„21.–27. september. ‚Undarlega og undursamlega‘: Jesaja 13–14; 22; 24–30; 35,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„21.–27. september. ‚Undarlega og undursamlega‘,“ Kom, fylg mér: 2026
Lundurinn helgi, eftir Brent Borup
21.–27. september: „Undarlega og undursamlega“
Jesaja 13–14; 22; 24–30; 35
Eitt atriði sem Drottinn býður spámönnum að gera, er að vara við afleiðingum syndar. Fyrir spámenn Gamla testamentisins fólst þetta oft í því að segja stjórnendum máttugra ríkja að þeir yrðu að iðrast. Það var áhættusamt verk, en Jesaja var óttalaus og aðvaranir hans til ríkja hans tíma – þar með talið Ísraels, Júda og aðliggjandi þjóða – voru áræðnar (sjá Jesaja 13–23).
Jesaja flutti líka vonarboðskap. Þótt svo að hin fyrirspáða tortíming hefði fallið yfir þessi ríki, þá sá Jesaja líka mögulega endurreisn og endurnýjun. Drottinn myndi bjóða fólki sínu að koma aftur til sín. Hann myndi gera „glóandi sand … að tjörn og þyrsta jörð að uppsprettum“ (Jesaja 35:7). Hann myndi gera „undarlega og undursamlega“ (Jesaja 29:14) hluti og endurreisa Ísrael blessanirnar sem hann hafði lofað honum. Hvorki Jesaja, né nokkur sem þá var uppi, lifði til að verða vitni að þeim undursamlegu hlutum. Við sjáum þá þó í dag. Við erum í raun hluti af þeim.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jesaja 13:1–11, 19–22; 14:1–20
Hroki og veraldarhyggja munu bregðast.
Á tíma Jesaja var Babýlon máttugt ríki með máttugum þjóðhöfðingja. Babýlon heyrir nú sögunni til. Af hverju er boðskapur Jesaja til Babýlonar í Jesaja 13–14 þá mikilvægur fyrir okkar tíma? Af því að Babýlon stendur fyrir hroka, græðgi og synd, það sem enn umlykur okkur í dag. Íhugið þessa samlíkingu við lestur Jesaja 13:1–11, 19–22; 14:1–20. Þið gætuð íhugað spurningar sem þessar:
-
Hvaða samlíkingar sjáið þið í drambi konungsins í Babýlon og drambi Satans? (sjá Jesaja 14:4–20; HDP Móse 4:1–4). Hvaða aðvaranir finnst ykkur eiga við um ykkur í þessum versum?
-
Hvernig veitir frelsarinn ykkur „hvíld frá þjáningu … og skelfingu“? (Jesaja 14:3).
„Hann [mun] afmá dauðann að eilífu“ (Jesaja 25:8).
Jesaja 22:22–23; 24:21–23; 25:6–8; 26:19; 28:16
Jesús Kristur er hinn fyrirheitni Messías.
Kenningar Jesaja vísa oft til hlutverks Jesú Krists, þar með talið friðþægingarfórnar, upprisu og síðari komu hans. Hvaða hugsanir vakna hjá ykkur sem tengjast hlutverki hans við lestur þessara versa: Jesaja 22:22–23; 24:21–23; 25:6–8; 26:19; 28:16? Hvaða fleiri ritningarhluta finnið þið sem vekja hugsanir um frelsarann?
Veitið nemendum tækifæri til að gefa vitnisburð um Jesú Krist. „Að vera kennarar fagnaðarerindis Jesú Krists, þýðir að við hjálpum öðrum að skilja og treysta á kenningar hans, kraft og kærleika“ (Kenna að hætti frelsarans, 8). Ein einföld leið til að gera það í hvert sinn sem þið kennið er að spyrja spurningar eins og: „Hvað funduð þið í ritningunum í þessari viku sem kenndi ykkur eitthvað um frelsarann?“ Látið nemendur síðan miðla upplifunum sínum og efla trú hvers annars.
Jesaja 24:1–12; 28:1–8; 29:7–13; 30:8–14
Að yfirgefa Drottin veldur andlegri hættu.
Í miskunn sinni sendi Drottinn Jesaja til að aðvara sáttmálslýðinn um að hann væri að villast frá sér. Athugið hvort þið getið fundið hin andlegu aðvörunartákn um þetta í Jesaja 24:5; 29:13; 30:8–12. Hvers vegna eru þessi viðhorf og athafnir andlega hættuleg?
Jesaja notaði minnisstæðar samlíkingar til að vara við afleiðingum þess að yfirgefa Drottin. Þegar þið kynnið ykkur þær, spyrjið ykkur þá sjálf hvernig það sé að yfirgefa Drottin:
-
Tóm og eydd jörð (Jesaja 24:1–12).
-
Ofdrykkja (Jesaja 28:7–8).
-
Hungur og þorsti (Jesaja 29:7–10).
-
Brotinn múr eða brotið leirker (Jesaja 30:13–14).
Af hverju er ykkur mikilvægt fyrir ykkur að vera nálægt Drottni?
Jesaja 29; 30:18–26; 35
Drottinn getur endurreist það sem er glatað eða brotið.
