„10.–16. ágúst. ‚[Samt set ég traust mitt á hann]‘: Jobsbók 1–3; 12–14; 19; 21–24; 38–40; 42,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„10.–16. ágúst. ‚[Samt set ég traust mitt á hann]‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Dómar Jobs, eftir Joseph Brickey
10.–16. ágúst: „[Samt set ég traust mitt á hann]“
Jobsbók 1–3; 12–14; 19; 21–24; 38–40; 42
Það er eðlilegt að velta fyrir sér hvers vegna slæmir hlutir komi fyrir gott fólk – eða jafnvel hvers vegna góðir hlutir gerist fyrir slæmt fólk. Af hverju myndi Guð, sem er réttlátur, leyfa það? Í Jobsbók eru spurningar sem þessar ígrundaðar. Job var einn af þessum góðu einstaklingum sem margt slæmt gerðist fyrir. Vegna hörmunga Jobs, veltu vinir hans fyrir sér hvort hann hafi í raun verið góður þegar allt kom til alls. Job hélt fram réttlæti sínu og velti fyrir sér hvort Guð væri í raun réttvís eftir allt saman. En þrátt fyrir þjáningar sínar og efasemdir, hélt Job ráðvendni sinni og trú á Jesú Krist. Í Jobsbók er trúin vegin og metin en aldrei algjörlega yfirgefin. Það þýðir ekki að öllum spurningunum sé svarað. Jobsbók kennir þó að þar til þeim verður svarað, geti trú farið samhliða spurningum. Hvað sem gerist fram að því, getum við sagt um Drottin okkar: „[Samt set ég traust mitt á hann]“ (Job 13:15).
Til að fá yfirlit yfir Jobsbók, sjá þá „Job“ í Leiðarvísi að ritningunum (Gospel Library).
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jobsbók 1–3; 12–13
Ég get treyst Guði í öllum aðstæðum.
Í fyrstu köflum Jobsbókar er með ljóðrænum hætti lögð áhersla á hlutverk Satans sem andstæðings okkar eða ákæranda; þær lýsa ekki raunverulegum samskiptum Guðs og Satans. Þegar þið lesið það sem Satan sagði um Job (sjá Jobsbók 1:9–11; 2:4–5), gætuð þið spurt ykkur sjálf: „Hvers vegna er ég trú/r Guði?“ Hvers vegna væri hættulegt að hlýða Drottni eingöngu af ástæðunum sem Satan nefndi.
Hvað hrífur ykkur varðandi viðbrögð Jobs við raunum hans? (sjá Jobsbók 1:20–22; 2:9–10).
Vinir Jobs gáfu í skyn að Guð væri að refsa honum (sjá Jobsbók 4–5; 8; 11). Hvaða vandamál sjáið þið varðandi þessa hugmynd? Lesið svar Jobs í köflum 12–13. Hvað vissi Job um Guð sem gerði honum kleift að halda áfram að treysta honum? Hvað vitið þið um Guð sem hjálpar ykkur að takast á við áskoranir?
Jobsbók 19
Jesús Kristur er frelsari minn.
Stundum lærum við mikilvægasta sannleikann á erfiðustu tímum okkar. Íhugið þær prófraunir sem Job lýsir í Jobsbók 19:1–22 og síðan þann sannleika sem hann játast í versum 19:23–27. Hvernig vitið þið að lausnari ykkar lifir? Hverju breytir þessi vitneskja í lífi ykkar?
Íhugið að syngja eða hlusta á sálm um Jesú Krist, t.d. „Ég veit minn lifir lausnarinn“ (Sálmar, nr. 36). Hvaða orð í þessum sálmi tjá tilfinningar ykkar til hans?
Sjá einnig Kenning og sáttmálar 121:1–12; 122.
Jobsbók 21–24
„Prófi hann mig reynist ég sem gull.“
Í Jobsbók 21–24 lesið þið rökræður milli Jobs og vina hans. Kjarni þessarar umræðu var spurning sem margir hafa spurt: Hvers vegna þjáist réttlátt fólk stundum?
Þrátt fyrir að við höfum ekki öll svörin, þá höfum við ákveðinn sannleika í hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists sem getur hjálpað okkur að skilja mótlæti og þjáningar. Hér á eftir eru ritningar síðari daga sem geyma eitthvað af þessum sannleika. Hvað kenna þessi ritningarvers okkur um áætlun himnesks föður?
Þið gætuð líka lesið kenningar Spencers W. Kimball forseta um mótlæti í „Tragedy or Destiny?“ (Teachings of Presidents of the Church: Spencer W. Kimball [2011]), 11–21).
Hvernig gætuð þið svarað spurningu, byggt á því sem þið hafið lært, eins og: „Hvers vegna leyfir Guð að hinir réttlátu þjáist?“
Stilla og stjörnur, eftir Yongsung Kim. Mynd birt með góðfúslegu leyfi havenlight.com
Jobsbók 38–40; 42
Guð hefur meiri yfirsýn en ég.
Reiður yfir ásökunum vina sinna (sjá Jobsbók 16:1–5; 19:1–3), spurði Job Guð endurtekið hvers vegna hann þyrfti að þjást svo mikið (sjá Job 19:6–7; 23:1–9; 31). Drottinn gaf ekki skýra ástæðu í Jobsbók. Hann kenndi þó mikilvægan boðskap í köflum 38–40. Hvernig mynduð þið taka saman þennan boðskap? Hvað lærið þið t.d. af spurningum Drottins í Jobsbók 38:1–7, 18–24?
