mósebók 35–40; 3. Mósebók 19
Drottinn vill að ég verði heilagur einstaklingur.
Í 2. Mósebók 35–40 eru fyrirmæli Drottins til Ísraelsmanna um hvernig skuli byggja tjaldbúð, þar sem helgisiðir myndu hjálpa þeim að verða heilagt fólk. Þegar þið lesið þessa kafla, gætið þá að þeim hlutum sem Drottinn bauð fólki sínu að hafa í tjaldbúðinni. Hvað gætu þessir hlutir táknað? Hvað segja þeir ykkur um aukinn heilagleika? Íhugið einkum hvernig þessir hlutir beina hugsunum ykkar að frelsaranum. Tafla líkt og þessi gæti hjálpað:
|
Hvaða hluti funduð þið? |
Hvað geta þeir táknað? |
|---|---|
Hvaða hluti funduð þið? Sáttmálsörkin (2. Mósebók 37:1–9; 40:20–21) | Hvað geta þeir táknað? (Sjá 2. Mósebók 25:20–22; Leiðarvísir að ritningunum, „Sáttmálsörkin“) |
Hvaða hluti funduð þið? Reykelsisaltarið (2. Mósebók 40:26–27; sjá einnig 2. Mósebók 30:1, 6–8) | Hvað geta þeir táknað? (Sjá Opinberunarbókin 8:3–4) |
Hvaða hluti funduð þið? Ljósastikan eða lamparnir (2. Mósebók 37:17–24) | Hvað geta þeir táknað? (Sjá Matteus 5:14–16; Jóhannes 8:12) |
Hvaða hluti funduð þið? Fórnaraltarið (2. Mósebók 38:1–7; sjá einnig 2. Mósebók 27:1; 29:10–14) | Hvað geta þeir táknað? (Sjá Leiðarvísir að ritningunum, „Fórn“) |
Hvaða hluti funduð þið? Vatnsker (2. Mósebók 30:17–21) | Hvað geta þeir táknað? (Sjá 2. Kroníkubók 4:6; Jesaja 1:16; Jeremía 33:8) |
Það gerir okkur auðvitað ekki heilög einfaldlega að vera á heilögum stöðum. Í 3. Mósebók 19 er sagt frá lögmálum og boðorðum sem Drottinn setti til að hjálpa Ísraelsmönnum að verða heilagri. Hvað finnið þið í þessum boðorðum sem gæti hjálpað ykkur að sækjast eftir meiri heilagleika frá Drottni? Hvað finnst ykkur þið hvött til að gera til að fylgja þessum reglum betur?
Sjá einnig Henry B. Eyring, „Heilagleiki og sæluáætlunin,“ aðalráðstefna, október 2019; „The Tabernacle“ (myndband), Gospel Library.
The Tabernacle
Notið helga tónlist. Í tónlist býr mikill kraftur til að bjóða heim áhrifum andans og byggja upp trú á Jesú Krist. Boðskapur sálma styrkir oft kenninguna í ritningunum. Dæmi: Að syngja sálminn „Auk heilaga helgun“ (Sálmar, nr. 39), getur undirstrikað boðskapinn sem kenndur er í 3. Mósebók 19. Það getur líka hjálpað ykkur að hugsa um merkingu þess að verða heilög eins og frelsarinn og hugleiða hvernig hann hjálpar ykkur að aukast að heilagleika.
2. Mósebók 35:4–35; 36:1–7
Drottinn býður að ég færi fórnir mínar af fúsu hjarta.
Á árinu eftir að Ísraelsmenn fóru frá Egyptalandi mætti segja að samband þeirra við Jehóva hafi verið hvikult. Gætið þó að því hvernig Ísraelsmenn brugðust við boðinu um að reisa tjaldbúð við lestur 2. Mósebókar 35:4–35 og 36:1–7. Hvað lærið þið af Ísraelsmönnum, sem gæti hjálpað ykkur að þjóna Drottni betur?
Hann biður ykkur kannski ekki um dýra málma, baðmull eða við fyrir tjaldbúð. Hvað hefur Drottinn gefið ykkur og hverju býður hann ykkur að fórna? Hvenær hafið þið „af fúsum hug og af frjálsum vilja [fært] framlag vegna vinnunnar“?
Sjá einnig Topics and Questions, „Sacrifice,“ Gospel Library.
Ísraelsmenn færðu fórnir fyrir tjaldbúðina, „eftir því sem hjarta [þeirra bauð þeim]“ (2. Mósebók 35:5). Myndskreyting: Corbert Gauthier, © Lifeway Collection/með leyfi goodsalt.com
2. Mósebók 40:12–14
Helgiathafnir musterisins voru gefnar til forna.
