„3.–9. ágúst. Esterarbók: ‚[Þú ert komin] vegna þessara atburða‘: Esterarbók,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„3.–9. ágúst. Esterarbók: ‚[Þú ert komin] vegna þessara atburða‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Ester drottning bjargar lýð Jehóva, eftir Sam Lawlor
3.–9. ágúst: „[Þú ert komin] vegna þessara atburða“
Esterarbók
Margir atburðir í Esterarbók gætu virst sem heppni eða tilviljun. Hvernig útskýrið þið annars hvernig munaðarlaus gyðingastúlka varð drottning Persíu á réttum tíma, til að bjarga þjóð sinni frá blóðbaði? Hverjar eru líkurnar á því að Mordekaí frændi Esterar hafi heyrt út undan sér um samsæri að myrða konunginn? Voru þetta tilviljanir eða hluti af guðlegri áætlun? Öldungur Ronald A. Rasband útskýrði: „Það sem kann að virðast tilviljunarkennt, er í raun undir handleiðslu kærleiksríks föður á himnum. … Drottinn er í hinu smæsta í lífi okkar“ („Að guðlegri skipan,“ aðalráðstefna, október 2017). Við berum ekki alltaf kennsl á áhrif Drottins á hið „smæsta“. Við lærum þó af reynslu Esterar að hann getur leitt okkur og undirbúið „vegna þessara atburða“ (Esterarbók 4:14) til að verða verkfæri í höndum hans við að framfylgja tilgangi hans.
Til að fá yfirlit yfir Esterarbók, sjá þá „Ester“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Esterarbók
Drottinn setur mig í aðstæður þar sem ég get blessað aðra.
Dieter F. Uchtdorf forseti kenndi að sérhvert okkar „standi á sérstökum stað og hafi mikilvægt verkefni sem einungis [við] getum leyst af hendi. … Drottinn hefur falið ykkur þessa ábyrgð af ákveðinni ástæðu. Það kann að vera fólk eða hjörtu sem einungis þú getur náð til og snert. Ef til vill gat enginn annar gert það á nákvæmlega sama hátt“ („Lyftið þar sem þið standið,“ aðalráðstefna, október 2008).
Þegar þið lesið frásögnina um Ester, íhugið þá hvernig þessi orð eiga við um hana. Gætið að því hvernig Drottinn gerði henni mögulegt að bjarga Gyðingum (sjá t.d. Esterarbók 2:21–23; 3:10–14; 4:14–16). Ígrundið síðan hvernig hann hefur veitt ykkur tækifæri til að blessa aðra. Hvaða aðstæður eða sambönd finnst ykkur hann hafa leitt ykkur í „vegna þessara atburða“? (Esterarbók 4:14). Ef þið hafið patríarkablessun, íhugið þá að lesa hana til að læra meira um það verk sem Drottinn ætlar ykkur að vinna. Hvað getið þið gert til að vinna þetta verk?
Sjá einnig „For Such a Time as This“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
For Such a Time as This
Við lærum meira með því að gera en með því að hlusta. Hins vegar ráðlagði öldungur David A. Bednar kennurum: „Tilgangur okkar ætti ekki að vera: ‚Hvað segi ég þeim?‘ Þess í stað eru spurningarnar sem við ættum að spyrja okkur: ‚Hvað get ég boðið þeim að gera? Hvaða innblásnu spurninga get ég spurt, ef þau eru tilbúin að svara, sem geta verið upphafið að því að hafa heilagan anda í lífi þeirra?‘“ (í Kenna að hætti frelsarans, 25). Ef þið eruð að kenna fjölskyldu ykkar eða námsbekk um Ester, hvað gætuð þið beðið þau að gera til að hjálpa þeim að læra?
„Er Haman sá að Mordekaí féll hvorki á kné … varð hann afar reiður“ (Esterarbók 3:5).
Esterarbók 3; 5:9–14; 7
Dramb og reiði geta valdið áföllum.
Í Esterarbók lærum við um trúfesti Esterar og Mordekaí, en einnig um dramb og reiði Hamans. Þegar þið lesið Esterarbók 3; 5:9–14, gætið þá að tilfinningum, orðum og verkum Hamans. Hvað segja þau um hann og ásetning hans? Hvaða afleiðingum stóð hann frammi fyrir? (sjá Esterarbók 7). Að lesa um Haman gæti fengið ykkur til að íhuga af hverju tilfinningar ykkar og verk stjórnast. Eruð þið hvött til að gera einhverjar breytingar? Hvernig getið þið snúið ykkur til himnesks föður eftir liðsinni?
Sjá einnig Orðskviðirnir 16:32; Alma 5:28.
Esterarbók 3–4; 5:2–3; 8:11–12
Með því að fasta sýni ég að ég set traust mitt á Drottin.
Gætið að ástæðu þess að Ester og hinir Gyðingarnir ákváðu að fasta (sjá Esterarbók 3:13; 4:1–3, 10–17). Hvernig varð fastan þeim til blessunar? (sjá Esterarbók 5:2–3; 8:11–12). Af hverju býður Drottinn okkur að fasta? (sjá Leiðarvísi að ritningunum, „Fasta,“ Gospel Library). Íhugið hvernig þið getið gert föstu að aukinni blessun í lífi ykkar.