Þið sjáið að Drottinn talaði til Jobs um sum sköpunarverk hans og önnur máttarverk (sjá Jobsbók 38–39). Þið gætuð skoðað einhver þessara sköpunarverka (eða myndir af þeim). Hvernig hjálpar þetta ykkur að hugsa öðruvísi um Guð? Um raunir ykkar? Hvernig breytti þetta viðhorfi Jobs? (sjá Job 42:1–6; sjá einnig HDP Móse 1:8–10).
Hér eru tvær aðalráðstefnuræður sem geta hjálpað okkur að breyta sjónarhorni okkar: Tamara W. Runia, „Sjá fjölskyldu Guðs í gegnum yfirlitslinsuna“ (aðalráðstefna, október 2023); Russell M. Nelson, „Hugsið himneskt!“ (aðalráðstefna, október 2023). Í hvorum boðskapnum sem er, leitið þar að einhverju sem þið viljið muna eftir næst þegar þrengingar ykkar virðast yfirþyrmandi. Hvernig munið þið minna ykkur sjálf á það sem þið lærðuð?
Verið skapandi. Lærdómur þarf ekki einungis að felast í lestri, hugsun og töluðu máli. Stundum hlýst eftirminnilegasti lærdómurinn af líkamlegum athöfnum. Þegar þið t.d. lesið um það hvernig Drottinn breytti sýn Jobs í Jobsbók 38–40, gætuð þið farið í göngutúr og skoðað sum sköpunarverk Drottins, stór sem smá. Þið gætuð líka þess í stað horft á hlut út frá mismunandi sjónarhornum – ofan frá, neðan frá, í nálægð, í fjarlægð, o.s.frv.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jobsbók 1–2; 12; 19
Trú á Jesú Krist mun hjálpa mér á erfiðum tímum.
-
Hvetjið börn ykkar til að segja ykkur það sem þau vita um Job. Ef þau þurfa hjálp, gætuð þið bent þeim á Jobsbók 1:1, 13–22; 2:7–10 eða „Job“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 145–47). Hvernig brást Job við áskorunum? (sjá Jobsbók 1:21; 2:10).
1:55Job
-
Job var trúr í áskorunum sínum, vegna þess sem hann vissi um Drottin. Þið og börn ykkar gætuð ef til vill horft á myndir af Jesú Kristi eiga samskipti við aðra (eins og þessa hér að neðan eða myndirnar í Trúarmyndabók). Talið um það sem þið vitið um hann og hvernig hann er. Hér eru nokkur vers sem sýna það sem Job vissi um Drottin: Job 12:10, 13, 16; 19:25–27. Af hverju er mikilvægt að vita þessa hluti um hann?
Hann læknaði þau öll, eftir Michael Malm
Jobsbók 14:14
Vegna Jesú mun ég lifa aftur eftir að ég dey.
-
Job spurði mikilvægrar spurningar í Jobsbók 14:14. Þið og börn ykkar gætuð ef til vill skipst á að segja frá því hvernig þið mynduð svara Job. Þið gætuð leitað að hugmyndum í Alma 11:42–44, í myndbandinu „In a Coming Day“ (Gospel Library) eða í söng um upprisuna, svo sem „Reis Jesús upp?“ (Barnasöngbókin, 45).
#BECAUSEofHIM: An Easter Message of Hope and Triumph
Jobsbók 16:1–5; 22:5–11
Góðir vinir lyfta og hvetja hver annan.
-
Þegar Job var sorgmæddur, sögðu vinir hans að Guð væri að refsa honum vegna þess að hann hefði syndgað (sjá Job 22:5). Hvernig myndum við reyna að hjálpa Job, ef við værum vinir hans? Hvernig geta orð okkar hjálpað öðrum þegar þau eru niðurlút? (sjá Jobsbók 16:5). Íhugið að sýna eina eða fleiri myndir í þessum lexíudrögum þegar þið ræðið þessar spurningar.
-
Íhugið að biðja börn ykkar að skrá nokkra eiginleika góðs vinar og tilgreina vin sem hefur þessa eiginleika. Síðan gætuð þið skoðað mynd af Jesú Kristi. Á hvaða hátt er Jesús okkur öllum góður vinur? Þið gætuð hugsað um einhvern sem er að ganga í gegnum erfiðleika. Ráðgerið hvernig þið munið vera honum eða henni kristilegur vinur.
Jobsbók 19:23–27
Jesús Kristur er frelsari minn.
-
Eftir lestur Jobsbókar 19:23–27, gætuð þið og börn ykkar rætt um það hvernig þið vitið að lausnari okkar lifir. Þið gætuð unnið að því saman að skrá orð vitnisburðar ykkar (eða teikningar af frelsaranum) í bók (sjá vers 23).
-
Þið gætuð líka sungið söng sem vitnar um frelsarann, t.d. „Ég veit minn lifir lausnarinn“ (Sálmar, nr. 36). Miðlið orðtökum úr sálminum sem styrkja trú ykkar á hann. Af hverju er mikilvægt að vita að Jesús Kristur lifir?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.