„28. september–4. október. ‚Huggið lýð minn‘: Jesaja 40–49,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„28. september–4. október. ‚Huggið lýð minn‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Lækning blinda mannsins, eftir Carl Heinrich Bloch, í Þjóðarsögusafni Friðriksborgar
28. september–4. október: „Huggið lýð minn“
Jesaja 40–49
„Huggið“ er fyrsta orðið í kafla 40 í Jesaja. Það markar ólíka nálgun, ólíka áherslu í boðskap spámannsins. Fyrri ritverk Jesaja vöruðu Ísrael og Júda við tortímingu og ánauð sem kæmi yfir þá vegna synda þeirra. Þessum síðari spádómum var ætlað að hughreysta Gyðinga í yfir 150 ókomin ár – eftir að Jerúsalem og musterinu var tortímt og fólkið var hertekið af Babýlon. Þessir spádómar ná þó jafnvel enn lengra í framtíðina en til hinna sigruðu og vonlausu Ísraelsmanna. Þeir eiga við um okkur, sem upplifum okkur stundum líka sigruð, vonlaus og jafnvel týnd.
Boðskapur Jesaja til fólks síns og okkar er einfaldur: „Óttast þú ekki“ (Jesaja 43:1). Ekki er allt glatað. Drottinn hefur ekki gleymt ykkur og máttur hans er sterkari hverjum þeim aðstæðum sem við höfum ekki stjórn á. Er ekki Drottinn sem „skapaði himininn“ (Jesaja 42:5) máttugri en Babýlon, en syndin eða hvaðeina sem þjakar ykkur? „Hverf aftur til mín,“ sárbiður hann, „því að ég hef endurleyst þig“ (Jesaja 44:22). Hann getur læknað, endurreist, styrkt, fyrirgefið og huggað – hvers sem þið þarfnist í ykkar aðstæðum til að hljóta endurlausn.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jesaja 40–49
Jesús Kristur getur huggað mig og veitt mér von.
Þegar Ísraelsmenn voru í ánauð í Babýlon, gætu margir hafa velt fyrir sér hvort þeir hefðu endanlega glatað stöðu sinni sem hin útvaldi sáttmálslýður Guðs. Þegar þið lesið Jesaja 40–49, gætið þá að orðtökum sem gætu hafa veitt von og huggun. Íhugið og skráið hvað Drottinn gæti verið að segja við ykkur í hverju þessara versa. Hér eru nokkur sem þið gætuð byrjað á:
-
40:11, 29–31:
-
41:10–13, 17–18:
-
42:6–7:
-
43:1–7, 25:
-
44:1–4, 21–24:
-
46:3–4:
-
49:7–16:
Hvað finnst ykkur að Drottinn vilji að þið vitið um hann?
Þið gætuð veitt því athygli að sálmurinn „Vor Guð hefur spámönnum gefið sitt mál“ (Sálmar, nr. 21) hefur skírskotun til orða Jesaja í Jesaja 41:10; 43:2–5; 46:4. Íhugið að syngja eða hlusta á þennan sálm og gæta að hliðstæðum í texta hans og þessum versum í Jesaja. Hvernig hefur Drottinn uppfyllt loforðin í þessum versum í lífi ykkar?
Sjá einnig Patrick Kearon, „Hann er upprisinn og vængir hans færa lækningu: Við getum verið meira en sigurvegarar,“ aðalráðstefna, apríl 2022.
Notið fleiri ritningarvers. Stundum getum við skilið Gamla testamentið betur með því að styrkja námið með versum í Mormónsbók. Dæmi: Spámenn Mormónsbókar, Nefí og Jakob, höfðu aðgang að ritum Jesaja á látúnstöflunum (sjá 1. Nefí 19:22–23) og þeir notuðu þessa spádóma til að kenna um frelsarann. Til að komast að því hvernig Nefí og Jakob fengu fólk sitt til að tileinka sér Jesaja 48–49, sjá þá 1. Nefí 22. Það gæti hjálpað ykkur að tileinka ykkur þessa kafla.
Með því að hlýða Drottni getum við verið „[friðsæl] sem fljót“ (Jesaja 48:18).
Jesaja 40–49
„Þú ert þjónn minn.“
Hvarvetna í Jesaja 40–49 talar Drottinn um „þjón“ sinn og „vitni“ sín. Þessi orð geta átt við um Jesú Krist (sjá Jesaja 42:1–7), Ísraelsætt (sjá Jesaja 45:4) og Kýrus konung, sem leyfði Gyðingum að snúa aftur til Jerúsalem og endurbyggja musterið (sjá Jesaja 44:26–28; 45:1–4). Þið gætuð líka íhugað hvernig versin eiga við um ykkur sem þjóna og vitni Drottins. Íhugið til að mynda spurningar sem þessar:
Jesaja 40:1–3, 9–11; 43:9–12. Á hvaða hátt eruð þið vitni Jesú Krists? Hver eru „fagnaðarboðin“ sem þið getið miðlað sem vitni hans? Þið gætuð ímyndað ykkur að þið hafið verið kölluð í vitnastúku í réttarhöldum. Í þessum réttarhöldum hefur Jesús Kristur verið ákærður fyrir fullyrðinguna sem skráð er í Jesaja 43:11. Hvaða vitnisburð gætuð þið gefið til stuðnings fullyrðingu Jesú? Hvaða sönnun gætuð þið lagt fram úr ykkar eigin lífi?
