„6.–12. júlí. ‚Til er spámaður í Ísrael‘: 2. Konungabók 2–7,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„6.–12. júlí. ‚Til er spámaður í Ísrael‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Á árbakka, eftir Annie Henrie Nader
6.–12. júlí: „Til er spámaður í Ísrael“
2. Konungabók 2–7
Helsta verkefni spámanns er að kenna og vitna um frelsarann Jesú Krist. Í frásögninni um Elísa spámann er þó ekki mikið vitnað í kennslu hans eða vitnisburð. Í frásögninni segir frá kraftaverkunum sem Elísa gerði, þar á meðal að reisa barn upp frá dauðum (sjá 2. Konungabók 4:18–37), metta mannfjölda með aðeins smávegis mat (sjá 2. Konungabók 4:42–44) og lækna holdsveikan mann (sjá 2. Konungabók 5:1–14). Þótt við höfum ekki orð Elísa um Krist, þá höfum við þjónustu Elísa og kraftaverk, sem bera vitni um Krist. Það eru máttugar birtingarmyndir á lífgefandi, endurnærandi og græðandi mætti Drottins. Kraftaverk gerast oftar í lífi okkar en við gerum okkur stundum grein fyrir. Til að bera kennsl á þau, þurfum við að leita þeirrar trúar sem Elísa bjó að þegar hann bað fyrir óttaslegnum ungum þjóni sínum: „Drottinn, opna augu hans svo að hann sjái“ (2. Konungabók 6:17).
Til frekari upplýsingar um 2. Konungabók, sjá þá „Konungabækurnar“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
2. Konungabók 2–6
Guð getur gert kraftaverk í lífi mínu.
Kraftaverk sýna okkur mátt Guðs. Þau geta hjálpað okkur að sigrast á erfiðleikum jarðlífsins – eins og hrjóstrugu landi sem þarfnast hreins vatns (sjá 2. Konungabók 2:19–22) eða týndrar axar sem þarf að endurheimta (sjá 2. Konungabók 6:4–7). Mikilvægast er þó að kraftaverk geta snúið okkur til Drottins. Þegar þið lesið 2. Konungabók 2–6, íhugið þá að skrá kraftaverkin sem þið finnið og ígrunda þá andlegu lexíur sem þið lærið af hverju þeirra.
Þið gætuð líka borið saman kraftaverkin sem Elísa gerði og kraftaverkin sem Jesús Kristur gerði (sjá 2. Konungabók 4:8–37 og Lúkas 7:11–16; 2. Konungabók 4:42–44 og Jóhannes 6:1–13; 2. Konungabók 5:1–15 og Lúkas 17:11–19). Hvað kenna þessi kraftaverk ykkur um frelsarann og spámenn hans?
Sjá einnig 2. Nefí 26:12–13; 27:23; Moróní 7:35–37; hlutann „Leitið og væntið kraftaverka“ í boðskap Russells M. Nelson, „Máttur andlegs skriðþunga,“ aðalráðstefna, apríl 2022.
Elísa reisir upp son súnemsku konunnar, eftir Frederic Leighton
2. Konungabók 4:8–17; 7:1–16
Drottinn mun uppfylla orð sín sem gefin eru með spámönnum hans.
Drottinn blés Elísa í brjóst að spá um það sem verða átti – oftast það sem virtist ósennilegt að myndi gerast. Þegar þið lesið 2. Konungabók 4:8–17; 7:1–16, íhugið þá hvernig þið bregðist við orðum Drottins gefin með spámönnum hans á okkar tíma. Hvaða kenningar, spádóma eða loforð hafið þið heyrt frá lifandi spámönnum? Hvað eruð þið að gera til að breyta eftir orðum þeirra í trú?
Sjá einnig 3. Nefí 29:6; Kenning og sáttmálar 1:37–38; ritsafnið „Teachings of Presidents“, Gospel Library.
