„19.–25. október. ‚Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig‘: Jeremía 1–3; 7; 16–18; 20,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„19.–25. október. ‚Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Jeremía, eftir Walter Rane
19.–25. október: „Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig“
Jeremía 1–3; 7; 16–18; 20
Í fyrstu taldi Jeremía sig ekki verða góðan spámann. „Ég er ekki fær um að tala,“ andmælti hann (Jeremía 1:6). En Drottinn fullvissaði hann: „Hér með legg ég orð mín þér í munn“ (vers 9). Jeremía fannst hann sjálfur vera óreyndur og „ungur“ (vers 6), en Drottinn útskýrði að hann væri í raun undirbúnari en honum væri ljóst – hann hafi verið vígður köllun sinni, jafnvel áður en hann fæddist (sjá vers 5). Jeremía lét því af ótta sínum og tók á móti kölluninni. Hann varaði konunga og presta Jerúsalem við því að uppgerður heilagleiki þeirra myndi ekki verða þeim til frelsunar. Hinn „ungi“ maður sem taldi sig ekki geta talað, tók að finna orð Guðs „loga [sem eld] í hjarta [sínu]“ svo hann gat ekki verið þögull (Jeremía 20:9).
Saga Jeremía er líka saga ykkar. Guð þekkti ykkur líka áður en þið fæddust og bjó ykkur undir lífsins hlutverk. Það hlutverk felur meðal annars í sér nokkuð sem Jeremía sá fyrir: að safna saman lýð Guðs, einum í einu, „og flytja [þau] til Síonar“ (Jeremía 3:14). Þótt við vitum ekki nákvæmlega hvað segja eða gera skal, ættum við „ekki [að] óttast, … því að ég er með [ykkur], … segir Drottinn“ (Jeremía 1:8).
Til að fá yfirlit yfir bók Jeremía, sjá þá „Jeremía“ í Leiðarvísi að ritningunum.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jeremía 1:4–19; 7:1–7; 20:8–9
Spámenn eru kallaðir til mæla orð Guðs.
Ímyndið ykkur að þið séuð að ræða við vin sem aldrei hefur heyrt um spámenn og þið ákveðið að útskýra hugmyndina með því að nota köllun Jeremía til að verða spámaður í Jeremía 1:4–19. Hvað finnið þið í þessum versum sem kennir eitthvað um spámenn Guðs? Þið gætuð líka kannað Jeremía 7:1–7; 20:8–9 og sálm eins og „Kom, heyrið spámann hefja raust“ (Sálmar, nr. 8).
Þið gætuð líka viljað kenna vini ykkar um lifandi spámann okkar tíma. Er eitthvað í þessum versum sem gæti hjálpað? Dæmi: Hvað „uppræta“ spámenn okkar tíma eða „rífa niður“? Hvað „byggja þeir upp“ og „gróðursetja“? (Jeremía 1:10). Hvernig hafið þið komist að því að lifandi spámaður okkar er kallaður af Guði?
Sjá einnig Trúaratriðin 1:6, 9; „Why Do We Have Prophets?“ (myndband), ChurchofJesusChrist.org.
Why Do We Have Prophets?
Jeremía 1:5
Guð þekkti mig áður en ég fæddist.
Hvað lærði Jeremía um sjálfan sig í Jeremía 1:5? Af hverju var honum mikilvægt, sem nýkölluðum spámanni, að vita þetta um sjálfan sig?
Margt af því sem Jeremía lærði um sjálfan sig í Jeremía 1:5 á líka við um ykkur. Guð þekkti ykkur líka fyrir fæðingu ykkar og bjó ykkur undir ákveðna ábyrgð. Til að læra meira um líf ykkar sjálfra áður en þið fæddust, lesið þá Alma 13:1–4; Kenningu og sáttmála 138:53–56; og Abraham 3:22–23. Þið gætuð skráð sannleika sem þið uppgötvið. Af hverju er mikilvægt fyrir ykkur að vita þetta?
