Kom, fylg mér
31. ágúst–6. september. „Allt, sem andardrátt hefur, lofi Drottin“: Sálmarnir 102–103; 110; 116–119; 127–128; 135–139; 146–150


„31. ágúst–6. september. ‚Allt, sem andardrátt hefur, lofi Drottin‘“: Sálmarnir 102–103; 110; 116–119; 127–128; 135–139; 146–150,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„31. ágúst–6. september. ‚Allt, sem andardrátt hefur, lofi Drottin‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Jesús beygir sig til að liðsinna konu

Lotningarfull endurkoma, eftir Kelsy og Jesse Lightweave

31. ágúst–6. september: „Allt, sem andardrátt hefur, lofi Drottin“

Sálmarnir 102–103; 110; 116–119; 127–128; 135–139; 146–150

Hið hefðbundna gyðinglega nafn Sálmanna er hebreska hugtakið Tehillim, sem merkir „lofgjörð“. Það er skylt upphrópuninni hallelúja (sem merkir „lofið Jehóva“ eða „lofið Drottin“). Ef þið ættuð að velja eitt orð til að lýsa megin boðskap Sálmanna, væri orðið lofgjörð góður kostur. Sumir sálmanna hafa að geyma beint boð um að „lofa Drottin“ (sjá einkum Sálmarnir 146–50) og allir geta þeir innblásið tilbeiðslu og lofgjörð. Sálmarnir fá okkur til að viðurkenna mátt Drottins, miskunn hans og dásemdarverk hans. Við getum aldrei endurgoldið honum fyrir nokkuð af þessu, en við getum lofað hann. Lofgjörðin getur verið mismunandi eftir fólki – hún gæti falið í sér söng, bænir eða vitnisburðargjöf. Hún vekur oft dýpri hollustu við Drottin og staðfestu við að fylgja kenningum hans. Hver sem merking orðanna „lofið Drottin“ er fyrir ykkur, getið þið fundið innblástur í ríkari mæli til að lofa Drottin er þið lesið og ígrundið Sálmana.

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Sálmarnir 102–3116

Drottinn getur huggað mig í þjáningum mínum.

Gætið að því hvernig Sálmarnir 102:2–12 lýsa tilfinningum kvíða og einangrunar, sem oft vakna á tíma áskorana. Kannski hafið þið eða aðrir sem þið þekkið upplifað slíkar tilfinningar. Þegar þið lesið Sálmana 102:13–29; 103116, gætið þá að orðtökum sem veita ykkur traust til að „ákalla nafn Drottins“ í þrengingum ykkar (Sálmarnir 116:13). Þið gætuð viljað merkja við, leggja á minnið eða miðla öðrum orðtökum sem veita ykkur von á hann.

Sjá einnig Jesaja 25:8; Hebreabréfið 2:17–18; Alma 7:11–13; Camille N. Johnson, „Kristur er líkn,“ aðalráðstefna, apríl 2023; „Where Can I Turn for Peace?“ (Hymns, nr. 129).

Jesús hjálpar sjúkum manni

Carl Heinrich Bloch (1834–1890), Kristur læknar hina sjúku við Betesda, 1883, olía á striga, 100 3/4 × 125 1/2 tommur. Listasafn Brigham Young–háskóla, keypt með fjármagni frá Jack R. og Mary Lois Wheatley, 2001.

Sálmarnir 110118

Jesús Kristur uppfyllti spádóma úr Sálmunum.

Sálmarnir hafa að geyma ritningarvers sem fjalla um líf og þjónustu Jesú Krists. Hér eru nokkur dæmi:

  • Sálmarnir 110:1–4 (sjá Matteus 22:41–45; Hebreabréfið 5:4–10; 6:20)

  • Sálmarnir 118:22 (sjá Matteus 21:42; Postulasagan 4:10–11; 1. Pétursbréf 2:7)

  • Sálmarnir 118:25–26 (sjá Matteus 21:9)

Hvað kenna þessi vers ykkur um Jesú Krist? Af hverju er mikilvægt að vita þetta um hann?

