Kom, fylg mér
5.–11. október. „Vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði“: Jesaja 50–57


„5.–11. október. ‚Vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði‘: Jesaja 50–57,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)

„5.–11. október. ‚Vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026

Jesús með þyrnikórónu

Kristur hæddur, eftir Carl Heinrich Bloch

5.–11. október: „Vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði“

Jesaja 50–57

Í allri þjónustutíð sinni talaði Jesaja um máttugan frelsara. Spádómar þessir áttu eftir að vera Ísraelsmönnum einkar dýrmætir öldum síðar, er þeir voru í ánauð í Babýlon. Sá sem gæti rifið niður múra Babýlons væri vissulega máttugur sigurvegari. Það var þó ekki sá Messías sem Jesaja lýsti í köflum 52–53: „Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir. … Vér álitum honum refsað, hann sleginn og niðurlægðan af Guði“ (Jesaja 53:3–4).

Með því að senda slíkan óvæntan frelsara, kenndi Guð okkur um sanna frelsun. Til að frelsa okkur frá áþján og þjáningum, sendi Guð þann sem sjálfur var „hart leikinn og þjáður“. Sumir áttu von á ljóni, en hann sendi lamb (sjá Jesaja 53:7). Vissulega eru vegir Guðs ekki okkar vegir (sjá Jesaja 55:8–9). Jesús Kristur frelsar okkur ekki aðeins með því að ljúka upp varðhaldinu, heldur með því að koma þar í okkar stað. Hann leysir af okkur hlekki þjáningar og harmkvæla og ber þá sjálfur (sjá Jesaja 53:4–5, 12). Hann frelsar okkur ekki úr fjarlægð. Hann þjáist með okkur í verkum „ævarandi kærleika“ sem „ekki [mun] bifast“ (Jesaja 54:8, 10).

námstákn

Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju

Jesaja 50–52

Framtíðin er björt fyrir lýð Drottins.

Þótt Ísraelsmenn hafi verið mörg ár í ánauð – og jafnvel þótt sú ánauð hafi verið afleiðing af slæmu vali þeirra – þá vildi Drottinn að þeir litu vonaraugum til framtíðar. Hvað finnið þið í boðskap Jesaja sem veitir ykkur von? Tafla eins og þessi gæti verið gagnleg við námið:

Það sem ég læri um Guð (sjá t.d. Jesaja 50:2, 5–9; 51:3–8, 15–16; 52:3, 9–10)

Boðskapur vonar (sjá t.d. Jesaja 50:9; 51:3–5, 11–12, 22–23; 52:9–10)

Það sem ég get gert til að vonin verði að veruleika (sjá t.d. Jesaja 50:10; 51:1–2, 6–9; 52:1–3, 9–11)

Sjá einnig Mósía 12:20–24; 15:13–18; 3. Nefí 20:29–46; Kenning og sáttmálar 113:7–10; Russell M. Nelson, „Horfa til framtíðar í trú,“ aðalráðstefna, október 2020.

Jesús ber kross

Af kærleika, eftir Angelu Johnson

Hjálpið nemendum að koma til Jesú Krists. „Ekkert sem þið gerið sem kennarar mun blessa nemendurna meira en að hjálpa þeim að kynnast himneskum föður og Jesú Kristi og skynja elsku þeirra“ (Kenna að hætti frelsarans, 8). Þegar þið búið ykkur undir að kenna öðrum Jesaja 50–57, íhugið þá hvernig þið getið hjálpað þeim að sjá samhengi á milli áskorana Ísraels, spádóma Jesaja um Krist og þess að hljóta guðlega hjálp í eigin baráttu.

Jesaja 53

trúarskólatákn
Jesús Kristur tók á sig syndir mínar og sorgir.

Fáir kaflar í ritningunum lýsa endurlausnarhlutverki Jesú Krists á fegurri hátt en gert er í Jesaja 53. Íhugið athafnir eins og þessar til að skilja betur og tileinka ykkur þessar máttugu kenningar:

  • Íhugið eða ræðið hvernig sögur og kvikmyndir sýna oft hetjur koma fólki til bjargar. Berið það saman við lýsinguna á frelsaranum í Jesaja 53.

