Kom, fylg mér
17.–23. ágúst. „Drottinn er minn hirðir“: Sálmarnir 1–2; 8; 19–33; 40; 46


„17.–23. ágúst. ‚Drottinn er minn hirðir‘: Sálmarnir 1–2; 8; 19–33; 40; 46,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„17.–23. ágúst. ‚Drottinn er minn hirðir‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Jesús leiðir sauði

Drottinn er minn hirðir, eftir Yongsung Kim. Mynd birt með góðfúslegu leyfi havenlight.com

17.–23. ágúst: „Drottinn er minn hirðir“

Sálmarnir 1–2; 8; 19–33; 4046

Ekki er vitað með vissu hver ritaði Sálmana. Sumir eru eignaðir Davíð konungi en ekki er getið um höfunda flestra þeirra. Eftir að hafa lesið Sálmana, finnst okkur þó sem við þekkjum hjörtu höfunda Sálmanna, jafnvel þótt við vitum ekki hvað þeir heita. Við vitum að Sálmarnir voru mikilvægur tilbeiðsluþáttur meðal Ísraelsmanna og að frelsarinn vitnaði oft í þá. Sálmarnir eru eins konar gluggi inn í sál hins forna fólks Guðs. Við sjáum hvað því fannst um Guð, hverju það hafði áhyggjur af og hvernig það fann frið. Trúaðir um allan heim á okkar tíma nota enn texta Sálmanna í tilbeiðslu sinni á Guð. Það er næstum eins og höfundar Sálmanna hafi haft glugga inn í sál okkar, vegna þess að þeir tjá hvað okkur finnst um Guð, hverju við höfum áhyggjur af og hvernig við finnum frið.

Til að fá yfirlit yfir Sálmana, sjá þá „Sálmur“ í Leiðarvísi að ritningunum.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Sálmarnir 1; 23; 26–2846

„Ég treysti Drottni.“

Þegar þið lesið Sálmana, gætuð þið veitt því athygli hversu oft höfundar þeirra tjá ótta, sorg eða kvíða. Slíkar tilfinningar eru eðlilegar, jafnvel hjá trúuðu fólki. Það sem þó gerir Sálmana andríka er að þeir bjóða fram andríkar lausnir, þar á meðal að treysta Drottni fullkomlega. Þegar þið lesið Sálmana 1; 23; 26–2846, skrifið þá:

  • Boð um að treysta Drottni.

  • Orð sem lýsa honum.

  • Orð sem lýsa friði, styrk og öðrum blessunum sem hann veitir.

  • Orð sem lýsa fólki sem treystir honum.

Gætið líka að myndmáli og táknum sem Sálmarnir nota til að kenna um frelsarann. Dæmi: Hvað kemur t.d. upp í hugann í Sálmi 23 við lestur orðtaka líkt og: „Á grænum grundum lætur hann mig hvílast“ eða „leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta“ (vers 2)? Hvað gætu huggandi „sproti“ og „stafur“ táknað (vers 4)? Hvað gæti það þýtt að „bikar“ (vers 5) okkar sé barmafullur?

Sálmarnir 222

Jesús Kristur er hinn fyrirheitni Messías.

Nokkrir Sálmanna vísa til jarðlífs Jesú Krists. Kristnir menn á tíma Nýja testamentisins sáu líka þessar samsvaranir. Íhugið að lesa eftirfarandi ritningartilvísanir. Gætið að samsvörunum í texta þessara sálma og lífi frelsarans:

  • Sálmarnir 2:1–3 og Postulasagan 4:24–28

  • Sálmarnir 2:7 og Postulasagan 13:30–33

  • Sálmarnir 22:2 og Matteus 27:45–46

  • Sálmarnir 22:8–9 og Matteus 27:39–43

  • Sálmarnir 22:17 og Lúkas 23:32–33

  • Sálmarnir 22:19 og Matteus 27:35

  • Sálmarnir 31:7 og Lúkas 23:46

Hvað lærið þið við að rannsaka þessar tengingar? Hvaða spádómar og loforð ritninganna hafa enn ekki uppfyllst? Hvað finnið þið í þessum loforðum sem vekur ykkur von varðandi framtíðina?

á og klettar

Sálmarnir 8; 1933

„Jörðin er full af gæsku Drottins.“

Lestur Sálmanna 8; 19; og 33 gæti veitt ykkur innblástur til að hugleiða hin mörgu og dásamlegu sköpunarverk Drottins. Gefið gaum að tilfinningum ykkar þegar þið gerið það. Þið gætuð líka viljað syngja eða ígrunda texta söngs sem tengist þessum sálmum, til að mynda „Þú mikill ert“ (Sálmar, 22). Hvernig „kunngjörir“ sköpun Drottins ykkur „[verk] hans handa“? (Sálmarnir 19:2).

Hér eru nokkrir fleiri sálmar innblásnir af Sálmunum:

Notið tónlist. Dallin H. Oaks forseti sagði: „Sálmasöngur er ein besta leiðin til að samstilla okkur anda Drottins. … Helg tónlist hefur einstakan eiginleika til að tjá kærleikstilfinningar okkar til Drottins. Slík samskipti eru dásamleg hjálpartæki í tilbeiðslu okkar. … Sálmar okkar hafa að geyma óviðjafnanlegar kenningarræður, sem einungis vega hærra í sannleika ritninganna og ljóðrænum áhrifum þeirra“ („Worship through Music,“ Ensign, nóv. 1994, 10, 11). Hvaða sálma sem tengjast Sálmunum gætuð þið hlustað á eða sungið til að auðga tilbeiðslu ykkar þessa vikuna?