Í 2. Mósebók 40:12–14 er vísað í fornar helgiathafnir sem einnig eru framkvæmdar á okkar tímum í húsi Drottins. Hér eru nokkur fleiri vers sem geta hjálpað ykkur að læra hvernig þessar helgiathafnir vitna um Jesú Krist:
-
Laugun: Sálmarnir 51:4; Esekíel 36:25–27
-
Klæðnaður í helg klæði: Jesaja 61:10; Matteus 22:11–14; Opinberunarbókin 19:7–8
-
Smurning: Lúkas 4:18–19; Postulasagan 10:38
3. Mósebók 1:1–9; 4; 16
Ég get hlotið fyrirgefningu fyrir tilverknað friðþægingar Jesú Krists.
Margt í 3. Mósebók gæti komið okkur undarlega fyrir sjónir – dýrafórnir, helgisiðir með blóði og vatni og lögmál sem stjórna hverju smáatriði í lífi okkar. Þessum helgisiðum og lögum var þó ætlað að kenna kunnugar reglur – iðrun, heilagleika og friðþægingu frelsarans. Hugleiðið eftirfarandi spurningar við lestur 3. Mósebókar 1:1–9; 4; 16 til að finna þessar reglur:
-
Hvaða orð eða orðtök finn ég sem minna mig á Jesú Krist og friðþægingarfórn hans?
-
Hvað lærum við af þessum fórnum um fórn frelsarans?
-
Hvernig er ég eins og fólkið sem færði þessar fórnir?
Drottinn krefst ekki lengur dýrafórna. Fórn er samt mikilvæg regla fagnaðarerindisins. Lesið 3. Nefí 9:19–20; Kenningu og sáttmála 64:34 til að læra hvers konar fórn það er sem Drottinn krefst. Hvernig eruð þið að færa slíkar fórnir? Hvað kennir HDP Móse 5:7 um hvernig þið ættuð að líta á fórnir ykkar?
Sjá einnig „Ábendingar til að hafa hugfastar: Tjaldbúðin og fórn“.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
2. Mósebók 35:20–29; 36:1
Guð hefur gefið mér gjafir til að hjálpa við verk hans.
-
Aftast í þessum lexíudrögum er mynd af tjaldbúð Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Þið gætuð viljað skoða hana með börnum ykkar og spyrja þau að því hvaða efni hefði þurft til að reisa tjaldbúðina. Þið gætuð síðan lesið saman 2. Mósebók 35:20–29 til að kynna ykkur hvernig efnisins var aflað. Hvernig hefur Drottinn boðið að við leggjum okkar af mörkum við uppbyggingu ríkis hans?
-
Íhugið að lesa 2. Mósebók 36:1 með þeim til að komast að því sem Drottinn gaf Besalel og Oholíab til að hjálpa við að reisa tjaldbúðina. Þið gætuð síðan rætt við börn ykkar um hvað ykkur finnst Drottinn hafa gefið þeim til að byggja upp ríki hans. Hvernig getum við notað þetta öðrum til blessunar?
Rómarmusterið, Ítalíu
2. Mósebók 40:17–34
Ég get fundið fyrir nærveru Drottins á heilögum stöðum.
-
Í 2. Mósebók 40:17–34 er tilgreint það sem heyrði til tjaldbúðar Ísraelsmanna. Þið og börn ykkar gætuð ef til vill fundið það í þessum versum og á myndinni af tjaldbúðinni aftast í þessum lexíudrögum. Ræðið hvernig hver hluti tjaldbúðarinnar gæti kennt um frelsarann eða himneskan föður. Dæmi: Sáttmálsörkin gæti minnt okkur á boðorð Guðs, altarið minnt okkur á fórn Jesú Krists, o.s.frv.
-
Hvaða heilögu staði höfum við í dag sem hjálpa okkur að komast nær Jesú Kristi? Hluti af þessari umræðu gæti falist í því að horfa saman á myndbandið „Temples“ (Gospel Library). Þið gætuð líka sungið söng eins og „Holy Places“ (Gospel Library). Miðlið hvert öðru hvað ykkur finnst um heilaga staði eins og musterið.
What Is a Temple?
3. Mósebók 1:1–4
Ég get hlotið fyrirgefningu fyrir tilverknað friðþægingar Jesú Krists.
-
Dýrafórnunum sem lýst er í Gamla testamentinu var ætlað að kenna Ísraelsmönnum um fyrirgefningu fyrir milligöngu Jesú Krists. Íhugið hvernig lestur um þessar fórnir gæti gert það sama fyrir börn ykkar. Þið gætuð sýnt myndir af Jesú Kristi í Getsemane og á krossinum (sjá Trúarmyndabók, nr. 56, 57) er þið lesið 3. Mósebók 1:1–4 með börnunum. Hjálpið þeim að finna orð eða orðtök sem minna þau á fórn Jesú Krists.
-
Þið gætuð líka lesið saman 3. Nefí 9:19–20 til að komast að því hverju okkur er boðið að fórna í stað dýra. Hver er merking þess að bjóða Drottni sundurkramið hjarta og sáriðrandi anda? Sjá Leiðarvísi að ritningunum, „Sundurkramið hjarta“ (Gospel Library) til að fá hjálp við að svara þessari spurningu.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.