Hafið þið einhvern tíma glatað einhverju sem þið hélduð að þið mynduð aldrei aftur finna? Eða kannski brotið eitthvað og höfðuð áhyggjur af að ekki yrði hægt að laga það. Þegar við yfirgefum Drottin, vill Satan fá okkur til að halda að við getum aldrei snúið aftur til baka eða hlotið lækningu. Jesaja greinir þó frá þeim undursamlegu hlutum sem Drottinn mun gera til að hjálpa okkur að koma til baka. Hvað lærið þið af Jesaja 29:13–24; 30:18–26;35 um Drottin, elsku hans og mátt? Þið gætuð ef til vill fundið orðtak í þessum versum sem veitir ykkur von þegar þið þarfnist lækningar. Þið gætuð líka skoðað boðskap systur Amy A. Wright, „Kristur læknar hið brotna“ (aðalráðstefna, apríl 2022).
Eitt sem Drottinn gerir til að staðfesta kraft sinn og miskunn er með endurreisn fagnaðarerindis síns. Í Jesaja 29 eru nokkrir ritningarhlutar sem geyma hliðstæður við atburði endurreisnarinnar. Dæmi:
-
Berið Jesaja 29:11–12 saman við 2. Nefí 27:6–26 og Joseph Smith – Sögu 1:63–65.
-
Berið Jesaja 29:13–14 saman við Kenningu og sáttmála 4 og Joseph Smith – Sögu 1:17–19.
-
Berið saman Jesaja 29:18–24 og titilsíðu Mormónsbókar.
Af hverju eru „undarleg“ og „undursamleg“ (Jesaja 29:14) góð orð til að lýsa endurreisn fagnaðarerindis Drottins, að ykkar mati? Hvernig getið þið hjálpað við uppfyllingu spádómanna um endurreisnina? Leitið hugmynda í boðskap öldungs Gerrit W. Gong, „Öllum þjóðum, kynkvíslum og tungum“ (aðalráðstefna, október 2020).
Sjá einnig „Endurreisn fyllingar fagnaðarerindis Jesú Krists: Tvö hundruð ára afmælisyfirlýsing til heimsins“ (Gospel Library); „Sjá, dagur rís,“ Sálmar, nr 1.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jesaja 14:3; 25:8–9; 28:16
Jesús Kristur getur frelsað mig frá synd og dauða.
-
Hvernig munið þið hjálpa börnum ykkar að bera kennsl á frelsarann í ritmáli Jesaja? Þið gætuð hjálpað þeim að finna orðtök sem minna þau á hann í Jesaja 14:3; 25:8; eða 28:16. Þeir gætu líka tengt þessi vers í Jesaja við önnur vers sem kenna um frelsarann, t.d. Matteus 11:28–30; 1. Korintubréf 15:53–57; Helaman 5:12. Hvaða miklu hluti hefur Guð gert fyrir okkur?
-
Eftir að hafa lesið saman Jesaja 25:8–9, gætuð þið skoðað myndir af frelsaranum í Getsemane, á krossinum og eftir upprisu hans. Látið börn ykkar ræða það sem er að gerast á myndunum og hvers vegna þau elska Jesú og „gleðjast yfir hjálp hans“ (vers 9).
-
Þið gætuð valið að segja börnum ykkar frá sorginni sem þið upplifðuð þegar einhver andaðist sem ykkur þótti vænt um. Berið vitni um huggunina sem þið hljótið vegna Jesú Krists. Börn ykkar gætu ef til vill teiknað grátandi andlit og síðan strokað tárin út er þið lesið saman Jesaja 25:8.
Verði þinn vilji, eftir Ken Spencer
Jesaja 25:4–6
Jesús veitir mér „skjól í skúrum“.
-
Hafið þið og börn ykkar einhvern tíma upplifað blessun þess að vera örugg í stormi eða frá hita sólar? Hafið þið kannski notið góðrar máltíðar þegar þið voruð svöng? Ræðið um þá reynslu við lestur Jesaja 25:4–6. Hvernig er Jesús eins og þessir hlutir?
Jesaja 29:11–18, 24
Endurreisn fagnaðarerindisins er „undursamlegt“ verk.
-
Þegar þið og börn ykkar lesið Jesaja 29:14, miðlið þeim þá öðrum orðum sem hafa sömu merkingu og „undarlegt“ og „undursamlegt“. Látið þau hjálpa ykkur að finna hluti eða myndir sem tákna sum undursamleg verk Drottins á síðari dögum. Það gæti verið eintak af Mormónsbók, mynd af musteri eða mynd af Fyrstu sýninni (ein mynd er fremst í þessum lexíudrögum). Börn ykkar gætu síðan valið einhvern hlut og sagt frá því hvers vegna hann er þeim undursamlegur.
-
Söngur um endurreisn fagnaðarerindisins gæti fallið vel að Jesaja 29, t.d. „Vordag fagran“ (Barnasöngbókin, 57). Ef til vill gæti persónuleg upplifun hjálpað börnunum að skilja hvað endurreisn þýðir. Dæmi: Þið og börn ykkar gætuð rætt um eitthvað sem þið týnduð og hvernig þið funduð það. Hjálpið börnum ykkar að líkja þessu við endurreisn fagnaðarerindisins. Af hverju þörfnumst við endurreisnarinnar, samkvæmt Jesaja 29:13–15? Hvaða undursamlegt verk er Drottinn að gera til að endurreisa fagnaðarerindi sitt? (sjá verkefnasíðu þessarar viku).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.