„12.–18. október. ‚Lausnarinn mun koma til Síonar‘: Jesaja 58–66,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Gamla testamentið 2026 (2026)
„12.–18. október. ‚Lausnarinn mun koma til Síonar‘,“ Kom, fylg mér: Gamla testamentið 2026
Jesús í samkunduhúsi Nasaret, eftir Greg Olsen
12.–18. október: „Lausnarinn mun koma til Síonar“
Jesaja 58–66
Snemma í þjónustu sinni, fór Jesús Kristur í samkunduhús í Nasaret, þar sem hann ólst upp. Hann stóð þar og las ritningarnar, lauk upp bók Jesaja og las það sem við þekkjum sem Jesaja 61:1–2. Hann lýsti síðan yfir: „Í dag hefur ræst þessi ritning í áheyrn yðar.“ Þetta var ein ákveðnasta yfirlýsing frelsarans um að hann væri hinn smurði, sem myndi „boða bandingjum lausn“ og „láta þjáða lausa“ (sjá Lúkas 4:16–21). Ritningin uppfylltist vissulega dag þennan. Líkt og svo margir aðrir spádómar Jesaja, er hún líka að uppfyllast á okkar tíma. Frelsarinn læknar áfram hina þjáðu sem til hans koma. Það eru enn margir fangar sem þarfnast björgunar. Og það er dýrðleg framtíð í vændum – tími er Drottinn mun „skapa nýjan himin og nýja jörð“ (Jesaja 65:17) og „láta réttlæti dafna og orðstír frammi fyrir öllum þjóðum“ (Jesaja 61:11). Lestur Jesaja lýkur upp augum okkar fyrir því sem Drottinn hefur þegar gert, því sem hann er að gera og mun gera fyrir fólk sitt.
Hugmyndir fyrir nám á heimili og í kirkju
Jesaja 58:3–12
Fastan eflir andlegan kraft og blessar fólk í neyð.
Hvers vegna ætti einhver að vera án matar þegar matur er á boðstólum? Þegar þið lærið Jesaja 58:3–12, gætuð þið íhugað ástæður ykkar fyrir að fasta – sem og ástæður Drottins fyrir því að gefa þetta lögmál. Hér eru nokkrar fleiri spurningar til hugleiðingar:
-
Hvers vegna er stundum hægt að líta á föstu sem meiri byrði en blessun? (sjá Jesaja 58:3–5). Hvernig breyta kenningar Drottins í þessum kafla þeim skilningi fyrir ykkur?
-
Hver gæti verið merking þess að „leysa fjötra rangsleitninnar“ og „sundurbrjóta sérhvert ok“? (Jesaja 58:6). Hvernig getur fasta blessað aðra? (sjá vers 7).
-
Hvernig hefur fasta leitt til blessananna sem lýst er í Jesaja 58:8–12?
Í boðskap sínum, „Sú fasta sem mér líkar“ (aðalráðstefna, apríl 2015), miðlaði Henry B. Eyring forseti nokkrum dæmum um hvernig fólk hefur verið blessað af föstu og föstufórnum. Hvernig hafið þið séð álíka blessanir í lífi ykkar?
Sjá einnig „Bless our Fast, We Pray,“ Hymns, nr. 138; Topics and Questions, „Fasting and Fast Offerings,“ Gospel Library.
Kynnist fólkinu sem þið kennið. „Að vera kristilegur kennari felur í sér að kynnast því fólki sem þið kennið og að leggja ykkur fram við að skilja hvað býr í hjarta þeirra. … Þið getið komist að því hvernig þau læra best. Þið getið spurt spurninga, hlustað vandlega og fylgst með. Umfram allt þá getið þið beðið fyrir skilningi sem einungis andinn getur veitt. Því betur sem þið þekkið einhvern, því betur getið þið hjálpað honum eða henni við að finna persónulega þýðingu og kraft í fagnaðarerindi Jesú Krists. Þegar þið skiljið þorsta einstaklings, getur andinn kennt ykkur hvernig seðja má þann þorsta með lifandi vatni frelsarans“ (Kenna að hætti frelsarans, 13).
Jesaja 58:13–14
Að heiðra Drottin á hvíldardegi færir gleði.
Er hvíldardagurinn ykkur „fagnaðardagur“? Þegar þið lærið Jesaja 58:13–14, íhugið þá hvernig þið gætuð fundið meiri gleði á degi Drottins. Hver gæti t.d. verið merking þess að „varast að gegna störfum [sínum] á helgum degi [hans]“? Hver er munurinn á því að „gleðjast yfir Drottni“ og að „sinna … hugðarefnum [sínum]“?
Sjá einnig Russell M. Nelson, „Hvíldardagurinn er feginsdagur,“ aðalráðstefna, apríl 2015.
Jesaja 59:9–21; 61:1–3; 63:7–9
Jesús Kristur er frelsari minn og lausnari.
Í Jesaja 58–66 eru margar tilvísanir í friðþægingarhlutverk Jesú Krists. Gætið að þeim við nám ykkar. Gætið sérstaklega að titlum og orðum sem notuð eru til að lýsa frelsaranum. Dæmi:
-
Hvað vekur áhuga ykkar í lýsingunni um að „enginn skarst í leikinn“ sem milligöngumaður í Jesaja 59:16–21? Hvernig tekst frelsarinn á við aðstæðurnar sem lýst er í versum 9–15?
-
Þegar Jesús Kristur tilkynnti fólkinu í Nasaret að hann væri Messías, vitnaði hann í Jesaja 61:1–3 (sjá Lúkas 4:16–21; sjá einnig myndbandið „Jesus Declares He Is the Messiah,“ Gospel Library). Hvernig hefur Jesús Kristur blessað ykkur og aðra á þann hátt sem lýst er í þessum versum? Hvernig hefur hann fært fegurð í stað rústa?