Sálmarnir 119

trúarskólatákn
Orð Guðs heldur mér á vegi hans.

Í Sálmunum 119 eru mörg orðtök sem líkja lífi okkar við ferð aftur til himnesks föður. Þegar þið lesið, gætið þá að orðum eins og „ganga“, „vegur“, „skref“, „fætur“ og „villast“. Íhugið lífsferð ykkar sjálfra – hvert þið hafið farið, hvar þið eruð núna og hvert ferð ykkar er heitið. Hvað lærið þið af þessum versum um ferð ykkar aftur heim? Hvað hafið þið lært af því að fylgjast með vegferð annarra? Hverju hefur Guð séð ykkur fyrir til að hjálpa ykkur að vera á vegi hans, samkvæmt þessu sálmi?

Hugsið um það þegar það að fylgja vegi eða korti hjálpaði ykkur að ferðast farsællega. Hvað kennir sú reynsla ykkur um að fylgja vegi Guðs?

Í mörgum öðrum ritningum tala Drottinn og spámenn hans um veg. Hér að neðan eru nokkur dæmi. Íhugið að leita í þessum versum og skrifa niður eða miðla öðrum því sem þið lærið.

Ritningarvers

Það sem ég læri um veginn til Guðs

Ritningarvers

Orðskviðirnir 4:11–19

Ritningarvers

Matteus 7:13–14

Ritningarvers

1. Nefí 8:20–28

Ritningarvers

2. Nefí 31:17–21

Ritningarvers

Alma 7:9, 19–20

Ritningarvers

Kenning og sáttmálar 25:2

Hvernig getur þessi sannleikur hjálpað ykkur að vera á vegi Guðs?

Hvað fleira getið þið lært af eftirfarandi leiðsögn Russells M. Nelson forseta?

„Ef ferð okkar í þessu lífi á að verða árangursrík, verðum við að fylgja guðlegri leiðsögn. Drottinn sagði: ,Beinið öllum hugsunum yðar til mín. Efist ekki, óttist ekki‘ [Kenning og sáttmálar 6:36]. Og sálmaskáldið sagði: ‚Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum‘ [Sálmarnir 119:105]. …

Á lífsferð okkar mætum við mörgum hindrunum og gerum einnig mistök. Leiðsögn ritninganna hjálpar okkur að sjá villu okkar og gera nauðsynlegar leiðréttingar. Við höldum ekki lengur í ranga átt. Við skoðum vandlega hið andlega vegakort. Síðan höldum við áfram með þá iðrun og yfirbót sem þarf til að vera á hinum ,krappa og þrönga vegi, sem liggur til eilífs lífs’ [2. Nefí 31:18]“ („Lifa eftir leiðsögn ritninganna,“ aðalráðstefna, október 2000).

Sjá einnig Dieter F. Uchtdorf, „Glataði sonurinn og vegurinn sem liggur heim,“ aðalráðstefna, október 2023.

Sálmarnir 134–36

Drottinn er máttugri en nokkurt skurðgoð.

Gætið að því hvers vegna Sálmarnir 135:15–18 segja að óviturlegt sé að reiða sig á falsguði. Hverju gætuð þið látið freistast til að treysta á sem svipar til skurðgoða? Þið gætuð skráð það sem Drottinn getur gert, eins og höfundar Sálmanna gerðu í Sálmunum 134–36. Hvaða máttuga hluti hefur hann gert fyrir ykkur?

Sálmarnir 139

Drottinn þekkir hjarta mitt.

Hvað finnið þið í Sálmunum 139 sem hjálpar ykkur að skilja að Drottinn er meðvitaður um ykkur – hugsanir ykkar og gjörðir, styrkleika og veikleika? Hvernig hefur þessi sannleikur áhrif á líf ykkar og ákvarðanir?