Sálmarnir 19:8–1229

Orð Drottins eru máttug og „gleðja hjartað“.

Í Sálmunum geta orð eins og vitnisburður, fyrirmæli, boðorð og ákvæði átt við um orð Drottins. Hafið þetta hugfast við lestur Sálmanna 19:8–12. Hvað segja þessi vers ykkur um orð Drottins? Hvað kenna Sálmarnir 29 ykkur um rödd hans? Hvernig hefur orð eða rödd Drottins átt við um þessa lýsingu samkvæmt ykkar reynslu?

Sálmarnir 24; 26–27

trúarskólatákn
Frelsarinn getur hjálpað mér að vera hrein/n, svo ég geti komist í návist Guðs.

Þar sem musterið í Jerúsalem var byggt á hæð, gæti orðtakið „fjall Drottins“ (Sálmarnir 24:3) vísað til musterisins eða návistar Guðs. Hvernig eykur þetta skilning ykkar á Sálmunum 24? Hver er merking þess að hafa „flekklausar hendur og hreint hjarta“? (vers 4). Hvað fleira lærið þið um hús Drottins við lestur Sálmanna 26–27?

Stundum gætum við misst móðinn við að heyra að við þurfum að vera hrein til að komast í návist Guðs. Hvað sem öllu líður, þá glímum við öll við eitthvað og ekkert okkar er fullkomið. Hvaða von finnið þið í boðskap öldungs Davids A. Bednar, „Flekklausar hendur og hreint hjarta“? (aðalráðstefna, október 2007). Hvernig getið þið notað boðskap hans til að hjálpa einhverjum sem finnst yfirþyrmandi að hugsa um það að vera fullkominn? Íhugið hvernig þið getið notið hjálpar frelsarans í þeirri viðleitni ykkar að hafa „flekklausar hendur og hreint hjarta“.

Sjá einnig Bradley R. Wilcox, „Verðugleiki er ekki óaðfinnanleiki,“ aðalráðstefna, október 2021.

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Sálmarnir 23; 27–28; 3246

Drottinn býður mér frið, styrk og leiðsögn.

  • Íhugið að rita: Drottinn er …. Bjóðið börnum ykkar að reyna að ljúka þessari setningu með því að nota ritningarvers eins og þessi: Sálmarnir 23:1; 27:1; 28:1; 28:7; 32:7; 46:2. Hvað kenna þessi vers okkur um það hvernig Drottinn getur hjálpað okkur?

  • Þið gætuð rætt við börn ykkar um hvað lamb þarf til að vera öruggt og heilbrigt. Þegar þið síðan lesið saman Sálmana 23, hjálpið þá börnum ykkar að bera saman það sem hirðir gerir fyrir lamb og það sem Jesús gerir fyrir okkur. Hvað þurfum við til að vera andlega örugg og heilbrigð? Syngið saman söng sem gæti veitt þeim hugmyndir, t.d. „Í faðmi frelsarans“ (Barnasöngbókin, 42).

Concepción–musterið, Síle

Concepción–musterið, Síle

Sálmarnir 24:3–4

Til að komast í musterið þurfum við að hafa „flekklausar hendur og hreint hjarta“.

  • Þegar þið lesið saman Sálmana 24:3 gætu börn ykkar leitað orða sem minna þau á musterið. Þau gætu líka skoðað mynd af musteri. Þið gætuð síðan lesið saman vers 4 til að læra hverjir fá inngöngu í musterið. Þið gætuð rætt hvernig hendur óhreinkast og hvernig við þvoum þær. Hvernig óhreinkumst við andlega? Hvernig hjálpar frelsarinn okkur að hreinsast andlega?

Sálmarnir 30:6

Jesús Kristur getur breytt sorg í gleði.

  • Ef þið eigið ung börn, gætuð þið boðið þeim að látast gráta meðan þið lesið í Sálmunum 30:6: „Að kveldi gistir oss grátur.“ Biðjið þau síðan að tjá gleði er þið lesið: „En gleðisöngur að morgni.“ Endurtakið þetta orðtak nokkrum sinnum.

  • Sýnið mynd af frelsaranum og segið börnum ykkar hvað hann hefur gert fyrir ykkur sem veitir ykkur gleði. Þið gætuð líka gefið hverju barni tækifæri til að halda í myndina og segja frá því sem Jesús hefur gert sem veitir þeim gleði.

Sálmarnir 46:11

„Hættið og játið að ég er Guð.“

  • Hjálpið börnum ykkar að læra utanbókar fyrstu línuna í Sálmunum 46:11: „Hættið og játið að ég er Guð.“ Hvað merkir orðtakið „að hætta“? Þið gætuð ef til vill varið tíma í að æfa ykkur að vera kyrr. Þið gætuð líka miðlað hvert öðru upplifunum þar sem það styrkti samband ykkar við Guð að vera kyrr. Hjálpið börnum ykkar að hugsa um stundir dagsins þegar þau geta verið kyrr til að finna nálægð við himneskan föður.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

frelsarinn með lampa í hendi

Góði hirðirinn, eftir Evu Timothy

Verkefnasíða Barnafélagsins: Drottinn er minn hirðir