Til að kynna ykkur hvernig þessi sannleikur hafði áhrif á líf öldungs Ahmads S. Corbitt, lærið þá boðskap hans, „Þið getið safnað saman Ísrael!“ (aðalráðstefna, apríl 2021). Á hvaða hátt getur sú vitneskja að þið lifðuð í fortilverunni haft áhrif á hvernig þið hagið jarðnesku lífi ykkar?
Hér er það sem Russell M. Nelson forseti sagði um fortilveru ykkar:
„Himneskur faðir hefur þekkt ykkur í afar langan tíma. Þið, sem synir hans og dætur, voruð útvalin af honum til að koma til jarðarinnar á þessum sérstaka tíma, til að vera leiðtogar í hinu mikla verki hans á jörðu. Þið voruð ekki útvalin vegna líkamlegra eiginleika ykkar, heldur vegna andlegra eiginleika ykkar, svo sem hugprýði, hugrekki, ráðvendni hjartans, þrá ykkar eftir sannleika og visku og þrá ykkar til að þjóna öðrum.
Þið þróuðuð suma þessara eiginleika í fortilverunni. Aðra getið þið þróað hér á jörðu, ef þið keppið stöðugt að þeim“ („Ákvarðanir fyrir eilífðina,“ aðalráðstefna, október 2013).
Hugsið um einhverjar aðstæður sem þið gætuð lent í þar sem mikilvægt væri að minnast þessa sannleika um fortilveru ykkar. Hvað getið þið gert til að minna ykkur á þennan sannleika?
Sjá einnig Russell M. Nelson, „Ákvarðanir fyrir eilífðina,“ aðalráðstefna, október 2013; „Forvígsla,“ „Fortilvera,“ Leiðarvísir að ritningunum, Gospel Library.
Í Jeremía 2:13 líkti Drottinn andlegu ástandi fólksins við „sprungna brunna“ og líkti sér við „uppsprettu lifandi vatns“.
Jeremía 2; 7
„Hún hefur yfirgefið mig, uppsprettu lifandi vatns.“
Í því þurra landi sem Ísraelsmenn bjuggu í, varðveitti fólk dýrmætt vatn í rýmum neðanjarðar sem nefndust vatnsþrær. Hver gæti verið merking „sprungna brunna“ í Jeremía 2:13? Af hverju var betra að fá vatn úr uppsprettu en að reiða sig á vatnsþró? Hver er merking þess að yfirgefa „uppsprettu lifandi vatns“? Þegar þið lesið Jeremía 2 og7, gætið þá að því hvernig fólkið hvarf frá hinu lifandi vatni Drottins (sjá t.d. Jeremía 2:26–28; 7:2–11). Hvers vegna er „lifandi vatn“ gott tákn um það sem frelsarinn veitir ykkur? Hugsið um það hvernig þið fáið lifandi vatn.
Jeremía 7 er beint til fólks sem fór í „hús Drottins … til að tilbiðja Drottin“ en breytni þess samræmdist ekki ytri hollustu þess (sjá vers 2–11). Hvaða boðskap haldið þið að Drottinn gæti ætlað ykkur í versum 21–23?
Hafið sýnikennslu. Spámenn Drottins líkja oft andlegum sannleika við kunnuglega hluti. Íhugið að gera það sama þegar þið lærið og kennið fagnaðarerindið. Dæmi: Til að sjá Jeremía 2:13 fyrir sér, gætuð þið sett vatn í sprungið eða brotið ílát eða drukkið úr drykkjarbrunni. Hvernig er Jesús eins og „uppspretta lifandi vatns“? (Jeremía 2:13). Hvernig drekkum við lifandi vatn hans?
Jeremía 3:14–18; 16:14–21
Drottinn mun safna fólki sínu saman.