Jesaja 41:8–13; 42:6; 44:21. Hvað hefur Drottinn kallað ykkur til að gera? Hugleiðið kallanir sem og önnur tækifæri til að þjóna honum. Hvernig hefur hann „skapað“ ykkur eða búið ykkur undir að verða þjónar hans? Hvernig styður hann ykkur þegar þið þjónið?
Jesaja 49:1–9. Hvaða boðskap finnið þið í þessum versum sem getur hjálpað þegar erfiði ykkar og þjónusta virðast „til ónýtis“ og „til einskis“? (vers 4).
Jesaja 40:3–8, 15–23; 42:15–16; 47:7–11
Máttur Guðs er meiri en jarðneskur máttur.
Jesaja minnir fólk sitt stöðugt á óviðjafnanlegan mátt Guðs, jafnvel í samanburði við hinn þjakandi veraldlega mátt umhverfis það. Leitið slíks boðskapar við lestur Jesaja 40:3–8, 15–23; 42:15–16; og 47:7–11 (athugið að kafla 47 er beint til fangara Ísraels, Babýlon). Hvað kenna þessi ritningarvers ykkur um veraldlega hluti? Hvað kenna þau ykkur um Guð? Íhugið ástæðu þess að boðskapur þessi gæti hafa verið Gyðingunum í ánauð dýrmætur. Af hverju eru hún ykkur dýrmæt?
Jesaja 48:10; 49:13–16
Drottinn getur hreinsað mig gegnum raunir mínar.
Þegar þið lesið Jesaja 48:10, íhugið þá ykkar eigin „bræðsluofn þjáningar“. Hvernig er Drottinn að „hreinsa“ ykkur? Hvernig hjálpar Jesaja 49:13–16 ykkur í raunum ykkar?
Sjá einnig „The Refiner’s Fire“ (myndband), Gospel Library.
The Refiner's Fire
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jesaja 40:3–5
Ég get hjálpað við að „greiða Drottni veg“.
-
Íhugið nokkrar leiðir til að sýna fram á hvað það gæti þýtt að „greiða Drottni veg“, eins og lýst er í Jesaja 40:3–5. Þið og börn ykkar gætuð t.d. rétt úr einhverju sem er skakkt, tekið dót upp af gólfi eða búið til slóða í grýttan jarðveg. Þið gætuð líka sýnt myndir af Jóhannesi skírara og Joseph Smith (sjá Trúarmyndir, nr. 35,87). Hvernig greiddu þeir leið fyrir komu Drottins? (sjá Lúkas 3:2–18; Kenning og sáttmálar 135:3). Hvernig getum við hjálpað? Þetta gæti verið tækifæri til að ræða um það hvernig Aronsprestdæmishafar hjálpa við að greiða Drottni veg (sjá Kenning og sáttmálar 84:26–28).
Jesaja 43:10
Ég get verið vitni Drottins.
-
Eftir að hafa lesið saman Jesaja 43:10, gætuð þið rætt hvað það þýðir að vera vitni? Miðlið hvert öðru því sem þið hafið upplifað sem þið getið vitnað eða „vottað“ um – til dæmis mat sem þið hafið bragðað, stað sem þið hafið heimsótt eða einhvern sem þið þekkið. Hver er merking þess að vera vitni eða „vottur“ Drottins“? Hvað getum við sagt öðrum um hann?
Jesaja 44:3–4; 45:8
Drottinn mun „úthella“ blessunum sínum yfir mig.
-
Eftir lestur þessara versa, gætu börn ykkar vökvað plöntu og þið rætt um þær blessanir sem Drottinn hefur úthellt yfir þau. Hvað gerist með plöntu þegar við vökvum hana? Hvernig hafa blessanir Drottins hjálpað okkur að vaxa?
„Réttlæti [okkar getur verið] eins og öldur hafsins“ (Jesaja 48:18).
Jesaja 48:17–18
Að halda boðorð Guðs færir frið.
-
Myndir eða myndbönd af fljótum og öldum hafsins gætu hjálpað börnum ykkar að sjá fyrir sér Jesaja 48:18 (eins og myndirnar í þessum lexíudrögum). Börn ykkar gætu notið þess að hreyfa hendur og handleggi eins og fljót og öldur. Hvernig getur friður verið líkur fljóti? Hvernig getur réttlæti verið líkt öldum? Ræðið hvernig það að halda boðorð Guðs hefur hjálpað ykkur að finna friðsæld eins og fljót eða styrk eins og alda.
-
Syngið saman söng um boðorðin, t.d. „Boðorðin haldið“ (Barnasöngbókin, 68). Hvað kennir þessi söngur um ástæðu þess að okkur ber að halda boðorð Guðs?
Jesaja 49:14–16
Drottinn mun aldrei gleyma mér.
-
Jesaja 49:14–16 getur verið börnum ykkar mikil hughreysting um ókomin ár. Þegar þið lesið vers 14, gætuð þið rætt hvað gæti valdið því að fólki finnst það gleymt eða yfirgefið. Hvernig vitum við að Drottinn hafi ekki gleymt okkur?
-
Til að kynna vers 15–16, gætuð þið spurt börn ykkar um einhvern sem þau munu aldrei gleyma, t.d. fjölskyldumeðlim eða vin. Af hverju mun Drottinn aldrei gleyma okkur, samkvæmt Jesaja 49:15–16? Þið gætuð síðan miðlað hvert öðru tilfinningum ykkar til Jesú Krists.
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.