3:24Jesus Declares He Is the Messiah
-
Hvaða „velgjörða Drottins“ getið þið „minnst“? (sjá Jesaja 63:7–9).
-
Hvaða fleiri tilvísanir í frelsarann finnið þið í Jesaja 58–66?
Sjá einnig Mósía 3:7; Kenning og sáttmálar 133:46–53.
Gjöf ljóss, eftir Evu Timothy
Jesaja 60; 62
„Drottinn [verður] þér eilíft ljós.“
Í Jesaja 60 og 62 er sagt frá ljósi og myrkri, augum og sjón, til að kenna hvernig fagnaðarerindi Jesú Krists mun blessa heiminn á síðari dögum. Gætið að þessum lýsingum í Jesaja 60:1–5, 19–20; 62:1–2. Þegar þið lesið þessa kafla, íhugið þá hvernig Guð er að safna saman börnum sínum úr myrkri í ljósið sitt. Hvert er hlutverk ykkar í verki hans?
Sjá einnig 1. Nefí 22:3–12; 3. Nefí 18:24; Kenning og sáttmálar 14:9; Bonnie H. Cordon, „Til þess að hún sjái,“ aðalráðstefna, apríl 2020.
Jesaja 64:1–5; 65:17–25; 66
Kristur mun ríkja á jörðu í þúsund ára ríkinu.
Jesaja ræddi um tíma þegar „fyrri þrengingar eru gleymdar“ (Jesaja 65:16). Þótt þessi spádómur hafi uppfyllst að nokkru, er sá dagur ókominn að hann uppfyllist algjörlega – þegar Jesús Kristur kemur aftur. Jesaja lýsti þessum komandi degi í Jesaja 64:1–5; 65:17–25; 66. Gætið að því hversu oft hann notar orð eins og „gleðjist“ og „fagnið“. Af hverju mun endurkoma frelsarans verða ykkur gleðidagur? Hvað getið þið gert til að búa ykkur undir komu hans?
Sjá einnig Trúaratriðin 1:10; Russell M. Nelson, „Framtíð kirkjunnar: Búa heiminn undir síðari komu frelsarans,“ Líahóna, apríl 2020.
Sjá útgáfur þessa mánaðar af tímaritunum Líahóna og Til styrktar ungmennum til að fá fleiri hugmyndir.
Hugmyndir fyrir kennslu barna
Jesaja 58:6–11
Að fasta blessar mig og aðra í neyð.
-
Ef til vill er besta aðferðin til að hvetja börn ykkar til að fasta – þegar þau eru tilbúin til þess – að hjálpa þeim að skilja tilgang Drottins með þessu lögmáli. Íhugið að lesa saman Jesaja 58:6–11 til að finna svör við þessum spurningum: Hvers vegna föstum við? Hvernig föstum við? Þið gætuð líka lesið „Fasta“ í Leiðarvísi að ritningunum.
-
Ef þið hafið átt innihaldsríka reynslu af föstu, miðlið henni þá börnum ykkar. Þið gætuð líka spurt þau hvernig þau myndu útskýra fyrir vini ástæðu þess að Drottinn gaf okkur þetta lögmál.
Jesaja 58:13–14
Hvíldardagurinn getur verið mér fagnaðardagur.
-
Eftir lestur Jesaja 58:13–14, gætuð þið bent á daga vikunnar á dagatali og boðið börnum ykkar að þylja upp þá daga með ykkur. Þegar þið komið að hvíldardeginum, biðjið þau þá að nefna þann dag „fagnaðardag“. Segið þeim hvers vegna hvíldardagurinn sé ykkur fagnaðardagur.
-
Miðlið hvert öðru hvernig þið getið „glaðst yfir Drottni“ á hvíldardegi. Börn ykkar gætu ef til vill teiknað hugmyndir sínar og sett þær í „kassa hvíldardagsgleði“. Þegar þau svo þurfa hugmyndir um hvað gera skuli á hvíldardegi, gætu þau dregið hugmynd úr kassanum.
Ljósið okkar, eftir Dan Wilson
Jesaja 60:1–3
Frelsarinn er mér sem ljós.
-
Þið gætuð boðið börnum ykkar að loka augum sínum þegar þið lesið Jesaja 60:1–3. Biðjið þau að opna augun þegar þau heyra orðið „ljós“ og loka þeim aftur þegar þau heyra orðið „myrkur“. Útskýrið að Jesús Kristur og fagnaðarerindi hans séu eins og ljós sem hjálpi okkur að sjá leiðina til baka til himnesks föður.
Jesaja 65:17–25
Þegar Jesús kemur aftur, mun hann færa frið og gleði.
-
Jesaja 65:17–25 lýsir því hvernig jörðin verður þegar frelsarinn kemur aftur. Þegar þið lesið þessi vers með börnum ykkar, hjálpið þeim þá að skilja hvernig lífið verður öðruvísi á hinni „nýju jörð“, eins og Jesaja tilgreindi. Af hverju verður þetta tími til að „gleðjast og fagna ævinlega“? (vers 18).
-
Þið gætuð líka sungið saman söng um síðari komuna, eins og t.d. „Þegar hann kemur aftur“ (Barnasöngbókin, 82). Miðlið hvert öðru hverju þið hlakkið til varðandi endurkomu frelsarans. Hvað getum við gert til að búa okkur undir þann dag?
Sjá útgáfu þessa mánaðar af tímaritinu Barnavinur til að fá fleiri hugmyndir.