2. Konungabók 5
Ef ég sýni auðmýkt og hlýðni getur Jesús Kristur læknað mig.
Þegar þið lesið 2. Konungabók 5, íhugið þá að bera holdsveiki Naamans saman við andlega áskorun sem þið takist á við.
Er einhver eins og „litla stúlkan“ í lífi ykkar sem hvetur ykkur til að leita leiðsagnar hjá spámönnum Drottins varðandi áskoranir ykkar? (sjá vers 2–3, 13).
Hvað býður Drottinn ykkur að gera sem gæti virst of einfalt – eins og „[laugið ykkur og þið verðið hrein]“? (vers 13). Hvað gæti verið að hindra ykkur í að meðtaka einföld boð hans?
Hvernig getið þið sýnt auðmýkt eins og Naaman gerði?
Gætið að því hvernig reynsla Naamans hafði áhrif á trú hans á Guð Ísraels (sjá vers 15). Hvað getið þið lært af þessu?
Sjá einnig Lúkas 4:27; 1. Pétursbréf 5:5–7; Alma 37:3–7; Eter 12:27; L. Whitney Clayton, „Gjörið það, sem hann kann að segja yður,“ aðalráðstefna, apríl 2017; „Naaman and Elisha“ (myndband), Gospel Library.
Naaman and Elisha
Heimfærið ritningarnar upp á líf ykkar. Stundum er auðveldara að finna persónulega merkingu í ritningunum þegar þið berið hið efnislega í frásögn saman við hið andlega í lífi ykkar. Þegar þið t.d. lærið 2. Konungabók 2–7, gætuð þið borið aðstæður lífs ykkar saman við holdsveiki, exi sem fengið var að láni, ána Jórdan eða fjölmennan innrásarher. Hvaða lexíur hefur Drottinn fyrir ykkur í þessum frásögnum?
2. Konungabók 6:8–23
„Þeir sem eru með okkur eru fleiri en hinir.“
Hefur ykkur einhvern tíma liðið eins og ungum þjóni Elísa þegar þið reynið að fylgja Kristi – ofurliði borin og óttaslegin? Ímyndið ykkur að þið væruð í hans sporum við lestur 2. Konungabókar 6:8–23. Hvernig breytir þessi frásögn því hvernig þið hugsið og upplifið þrengingar ykkar, ábyrgð eða viðleitni til að lifa eftir fagnaðarerindinu?
Þegar þið íhugið þetta, hugleiðið þá þessi orð Henrys B. Eyring forseta: „Líkt og með sveininn eru fleiri með ykkur en þeir sem þið sjáið gegn ykkur. Sumir sem eru með ykkur kunna að vera ósýnilegir ykkar jarðnesku augum. Drottinn mun styðja ykkur og stundum kalla aðra til að styðja ykkur“ („Ó, þér sem gangið í þjónustu,“ aðalráðstefna, október 2008).
Íhugið að skrá „þá sem með [ykkur] eru“ (vers 16) – fólk sem Guð hefur sett í líf ykkar til að styðja ykkur. Þið gætuð beðið hann að hjálpa ykkur að bera kennsl á þetta fólk með því að ljúka upp ykkar andlegu augum. Hann hefur líklega líka sett ykkur í líf annarra þeim til hjálpar. Hvernig getið þið hlotið styrk og stuðning frá hvert öðru?
Hvenær hafið þið fundið fyrir þeim stuðningi sem Drottinn lýsir í Kenningu og sáttmálum 84:88?