  • Staldrið við eftir lestur hvers vers og hugleiðið það sem frelsarinn leið – þær „þjáningar“, „harmkvæli“ og „misgjörðir“ sem hann tók á sig – fyrir alla menn og einkum fyrir ykkur persónulega. Við lesturinn gætuð þið skipt út orðum eins og „oss“ og „vér“ og sett í staðinn orðin „ég“ og „mín“. Hvaða tilfinningar og hugsanir vekja þessi vers ykkur?

  • Íhugið að horfa á myndbandið „My Kingdom Is Not of This World“ (Gospel Library) og íhugið hvernig spádómarnir í Jesaja 53 voru uppfylltir. Hverjar eru einhverjar þeirra þjáninga og harmkvæla sem frelsarinn tekur á sig fyrir okkur?

    5:25

    My Kingdom Is Not of This World

  • Finnið myndir af atburðunum sem tengjast friðþægingu Jesú Krists (sjá Trúarmyndabók, nr. 56–60). Þið gætuð síðan fundið orðtök í Jesaja 53 sem lýsa atburðunum á myndunum. Hvað hvetja þessar kenningar ykkur til að gera?

Sjá einnig „Sjá deyja lífs vors lausnarann,“ Sálmar, nr. 61.

Jesaja 54; 57:15–19

Jesús Kristur vill að ég snúi aftur til hans.

Öll upplifum við tíma þegar við erum fjarlæg Drottni vegna synda okkar eða veikleika. Sumir hafa jafnvel misst von um að verða nokkurn tíma fyrirgefið. Jesaja 54 og 57 eru tilvaldir kaflar til lestrar fyrir huggun og hvatningu á slíkum tímum. Hvaða orð kenna ykkur hvað frelsaranum finnst um ykkur, einkum í Jesaja 54:4–10; 57:15–19? Hverju breytir það í lífi ykkar að vita þetta um hann?

Dieter F. Uchtdorf forseti kenndi:

„Það skiptir engu hversu miklar rústir líf okkar virðist vera. Það skiptir engu hversu miklar syndir okkar eru, hversu beisk við erum, einmana, yfirgefin eða harmþrungin. Þá má jafnvel endurreisa sem eiga sér enga von, eru örvæntingarfullir, eru rúnir trausti og ráðvendni eða hafa snúið frá Guði. …

Gleðitíðindi fagnaðarerindisins eru þessi: Sökum hinnar eilífu sæluáætlunar okkar kærleiksríka himneska föður, og fyrir tilverknað hinnar altæku friðþægingar Jesú Krists, er ekki aðeins mögulegt að endurleysa okkur frá föllnu ástandi til hreinleika, heldur getum við líka náð lengra en dauðlegir menn fá ímyndað sér og orðið erfingjar eilífs lífs og tekið á móti óviðjafnanlegri dýrð Guðs“ („Hann mun leggja þig á herðar sér og bera þig heim,“ aðalráðstefna, apríl 2016).

Sjá einnig Patrick Kearon, „Ætlun Guðs er að leiða ykkur heim,“ aðalráðstefna, apríl 2024.

Jesaja 55–56

Drottinn býður okkur að „halda [okkur] fast við sáttmála [sinn]“.

Ísrael hafði um aldir verið skilgreind sem sáttmálsþjóð Guðs. Áætlun Guðs hefur hins vegar alltaf falið í sér fleiri þjóðir en eina, því „öllum sem þyrstir“ er boðið að „koma til vatnsins“ (Jesaja 55:1). Hafið þetta hugfast er þið lesið Jesaja 55 og 56 og ígrundið hvaða þýðingu þetta hafði fyrir lýð Guðs. Hver eru skilaboð Guðs til þeirra sem finnst þeir algjörlega „skildir frá“ honum? (Jesaja 56:3) Íhugið að merkja við vers sem lýsa viðhorfi og breytni þeirra sem „halda sér fast við sáttmála [hans]“ (sjá Jesaja 56:4–7).

Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.

táknmynd barnahluta

Hugmyndir fyrir kennslu barna

Jesaja 51–52

Drottinn býður mér að „[íklæðast] styrk [mínum]“.

  • Það gæti verið gaman fyrir börn ykkar að uppgötva orðtök eins og „vakna,“ „rís upp“ og „íklæð þig styrk þínum“ í Jesaja 51:9, 17; 52:1–2, 9 og leika síðan þessi orðtök. Eftir að hafa gert það, gætuð þið rætt hvað það þýðir að vakna, rísa upp og íklæðast andlegum styrk. Hvað er Drottinn að biðja okkur að gera í þessum versum?

  • Börn ykkar gætu líka lesið Jesaja 51:1, 4, 7 og auðkennt við hverja Drottinn talar og hvað hann vill að þau geri. Hver er merking þess að „hlýða á“ Drottinn? Hvernig getum við sýnt Drottni að við „hlýðum á“ hann?

Jesaja 53:3–9

Jesús Kristur tók á sig syndir mínar og sorgir.

  • Þið og börn ykkar gætuð skoðað nokkrar myndir sem sýna þjáningar og dauða Jesú Krists (sjá t.d. Trúarmyndabók, nr. 56, 57,58). Þið gætuð síðan lesið saman Jesaja 53:3–6, 9 og leitað orða sem lýsa því sem er að gerast á myndunum. Hjálpið börnum ykkar að skilja að Jesaja miðlaði þessum sannleika mörg hundruð árum áður en hann gerðist. Hvers vegna ætti það að vera mikilvægt fyrir fólk að vita um þessa hluti svo mörg ár fram í tímann? (sjá Alma 39:15–19).

  • Eftir að hafa lesið í Jesaja 53:4: „Vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði,“ gætu börn ykkar reynt að lyfta þungum hlut (eða þykjast lyfta honum). Ræðið um það hvernig „þjáningar“ og „harmkvæli“ eða dapurleiki geta verið þungbær og erfitt að bera. Af hverju bar Jesús „þjáningar“ okkar, „harmkvæli“ og „misgjörðir“ eða syndir okkar? (sjá einnig Alma 7:11–12).

Jesús Kristur með börnum

Jesaja 55:6

Ég get leitað til Drottins og ákallað hann.

  • Til að kenna börnum ykkar um Jesaja 55:6, gætuð þið falið mynd af Jesú einhvers staðar í herberginu. Þið gætuð boðið börnum ykkar að finna myndina og nefna eina aðferð til að „leita Drottins meðan hann er að finna“. Söngur eins og „Í æsku leita ég lausnarans“ (Barnasöngbókin, 67) gæti vakið þeim hugmyndir. Síðan gætuð þið látið eitt barnanna fela myndina og endurtaka verkefnið.

Jesaja 55:8–9

Vegir Drottins eru hærri mínum.

  • Eftir lestur Jesaja 55:9, gæti verið gaman fyrir börn ykkar að standa á stól og ræða hvernig hlutirnir eru öðruvísi þegar þið standið „hærra“. Þau gætu líka þess í stað teiknað mynd af því sem þeim finnst Jesaja 55: 9 merkja. Þið gætuð síðan rætt um eitthvað af háttum Drottins sem eru hærri okkar háttum. Dæmi: Hver er háttur hans við að koma fram við syndara? (sjá Markús 2:15–17). Hver er háttur hans til að leiða aðra? (sjá Matteus 20:25–28). Segið börnum ykkar frá því hvernig þið hafið lært að treysta hærri vegum og hugsunum Drottins.

Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.

andlitsmynd af Jesú

Ljósið hans, eftir Michael Malm

Verkefnasíða Barnafélagsins: Ég get leitað Drottins og ákallað hann