Sálmarnir 146–50

„[Lofa þú Drottin].“

Þegar þið lesið þessa síðustu lofgjörðarsálma, íhugið þá ástæður ykkar fyrir því að lofa Drottin. Af hverju er mikilvægt að lofa hann? Hvernig getið þið lofað hann á ýmsa vegu?

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Sálmarnir 102:2–3

Drottinn huggar mig og veitir mér von.

  • Þið eða eitt barna ykkar gætuð lesið Sálmana 102:2–3 og gætt að því hvernig Drottinn liðsinnir okkur í erfiðleikum okkar. Hvernig getum við fundið hjálp hans? Þið gætuð líka miðlað hvert öðru tilvikum þegar þið þörfnuðust hjálpar og funduð Guð heyra bænir ykkar.

Sálmarnir 119:105

Orð Guðs er eins og ljós.

  • Börn ykkar gætu haft gaman af því að tala um hvernig það er að vera í myrkri. Þau gætu líka þess í stað rætt það sem er erfitt að gera í myrkri. Þið gætuð boðið þeim að gera eitthvað með augun lokuð, eins og að teikna mynd. Hvað lærum við af Sálmunum 119:105 um ljós og orð Guðs?

  • Gætið að einhverju því sem himneskur faðir hefur gefið okkur til hjálpar að vera á vegi hans, í eftirfarandi versum: Sálmarnir 119:47–48; 119:105; 1. Nefí 11:25; 2. Nefí 31:20. Hvað getum við gert til að vera á vegi Guðs?

  • Börn ykkar gætu notið þess að skoða myndir af því sem tilgreint er í Sálmunum 119:105. Þau gætu raðað myndunum í rétta röð þegar þau lesa versið. Þið gætuð líka sungið saman söng sem tengist efninu, svo sem „Kenn mér hans ljósið“ (Barnasöngbókin, 70) eða „I Will Walk with Jesus“ (Gospel Library).

faðir les fyrir barn

Sálmarnir 139:1–3, 23–24

Himneskur faðir og Jesús Kristur þekkja og elska mig.

  • Hugleiðið að skrá sumt af því sem þið vitið um hvert barna ykkar. Þegar þið lesið það, eitt í einu, biðjið þá börnin að geta sér til um hverjum þið eruð að lýsa. Eftir að hafa lesið saman Sálmana 139:1–3 , gætuð þið skráð það sem himneskur faðir og Jesús vita um okkur.

  • Skrifið orðin í Sálmunum 139:23–24 á blað eða töflu. Bjóðið börnum ykkar að undirstrika orð sem lýsa því sem Guð getur gert fyrir okkur. Hvers vegna ættum við að vilja að Guð gerði þessa hluti?

Sálmarnir 146:1, 5–9

Ég get lofað Drottin.

  • Börn ykkar gætu ef til vill sagt frá tilvikum þar sem einhver hrósaði þeim eða sagði þau hafa staðið sig vel. Miðlið einhverju af því góða í Sálmunum 146:6–9 sem Drottinn hefur gert (hjálpið börnum ykkar að skilja orð sem þau þekkja ekki). Bjóðið börnum ykkar að tala um eitthvað annað sem hann gerir fyrir okkur. Hvernig getum við lofað hann fyrir slíkt?

Lærið heima; miðlið öðrum. Russell M. Nelson forseti hefur kennt okkur að heimilið ætti vera „miðstöð trúarfræðslu“ („Verum fyrirmyndar Síðari daga heilagir,“ aðalráðstefna, október 2018). Hvað getið þið gert í vikunni til að dýpka einkanám ykkar eða fjölskyldunám ykkar á Sálmunum? Eftir nám ykkar, íhugið þá að miðla öðrum því sem þið lærðuð og skynjuðuð. Þið gætuð gert það í samræðum, gegnum textaskilaboð, samfélagsmiðla eða í kirkju.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.