Sjá einnig Jesaja 58:6–12; „Fasting: Young Single Adult Ward, Amanda“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
Fasting: Young Single Adult Ward, Amanda
Esterarbók 3:1–11; 4:10–17; 5:1–4; 9:17–19
Það krefst oft mikils hugrekkis að gera hið rétta.
Mordekaí og Ester settu sig í lífshættu með því að koma trú sinni og fólki sínu til varnar. Val okkar getur haft vægari afleiðingar, en það getur þó krafist hugrekkis að gera það sem rétt er. Hvað lærum við í Esterarbók 3:1–4; 4:10–17 um að hafa hugrekki til að gera það sem rétt er? Gætið að hinum ólíku afleiðingum sem Mordekaí og Ester upplifðu eftir að hafa sýnt hugrekki (sjá Esterarbók 3:5–11; 5:1–4). Hvað þurftu Ester og Mordekaí að vita um Guð til að geta tekið þessar ákvarðanir?
Hugsið um aðstæður þar sem þið þurfið hugrekki til að koma því til varnar sem rétt er. Hvað lærið þið af Ester og Mordekaí sem getur hjálpað ykkur að finna hugrekki í Drottni?
Hugrekki Esterar leiddi til „fagnaðar– og veisludags“ (sjá Esterarbók 9:17–19). Hvernig hefur kristilegt hugrekki veitt ykkur „fagnaðar– og veisludag“?
Sjá einnig „Courage,“ „Dare to Stand Alone“ (myndbönd), Gospel Library; „Sannir í trúnni,“ Sálmar, nr. 109.
Courage
Dare to Stand Alone
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Esterarbók 2:5–7
Ég get þjónað fjölskyldu minni.
-
Þið gætuð fundið fyrir innblæstri til að nota Esterarbók 2:7 til að kenna börnum ykkar að hjálpa fjölskyldumeðlimum sem þess þarfnast, eins og Mordekaí gerði fyrir Ester. Þið gætuð lesið versið saman eða gert samantekt á því með eigin orðum. Þið og börn ykkar gætuð síðan hugsað um fjölskyldumeðlimi sem gætu þarfnast hjálpar ykkar. Gerið áætlun um að hjálpa þeim.
Esterarbók 3:1–11; 4:10–17
Drottinn getur hjálpað mér að sýna hugrekki.
-
Fordæmi Esterar og Mordekaí getur hjálpað börnum ykkar að skilja að hugrekki þýðir að gera það sem rétt er, jafnvel þegar við erum óttaslegin. Íhugið að skrifa orðin Mordekaí var hugrakkur þegar hann … og Ester var hugrökk þegar hún …. Þegar þið lærið söguna um Ester saman, gætu börn ykkar bent á leiðir til að ljúka setningunum. Þið gætuð lesið Esterarbók 3:1–11; 4:10–17 eða „Ester drottning“ (í Sögur úr Gamla testamentinu, 166–70) eða skoðað myndirnar í þessum lexíudrögum. Skrifið síðan Ég sýni hugrekki með því að … og bjóðið börnum ykkar að skrá þá hluti sem himneskur faðir vill að þau geri sem krefjast hugrekkis. Söngur um hugrekki, t.d. „Gjör allt þitt rétt“ (Barnasöngbókin, 80), gæti komið að gagni.
2:45Queen Esther
-
Þið gætuð líka lært um tilvik þegar Jesús Kristur var hugrakkur – t.d. þegar hann þjáðist fyrir syndir okkar í Getsemane og á krossinum (sjá Matteus 26:36–39; 27:33–35). Biðjið börn ykkar að segja frá tilvikum þegar þau voru hugrökk og miðlið líka eigin reynslu.
Esterarbók 4:1–3, 10–17
Fastan færir blessanir Drottins.
-
Lestur Esterarbókar 4:1–3, 10–17 gæti hjálpað ykkur að kenna börnum ykkar um föstu. Af hverju föstuðu Ester og Gyðingarnir? Segið börnum ykkar frá ástæðu þess að þið fastið. Þið gætuð líka spurt þau að því hvernig þau myndu útskýra föstu fyrir vini sem hefur aldrei áður fastað. Hvernig gætum við hjálpað vinum okkar að skilja blessanirnar sem hljótast af föstu?
-
Hvetjið börn ykkar til að hugsa um eitthvað sem þau gætu þurft hjálp Drottins við. Leggið til að þau geri þann hluta föstunnar á næsta sunnudegi.
Ester gat bjargað fólki Drottins vegna hugrekkis síns.
Ester 4:14
Ég get verið verkfæri í höndum Guðs.
-
Hjálpið börnum ykkar að skilja að þegar Ester var hrædd, hvatti Mordekaí hana með því að útskýra að Drottinn hefði hjálpað henni að verða drottning „vegna þessara atburða“ (Esterarbók 4:14). Hvað átti Mordekaí við með þessu? Ræðið hvert við annað um það hvernig Ester var verkfæri Drottins. Hvernig getum við verið verkfæri Drottins?
-
Hvernig gætuð þið hjálpað börnum ykkar að skilja hvað verkfæri er? Ef til vill gætuð þið boðið einhverjum að spila lag á hljóðfæri eða sýnt mynd af einhverjum að nota verkfæri. Þið gætuð síðan rætt hvað það þýðir að vera verkfæri í höndum Guðs.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.