Í Jeremía 16:14–15 ber Jeremía samansöfnun Ísraels á síðari dögum saman við brottför Ísraels frá Egyptalandi. Af hverju ætti samansöfnunin að vera jafnvel mikilvægari fólki Guðs en brottförin, að ykkar mati?
Hvað er tilgreint í Jeremía 3:14–18; 16:14–21 varðandi hvernig samansöfnunin á sér stað?
Í boðskap sínum, „Hope of Israel“, kenndi Russell M. Nelson forseti, líkt og Jeremía, að samansöfnun Ísraels væri „það mikilvægasta sem ætti sér stað á jörðinni í dag“ (heimslæg trúarsamkoma ungmenna, 3. júní 2018, Gospel Library). Lesið eða hlustið á boðskap hans og sjáið hvort þið getið uppgötvað (a) hvernig Nelson forseti skilgreinir samansöfnun Ísraels, (b) hvernig hann lýsir mikilvægi hennar og (c) hvernig þið getið verið þátttakendur í samansöfnuninni.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jeremía 1:5
Himneskur faðir þekkti mig áður en ég fæddist.
-
Til að kynna hinn mikilvæga sannleika sem kenndur er í Jeremía 1:5, gætuð þið sýnt börnum ykkar mynd af ungbarni (eða ef mögulegt er, gætuð þið skoðað myndir af börnum ykkar þegar þau voru ungbörn). Spyrjið börn ykkar hvort þau viti hvar þau dvöldu áður en þau fæddust. Þið gætuð líka sungið saman söng sem kennir um fortilveru okkar, svo sem „Ég lifði á himnum“ (Barnasöngbókin, 4).
-
Ef börn ykkar vilja læra meira, gætuð þið hjálpað þeim að finna „Fortilvera“ í Leiðarvísi að ritningunum. Þau gætu leitað svara við „hver“, „hvenær“ og „hvað“ spurningum um fortilveruna.
Jeremía 1:4–19
Spámenn eru kallaðir til að mæla orð Drottins.
-
Íhugið að sýna myndir af lifandi spámanni eða spámönnum úr ritningunum (þið getið fundið nokkrar í kirkjutímaritum, í Trúarmyndabók og Kom, fylg mér). Látið börn ykkar miðla því sem þau vita um þessa spámenn.
-
Til að kenna um það sem spámenn gera, gætuð þið valið nokkur gagnleg vers í Jeremía 1, t.d. vers 5, 7, 10 og 19. Börn ykkar gætu hvert fyrir sig valið eitt versanna, lesið það og miðlað einhverju sem þau lærðu um spámenn.
Jeremía 16:14–16
Ég get hjálpað börnum himnesks föður að koma aftur til hans.
-
Á meðan þið lesið Jeremía 16:16, gætu börn ykkar látist vera að „veiða“ hluti í herberginu. Russell M. Nelson forseti líkti fiski- og veiðimönnunum í þessum versum við trúboða (sjá „Samansöfnun tvístraðs Ísraels,“ aðalráðstefna, október 2006). Hvað gera trúboðar? Hvernig getum við hjálpað við að „veiða“ hinn tvístraða Ísrael? (sjá „A Message for Children from President Russell M. Nelson“ [myndband], ChurchofJesusChrist.org).
3:30Video: A Message for Children from President Russell M. Nelson
Jeremía 18:1–6
Ég get látið Drottin leiða líf mitt, líkt og leirkerasmiður mótar leir.
-
Þið gætuð rætt eða sýnt hvernig leirker er búið til þegar þið kannið þessi vers (sjá myndina aftast í þessum lexíudrögum). Hvaða boðskap hefur Drottinn fyrir okkur í Jeremía 18:1–6? Hver er merking þess að vera sem leir í höndum Drottins? (sjá einnig Jesaja 64:8). Ef þið viljið aðra frásögn sem líkir okkur við leir leirkerasmiðs, sjá þá boðskap öldungs Richards J. Maynes, „Gleðin að lifa lífi með Krist að þungamiðju“ (aðalráðstefna, október 2015).
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.