Þið gætuð líka kynnt ykkur boðskap systur Michelle D. Craig, „Augu til að sjá“ (aðalráðstefna, október 2020). Spyrjið ykkur sjálf: „Hvað vill Guð að ég sjái?“
Öldungur Ronald A. Rasband vísaði til frásagnarinnar í 2. Konungabók 6:8–23 og sagði: „Við gætum kannski eða kannski ekki fengið eldvagna senda til slá á ótta okkar og sigrast á forynjum okkar, en lexían er skýr. Drottinn er með okkur, gætir að og blessar okkur á þann hátt sem honum einum er mögulegt. Bænin getur kallað niður nauðsynlegan styrk og opinberun, svo við getum beint hugsunum okkar að Jesú Kristi og friðþægingu hans. Drottinn vissi að við myndum einhvern tíma upplifa ótta. Það hef ég gert og þið líka. … Í þessari kirkju gætum við verið fá að tölu og áhrifamætti að mælikvarða heimsins, en ef andleg augu okkar ljúkast upp, munum við sjá að ,fleiri eru þeir, sem með okkur eru, en þeir, sem með þeim eru’ [2. Konungabók 6:16]“ („Verið eigi áhyggjufullir,“ aðalráðstefna, október 2018). Hvernig mynduð þið nota þessi orð til að hjálpa einhverjum sem er kvíðinn eða hræddur?
Sjá einnig „Börnin góðu, Guð er nærri,“ nótnasett á lausum blöðum.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
2. Konungabók 4
Guð getur gert kraftaverk í lífi mínu.
-
Eftir að hafa hjálpað börnum ykkar að skilja hvað kraftaverk er, bjóðið þeim þá að skrá eins mörg dæmi um kraftaverk og þau geta. Myndir í Trúarmyndabók eða Kom, fylg mér geta hjálpað. Þau gætu síðan leitað að kraftaverkum í 2. Konungabók 4:1–7, 14–17, 32–35, 38–44. Hvað kenna þessi kraftaverk um himneskan föður?
-
Þið og börn ykkar gætuð rætt hvernig Guð hefur sýnt elsku sína með kraftaverkum. Þið gætuð líka sungið saman söng eins og „God‘s Gracious Love“ (Gospel Library).
Standa sem vitni, eftir Kwani Povi Winder
2. Konungabók 5:1–15
Ég get valið að gera það sem Guð býður með spámanni sínum.
-
Hjálpið börnum ykkar að læra söguna í 2. Konungabók 5:1–3, 9–14. Íhugið að nota „Elísa læknar Naaman“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 134–37) eða myndina af Naaman í lexíudrögum þessarar viku. Hvers vegna vildi Naaman ekki baða sig í ánni Jórdan, jafnvel þótt Elísa hefði sagt að það myndi lækna sjúkdóm hans? Hvernig var Naaman blessaður þegar hann fylgdi fyrirmælum Elísa? Þið gætuð miðlað hvert öðru upplifunum þar sem þið hlýdduð Drottni, jafnvel þegar þið voruð ekki viss um að þið vilduð það.
1:52Elisha Heals Naaman
-
Þið gætuð líka lagt áherslu á 2. Konungabók 5:13, þar sem þjónar Naamans hjálpuðu honum að ákveða að hlýða spámanninum Elísa. Börn ykkar gætu síðan rætt hvernig þau geta hjálpað vinum sínum eða fjölskyldumeðlimum að hlusta á og hlýða spámanninum.
2. Konungabók 6:8–17
Ekki er ég einsamall/einsömul.
-
Þið og börn ykkar gætuð ímyndað ykkur að þið væruð umkringd hersveit vopnaðri sverðum, hestum og vögnum. Hvernig liði ykkur? Hvað mynduð þið gera? Börn ykkar gætu síðan lokað augunum meðan þið lesið 2. Konungabók 6:16–17 fyrir þau. (Sjá einnig „Elísa og hersveit Drottins,“ í Sögur úr Gamla testamentinu, 138–39, eða myndina aftast í þessum lexíudrögum.) Þegar þið komið að orðunum „opna augu hans“ (vers 17), biðjið þá börnin að opna augun. Ræðið það sem þjónninn sá. Segið börnum ykkar frá því hvernig ykkur hefur fundist Drottinn vera með ykkur í erfiðleikum ykkar, jafnvel þegar þið virtust vera einsömul.
1:9Elisha and the Lord’s Army
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.